Spurningaþráður Fiasko :D

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Spurningaþráður Fiasko :D

Post by Fiasko »

Komið sæl.

áhvað að búa til þráð fyrir spurningar sem ég mun sjá mig knúinn til að spyrja um í framtíðinni varðandi gotfiska(svona til að ég fylli ekki allt af nýjum þráðum) :D



Ég er með 20-30 gúbbýseiði sem ég hef verið að fiska uppúr "stóra" búrinu hjá mér og fært yfir í seiðabúr síðustu 2 vikur.

Það sem ég er að spá, er hvort ekki séu þónokkur afföll af gúbbýseiðum?
Eða komast flest á "fullorðins" aldur sem nást frá stóru fiskunum?


Vona að spurningin skiljist :D
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

mín reynsla... þónokkur afföll. Seiði sem þrífast ekki þ.e. éta ekki og stækka ekki, eitthvað drepst án þess að það sjáist neitt á þeim og síðan eitthvað af seiðum sem virðast bara vera hálf vansköpuð, skakkur hryggur eða eitthvað sem gerir það að það jafnvel borgar sig að "grisja" þau úr hópnum. Ef þú vilt enda með fallega og hrausta fiska þá borgar sig að vera dálítið miskunnarlaus.
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

eru þá seiðin að drepast á fyrsu 1-2 vikunumeða bara svona heilt yfir til "fullorðins" aldurs?
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það fer eftir svo mörgu

hve oft þú skiptir um vatn hjá þeim
hve oft þú gefur þeim
hvað þú hefur heitt hjá þeim
hvort þau séu vansköpuð eða veslast upp af öðrum orsökum
og hvort þau veikjast vegna sýkingar í búri
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Af 30 mundi ég að segja að það væru um 10 kannski 15 jafnvel sem að eru fallegir og 100% :)
Ef að einhver er með skakkt bak, skrítinn munn, þá er ekkert verra bara að sturta þessu eða gefa stærri fiskum :)
Fóðrun, vatnsskipti og það allt skiptir meira máli ef að þú vilt að þau stækki hraðar.
Auðvitað drepast aðeins færri ef að þú ert með dælu hjá seiðunum.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

ég mæli nú bara með því að þú fáir þér klessu af java mosa og látir bara survival of the fittest ráða :D ...

ég gerði það og ég er að fá fínustu fiska út úr þessu...
er að fikta mig áfram;)
Post Reply