Diskusa par til sölu (selt)

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Diskusa par til sölu (selt)

Post by Vargur »

Til sölu Diskusa par sem hefur hringt nokkrum sinnum.

Image
Parið er reyndar ekki lengur jafn ástfangið og eru ekki alltaf vinir þessa dagana.

Verð 14.000.-
Last edited by Vargur on 02 Sep 2008, 18:12, edited 1 time in total.
guns
Posts: 359
Joined: 30 Nov 2006, 01:04
Contact:

Post by guns »

Er ekki alveg í lagi að hafa flissað smá yfir fiskum sem hringja? :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

guns wrote:Er ekki alveg í lagi að hafa flissað smá yfir fiskum sem hringja? :)
Hahaha, ætli þau hafi hringt í vitlaust númer?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
guns
Posts: 359
Joined: 30 Nov 2006, 01:04
Contact:

Post by guns »

Ásta wrote:
guns wrote:Er ekki alveg í lagi að hafa flissað smá yfir fiskum sem hringja? :)
Hahaha, ætli þau hafi hringt í vitlaust númer?

Tjah, eða mögulega símareikningurinn bara að verða of hár.
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

Post by eyrunl »

AAALLAVEGA!! diskusar til sölu sem hafa átt babies
Eyrún Linda
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hann hefur meint að parið hefur Hrygnt nokkrum sinnum :)


nema Vargur hafi misst gemsan ofaní búrið við þrif og diskusarnir náð að komast í síman :lol:


:)
Last edited by Elma on 29 Aug 2008, 09:19, edited 1 time in total.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

HAHAHAHA, ennþá betra....

...... en fiskar hvorki hringja né hryngja, þeir hrygna.

Sorry Vargur, þetta var bara of fyndið :lol:

Minni á að þessir fallegu fiskar eru til sölu.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

:oops: Óvanalegt að ég geri svona mistök, ég veit alveg hvernig á að skrifa hrygnt. :?

...sennilega hefur einhver ljóska verið að striplast fyrir framan mig þegar ég var að skrifa þetta.
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Vargur wrote:...sennilega hefur einhver ljóska verið að striplast fyrir framan mig þegar ég var að skrifa þetta.
:lol: :lol: :lol: Þessar ljóskur :oops:

Fallegir fiskar samt, væri alveg til í þá, en finn bara ekki peningana mína :shock:
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Ha er Arowanan ljóska :? :D
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Hvað eru téðir brandaradiskusar stórir ?, (ógeðslega flottir og flott mynd) og í stóru búri?
Ace Ventura Islandicus
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þeir eru ca 12 cm.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Mér skilst að svona þunglynd hjón geti fundið ástina aftur við nýjar aðstæður í nýju búri... veit ekki hvort það hefur reynt á það með þessi. Hrikalega fallegir fiskar, hefði ekki hikað ef ég þyrfti ekki skóhorn til að koma fleiri fiskum í búrið!
Post Reply