Gróðurbúrið mitt :)
Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Gróðurbúrið mitt :)
Ákvað að koma með nýjan þráð um búrið mitt enda ekki búin að koma með fréttir né myndir í alveg heillangan tíma
En ég er búin að fá mér fleiri tegundir af plöntum og búin að grisja helling þar sem að búrið drukknaði næstum því í plöntum á tímabili og fiskarnir áttu erfitt með að synda um búrið Enda held ég að þeir hafi verið alveg hrikalega ánægðir þegar ég tók mig til og hreinsaði aðeins til og búrið bara leit svo miklu betur út eftir það, en auðvitað klikkaði ég á að taka mynd af því eins og það var þá.
En það urðu heilmiklar breytingar og enn meiri þegar við skruppum í Dýragarðinn og keyptum fleiri plöntur enda orðin leið á að hafa alltaf bara sömu plönturnar sem að líta eiginlega allar eins út Sem sé nokkrar týpur af vallisneru.
En jæja við keyptum einhverjar plöntur sem að ég hef ekki hugmynd um hvað heita fannst þær bara flottar og það var nóg fyrir mig.
En jább ákvað að taka myndir í kvöld og þetta er afraksturinn smá laufblöð þarna við yfirborðið en mun taka það
Svona heildarmynd af búrinu eins og það er núna Er nokkuð ánægð með uppsetninguna , þó að kastalinn við bakið mun fá að fjúka bráðlega, orðinn eitthvað svo ljótur og ég komin með leið á honum
Svo mynd með fínu loftdælunni.
Smá nærmynd af þessum nýja gróðri sem að er þarna í miðjunni.
Önnur svipuð mynd
Hinum megin í búrinu, ekki eins plantað þar
Jæja læt þetta vera nóg af myndum í bili en vonandi er þetta nógu mikið plantað búr til að fá að fljóta með gróðurbúrunum

200L Green terror búr
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Átti að vera cabomba en fékk að sjá alvöru cabombu í Dýragarðinum og þær voru ekki eins þannig að ég er með einhverja aðra tegund sem að er samt ekkert ólík hinni. En keypti hana samt sem cabombu og stóð í þeirri trú hehe en finnst þessi samt flott en vex bara svo gríðarlega hratt maður hefur varla undan að klippa hanaLindared wrote:glæsilegt er þetta cabomba þarna til vistri?
200L Green terror búr
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Já mér finnst hún einmitt koma svo vel út, þó að hún sólbrenni stundum svolítið efst En er farin að hafa minna kveikt á búrinu og þá gerist það ekki eins Einnig er ég að ná smá vexti í stóru vallisneruna mína sem að sést ekki á myndunum þar sem að hún er alveg klippt niður greyið og er hægra megin í búrinu á bakvið stóru plöntuna þar en vonandi kemur einver vöxtur í hana og að hún verði græn, var eitthvað svo brúnleit og ljótLindared wrote:rosalega flott planta.
En já með að fleiri séu að fara út í plönturnar, það er bara svo svakalega skemmtilegt að hafa allt lifandi og sjá það stækka og dafna Skil ekki afhverju maður fór ekki í þetta fyrr hehe svo þarf maður bara að fá sér fleiri plöntur
200L Green terror búr
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Er með svona gróðurmold undir frá Tetru (completa substrate) Síðan er ég að gefa eitthvað plöntudót út í vatnið frá Tetru líka (planta min). Svo er ég með CO2 (nutrafin) með heimabruggi, er bara ekki alveg nógu dugleg að skipta um það en ætla að breyta því núna og hugsa vel um bruggið mittHrafnkell wrote:Hvað er rútínan við búrið og hvaða næringu ertu að gefa?
Ertu með næringarríkt botnlag? CO2?
"Sólbrennda" Sessiliflora þekki ég. Það sýnist mér vera tákn um næringarskort. Hún litast svona nálægt ljósnu hjá mér frekar ef næringu skortir.
Svo reyni ég að skipta á svona viku-10 daga fresti um svona 30-50%.
En með næringaskortinn, hvernig laga ég það? er eitthvað spes efni sem að þarf að setja út í vatnið eða eitthvað álíka eða er þetta plantamin nóg, var ekki búin að gefa það í svolítinn tíma því að ég átti það ekki til eða er eittvað svona sem að ég set bara á botninn fyrir ræturnar, kannski betra?
200L Green terror búr
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Jú þetta gæti verið þessi Hygrophila difformis, kíkti á tropica og fannst mér þær ansi líkarSven wrote:Flott búr hjá þér , gaman að sjá hvað það eru alltaf fleiri að fara í gróðurinn.
Plantan vinstra megin er sessifolia.
Nýja plantan þín í miðjunni, er þetta ekki Hygrophila difformis?
200L Green terror búr