Vantar hjálp sem fyrst

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Vantar hjálp sem fyrst

Post by Fiasko »

Komið sæl.


Ég er í frekar erfiðri stöðu, veit ekkert hvað ég á að gera.

Þannig er mál með vexti að ég keypti 2 SAE og 2 Molly fiska í síðustu viku.
Fljótlega eftir það kom upp hvítblettaveiki í búrinu hjá mér, sem kom með Molly fiskunum.
Ég þreif dæluna,skipti um 20% af vatninu,saltaði búrið og fór svo daginn eftir og fékk mér lyf(contraSpot) og setti það í búrið samkvæmt leiðbeiningum.

Svo núna rétt áðan þá sá ég að 1 SAE fiskurinn var dauður, og allir hinir fiskarnir hjá okkur virtust hanga við yfirborðið í búrinu(líka SAE fiskurinn sem lifir)nema Anchistra sem ég er með, hún skýst samt upp á yfirborðið annað slagið mjög snögt niður aftur.

Það sem ég er að veltya fyrir mér er, Hvort það sé að verða súrefnislaust búrið hjá mér? og hvort það geti fylgt hvítblettaveikinni.Eða einhverjum aðgerðum í sambandi við þessa veiki.


Allavega ef þið hafið lent í þessu að fiskar hangi bara við yfirborðið,jafnvel botnfiskar, megið þið gefa mér ráð um hvernig ég get kippt þessu í lag hið fyrsta.

Takk fyrir.


P.S. Er þegar búinn að skipta um u.þ.b. 20% af vatninu í núna þegar ég varð var við þetta.
User avatar
whapz
Posts: 160
Joined: 08 Jul 2008, 23:57
Location: Árbær

Loftdæla..

Post by whapz »

Var svolítið að lenda í þessu þegar ég var að byrja í fiskum en það var alltaf útaf því að það vantaði bara loft í búrið.. Mundi fá mér loftdælu sem fyrst ef þú ert ekki þegar með það við búrið..
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

Var að setja upp loftdælu rétt í þessu sem við vorum með í seiðabúri hjá okkur.
User avatar
whapz
Posts: 160
Joined: 08 Jul 2008, 23:57
Location: Árbær

Post by whapz »

Fiasko wrote:Var að setja upp loftdælu rétt í þessu sem við vorum með í seiðabúri hjá okkur.
Ok glæsilegt þá held ég nú að þetta fari að líta betur út..
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

Vona það.
Leiðinlegt að vera að missa marga fiska :(
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þú ættir að sjá muninn mjög fljótt eftir að þú setur loftdæluna í. Sum lyf get minnkað súrefnisinnihald vatns og því er mjög mikilvægt að auka hreyfinguna á vatninu á meðan á lyfjagjöf stendur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Post by Fiasko »

Takkk fyrir þetta báðir tveir.
Post Reply