Hugsanleg hvítblettaveiki? hvítir blettir á einum sverðdraga
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Hugsanleg hvítblettaveiki? hvítir blettir á einum sverðdraga
Ég var rétt í þessu að taka eftir hvítum blettum á einum sverðdraganum, kvk, eins og sést vonandi á myndunum hér fyrir neðan. Teljið þið að um hvítblettaveiki sé að ræða og hvort mælið þið frekar með að nota salt í búrið eða að kaupa meðal við þessu eða einhverja aðra lausn þar sem þetta er aðeins á þessum eina fiski?
Ég er með 65 lítra búr með 3 sverðdrögum, 2 platy, 3 ancistrum, 1 coryodoru og 1 skala. Var reyndar að bætast við einn black ghost í gær, föstudag, sem ég fékk í afmælisgjöf. (Veit að black ghost getur orðið mjög stór, tek á því þegar þar að kemur, stækka yfirleitt hægt)
Vatnsskipti hafa farið fram vikulega og skipt um ca. 15-20% af vatninu í hvert skipti og þar sem búrið var bara sett upp fyrr í mánuðinum, fyrir ca. 3 vikum (rúmlega) þá höfum við sett smá "stress zyme" og "stress coat" með í vatnsskiptunum skv. leiðbeiningum.
Ekki bestu myndirnar en henni virðist ekki vera vel við myndavélina.

Jóhann
Búinn að salta og hækka hitastigið ásamt því að skipta út meira vatni en venjulega, skipti út ca. 30% áðan, og þá er bara að vona að þetta hverfi fljótt og örugglega, hitastigið stendur núna í 27°C.Vargur wrote:Blettaveiki á byrjunarstigi.
5-6 matskeiðar af salti og hækkun á hita um 2-3° ætti að redda þessu.
Jóhann
Mér sýnist þetta vera að minnka á þessum eina fiski en samt er þetta ennþá til staðar, saltaði í búrið og hækkaði hitann þannig að hann hefur verið ca. 27-28°c, setti ca. 1 msk. af salti á hverja 10 lítra.
Í gær skipti ég síðan út ca. 15% af vatninu og saltaði aftur í samræmi við það.
Ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að halda áfram með saltið og skipta vatninu út frekar ört eða fara útí lyfjagjöf?

Ef þig vantar meiri upplýsingar þá fann ég hérna erlenda grein um þetta:ulli wrote:er ekki í lagi að nota sjávar salt?
http://www.cichlid-forum.com/articles/ich.php
Hellingur til um þetta vandamál sýnist mér, mismunandi innihaldsríkar greinar þó, þessi virðist nokkuð ítarleg.
Miðað við þær ráðleggingar sem ég hef fengið er það magnið sem á að nota, sést líka í öðrum þráðum á spjallinu, getur leitað að "salt" og "hvítblett" þá ættu þeir þræðir að koma upp.ulli wrote:er það matskeið af salti í hverja 10 lítra vargur?
Jóhann
Aðeins mótvægi við söltunaraðferðina sem að ég ætla alls ekki að halda fram að sé röng heldur bara mín reynsla.... ég fékk hvítblettaveiki í gullfisk, ég var með slatta af plöntum í búrinu og salt fer mjög illa með þær svo að ég einangraði hann og saltaði... allt eftir bókinni en hann endaði með því að drepast, þónokkru seinna fékk ég það sama í annan gullfisk... þetta eru stórir og fallegir fiskar svo að ég ákvað að taka ekki sénsinn í þetta skipti og fékk lyf, blettirnir voru horfnir eftir 2x5 daga kúra, ég gerði góð vatnsskipti fyrir, í millitíðinni og eftir meðferð eins og leiðbeiningarnar sögðu og setti svo kolafilter í dæluna til að hreinsa lyfið úr búrinu. Fiskurinn var í dálítinn tíma að jafna sig á eftir, uggarnir og sporðurinn urðu tættir, en hann jafnaði sig alveg. Ég hef aftur notað salt með góðum árangri við sundmagaveiki en í miklu minna magni en þarf í þessu tilfelli og þá notað maldonsalt, það er joðlaust.
ég hef prófað bæði salt og lyfjakúr í hvítbletta tilfellum og bæði virka alveg þræl vel.
salta þá bara eins og á að gera, 1 matskeið á hverja 10 lítra og notast þá við joð laust salt, kötlusalt er voða vinsælt hjá okkur fiskanördunum salt fer samt illa með sumar plöntur.
vil frekar nota salt heldur en lyf, þar sem sum lyf fara illa í suma fiska.

Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L