240l búr til sölu. Með öllu..

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
elgringo
Posts: 62
Joined: 10 Mar 2008, 21:03

240l búr til sölu. Með öllu..

Post by elgringo »

Jæja nú þarf ég að selja búrið. Því ég er að fara að flitja úr landi.

Búrið er 240l, Það er aðeins rispað framglerið, hefur ekki truflað mig mikið.
Kröftug falldæla
300w hitari
3 perur. ein af þeim er gróðurpera. enginn sérstakur útbúnaður utam um þær samt, liggja í toppnum og lýsa vel niður.
LCD Timer fyrir ljósin, getur sett á progröm.
Co2 kerfi frá Nutrafin
flottur sandur.
Kröftug loftdæla og slanga sem blæs lofti úr eftir sér endilangri.
2 rætur, ein er eins og andlitið á galdrakellingu, hin er venjuleg og liggur.

Það er einhver gróður í því en hann er ekkert mjög fallegur vegna hvítbletta lyfjagjafar. komst hjá veikini á kosnað gróðursins.

2x Power heads, notaði einn til að dæla vatninu úr búrinu.

Skimmer rör, ekki í notkun, kann ekkert á það.

Fiskar: 1 stk lítill Oscar
1 stk Pleggi c.a 20 cm
1 stk tættur Skalli, lenti í Convict sem var tímabundið í búrinu.
3 stk flottir Bala hákallar, mjög flottir
1 stk Synadontis Catfish
5 stk Yoyo Bótíjur, einnig kallaðar pakistanskar bótíjur
2 stk bardaga fiska kellingar
svo nokkur stk sverðdragarar og Black mollyar.

Hér eru myndir viewtopic.php?t=4179&highlight=

sendið á mig tilboð í EP. Það kemur til greina að selja fiskana sér.

Kveðja Gummi
User avatar
elgringo
Posts: 62
Joined: 10 Mar 2008, 21:03

Post by elgringo »

upp
Hafmeyjugaurinn
Posts: 10
Joined: 22 Jun 2008, 00:32

....

Post by Hafmeyjugaurinn »

....
Last edited by Hafmeyjugaurinn on 20 Aug 2010, 12:17, edited 1 time in total.
User avatar
elgringo
Posts: 62
Joined: 10 Mar 2008, 21:03

Post by elgringo »

Ég er ekki viss. allavega hef ég ekki áhuga á 30 000 kr boðum. Ég tók það gróflega saman hvað ég hef eytt í þetta þessa 5 mánuði sem ég hef átt þetta og það er um 115 000 kr.

Þannig að ég vill ekki láta taka mig í bossann en ég vill vera sanngjarn.
kjell
Posts: 11
Joined: 03 Jul 2008, 23:12
Location: Grindavik

Post by kjell »

Hi
How mutch do you want for it. :?
Post Reply