Yfirborðshreinsarar
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Yfirborðshreinsarar
Hefur einhver reynslu af yfirborðshreinsara til að losna við olíubrák svipuðum og á þessari síðu:
http://www.drsfostersmith.com/product/p ... atid=12703

- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- thunderwolf
- Posts: 232
- Joined: 17 Aug 2007, 15:02
- Location: Hafnarfjörður
Ég er búinn að nota þennan hreinsara í um hálfan mánuð. Reynslan er sú að þetta hreinsar olíubrák sem liggur við yfirborðið. Það er ekkert auðvelt að sjá þessa brák. Það sem bendir mér helst á hana eru loftbólur sem springa ekki strax við yfirborðið.
Ástæðan fyrir því að ég átta mig á virkninni er kannski óvirknin í þessum búnaði, það er að glæri hlutinn sem þið sjáið á myndinni sem á að fljóta, hann sekkur á nokkrum klukkutímum og þá hættir tækið að taka frá yfirborðinu og þá sé ég loftbólur sem vilja ekki springa, sérstaklega eftir offóðrun.
Það sem ég þarf að gera er að setja eitthvað frauðplast undir glæra hlutann til þess að hann sökkvi ekki. Ég veit ekki ástæðuna fyrir því að hann sekkur, það gæti verið að fiskarnir kaffæri þetta eða þá að loftbólan sem heldur þessu á floti hverfur af öðrum orsökum.
Til þess að fá hann til að fljóta eftir að hann hefur sokkið þarf ég að lyfta honum upp svo loft komist undir hann.
Niðurstaða mín er, þetta virkar meðan glæri hlutinn á myndinni helst á floti.

Nú er kominn mánuður og eins og ég sagði eftir hálfan mánuð þá virkar þetta meðan glæri hlutinn er á floti.
Ég er búinn að gera eins og thunderwolf, setja græjuna í geymslu. Hvort þetta er peningaeyðsla, jú, en ég veit þó hvernig þetta virkar og virkar ekki, fyrir 2 þús. kall.
Ég var að skoða græjuna betur til þess að átta mig á því hvernig þetta virkar, mér fannst þetta hálfgerðir galdrar fyrst.
Það er svartur pinni sem stendur upp úr þessu í miðjunni, hann er hægt að skrúfa upp og niður. Þegar hann er skrúfaður niður þá sýgur dælan vatnið inn að neðan, en þegar hann er skrúfaður upp þá sýgur hún vatnið niður um glæra hlutann. Einhvers staðar þarna á milli þarf að stilla þetta, en það gerist bara alltaf, einhverra hluta vegna, að dælan nær að draga glæra hlutann í kaf og þá fer vatnið inn að ofanverðu fyrir neðan vatnsborð og hættir þá að geta tekið brákina.
Þegar glæri hlutinn er sokkinn getur dælan sogað til sín stærri hluti, því það er engin rist til að stöðva þá.
Dælan hjá mér var með töluverðu af kúluskít í sér sem síkliðurnar voru búnar tæta í sundur. Og það er frekar líklegt að hann hafi komið gegnum glæra hlutann.
Niðurstaða mín er. Kaupið svona ef þið hafið gaman af tilraunum, annars ekki!

Óðarfi að búa til nýjan þráð, þar sem olíubrák er nefnd hér.
En er eðlilegt að þessi brák sjáist, hjá mér er olíubrák eins og maður sér í höfnum o.s.f ég setti Bmvallá perlumöl í búrið hjá mér, og mig grunar að hún hafi verið olíusmituð. Þrátt fyrir að hafa skolað hana svo mjög vel, áður en hún fór í búrið.
Hef skafið ofan af vatnsborðinu tvisvar, en þessi brák kemur alltaf aftur eftir svona tvo sólahringa.
Getur maður bara ignorað þetta?
Hverfur þetta með tímanum?
Eða mun svona yfirborðshreinsari leysa málið?

Skolaðir þú mölina ekkert ?
Er mjög gott að taka sigti og skola mölina undir heita vatninu

Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Eins og ég sagði að ofan, þá einmitt skolaði ég hana mjög vel. Skolaði hana ca tíu sinum með heitu vatni, og sauð hana líka í pott. Þannig að það ætti ekki að vera nein drulla í henni, en einn dropi af smur/díselolíu sem hefur kannski dropað í mölina í vinnslu hjá BM getur verið margar vikur jafnvel mánuði að leysast upp. Spurninginn er mun þetta drepa fiskana með tímanum, eða þola þeir svona mengun. Ef ég t.d skef ofan af vatninu reglulega.Squinchy wrote:Skolaðir þú mölina ekkert ?
Er mjög gott að taka sigti og skola mölina undir heita vatninu
Nenni eiginnilega ekki að byrja upp á nýtt
gæti reyndar skipt um sand með vatnið í búrinu, bara svolítið vesen.
Hann segir hér fyrir ofan hafa skolað mölina mjög vel.
Það getur líka komið svona brák úr fóðri.
Þú ættir kannski að prófa að taka smá sýnishorn af mölinni og láta standa í skál í 2-3 daga og ath. hvort komi einhver brák bara úr mölinni.

You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Þetta er góð hugmynd! Prufa það áður en ég fer í einhverjar dramatískar aðgerðirÁsta wrote:Hann segir hér fyrir ofan hafa skolað mölina mjög vel.
Það getur líka komið svona brák úr fóðri.
Þú ættir kannski að prófa að taka smá sýnishorn af mölinni og láta standa í skál í 2-3 daga og ath. hvort komi einhver brák bara úr mölinni.
Viku gamalt, Eheim 2222 tunnudæla með nýjum filterum. Búrið sjálft er hundgamalt, en uppsetningin fór fram fyrir rúmri viku. Fiskunum líður alveg þrælvel held ég, þeir allavega synda um og éta allt sem í búrið fer svaka fjör þegar ég fóðra.Squinchy wrote:Er búrið nýtt ?
Er tunnudæla tengd við búrið ?
Gæti verið að olía hafi komist á glerið
Gæti líka verið tunnudælan
Mundi bara taka reglulega af yfirborðinu með könnu eða einhverju og þá ættir þetta að hverfa með tímanum
Gæti líka verið tunnudælan
Mundi bara taka reglulega af yfirborðinu með könnu eða einhverju og þá ættir þetta að hverfa með tímanum
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Held að þú hafir hitt naglan á höfuðið, þegar maður dregur puttann á yfirborðið brotnar brákin í sundur, sem gerist ekki þegar um jarðolíu mengun er að ræða. Þannig að ég held ég geri ekkert í þessu, annað en að skipta reglulega um vatn, og skafa órhoðan burt enn oftar.Hrafnkell wrote:Getur verið úr fóðri, hef oft upplifað það.
Getur líka verið þörungur, "surface scum".
Djö.... er þetta fínt spjall! þið eruð snillingar
Nákvæmlega það sem ég gerði, var reyndar ekki með spraybar, en færði úttakið uppfyrir yfirborðið. Það er kannski bara betra upp á súrefnistöku vatnsins, en minkar kannski hringrás búrsins í staðin, allavega ætla að sjá hvað gerist næstu daga.Hrafnkell wrote:Getur reynt að hafa meiri hreifingu á yfirborðinu, t.d. með því að sleppa spraybarnum á tunnudælunni til að auka ferðina á vatninu.