Tjarnar pælingar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Tjarnar pælingar

Post by Svavar »

Þannig er það að ég er aðeins að spá í að setja upp litla tjörn hjá mér og er að spá í að hafa hita undir tjarnardúknum (álpex rör) sem fer fyrst í gegnum gróðurhúsið mitt og síðan myndu síðustu hitaeiningarnar nítast í að halda pollinum volgum.
ég er hinsvegar að spá í hvernig best sé að leisa hreinsunar málin þar sem ekki verður sírensli í pollinn hjá mér.. góð ráð vel þeginn.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Jörðin myndi fljótlega stela öllum hitanum úr rörunum og þú myndir fá vök yfir tjörnina yfir veturinn

Mæli frekar með því að láta vatnið beint ofan í tjörnina og setja yfirfall á hana, með því lostnar þú við það að þurfa brjóta ísinn í tjörninni á veturna og lostnar einnig við það að þurfa gera vatnskipti
Yfirfallið sér líka um að hreinsa yfirborðið á tjörninni

Svo er til stórt úrval á hreinsibúnaði fyrir tjarnir í Dýralíf
Kv. Jökull
Dyralif.is
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Það að notast við sírensli er varla í boði hjá mér, þannig að ég hef lítið val annaðhvort lukkast þetta svona eða þarna verður blómabeð :lol: gæti reyndar þítt það að þetta verði eingöngu sumartjörn og fiskana verði að fóstra innandira á veturnar. En takk fyrir svarið :wink:
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Gætir líka prufað að setja hitann undir tjörnina og ef það virkar ekki þá er til sérstakur tjarnar hitari sem er tengdur við hreinsibúnaðinn
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Getur notað varmaskipti líka.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já það er góð hugmynd, tengir hann síðan bara við hreinsikerfið
Kv. Jökull
Dyralif.is
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Svona svo ég fari nú nánar út í þetta allt saman þá er ég með gróðurhús við hliðina á væntnlegri tjörn, undir öllu gróðurhúsinu er hitalögn úr álpexi. það sem ég var að hugsa um var að nota síðustu hitaeiningarnar í tjörnina, ég vek athigli á því að þetta er ekkert afall frá húsinu heldur um 70°C heitt vatn tekið beint af öfnakérfi húsins gólfið er sem sagt einn ofn þannig að tjörnin myndi nýta afallið ef svo má segja (vona að þetta komist til skila) Hitalögnin á svo að fara undir tjörnina (undir dúkinn) og eftir því sem ég best veit þá í Skagafirði leitar hitin upp. hvort þetta er svo nægilegt það verður að koma í ljós.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hitinn leitar svosem upp, en það er ekki alveg málið - jörðin er miklu stærri varmamassi en tjörnin og á eftir að soga miklu meiri orku úr heldur en tjörnin.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

setja eitthvað einangrandi undir rörin og hitin leitar upp
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Gudmundur wrote:setja eitthvað einangrandi undir rörin og hitin leitar upp
var að fara að skryfa þetta svo sá ég svarið þitt :P
steinull eða glerull.eina þvær rollur kanski með svona til vara?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Það er alveg hægt að tengja varmaskipti við þessi rör

En já einangrun undir rörin
Kv. Jökull
Dyralif.is
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Tjékka á þessu með rollurnar það fara framm réttir hérna þessa helgina, aldrey að vita nema að frammbærilegar "ROLLS" fynnist.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

Mæli ekki með steinull eða glerull bæði þessi efni verða fljótlega að blautri drullu :roll: hvít einangrunarplast er málið undir rörin ef það verður valið.
en sniðugast er að nota varmaskiptir tengdan við hreynsibúnaðinn með avtb loka og ekki er verra að leggja túr að honum líka sem er hægt að skjóta inná að vetri til.
ein smá spurning ef þú ert að hugsa um að nota allan retúrinn bæði í tjörnina og garðhúsið ertu ekkert hræddur um að það hefti ofnakerfið í húsinu ertu að nota 25mm álpex í garðhúsinu.
Ef ekki þá ættir þú ekkert að pæla meira í þessu nema kanski útbúa sér kerfi fyrir tjörnina.
ein önnur spurning enn ekki kemur 70 gráðu heitt vatn frá húsinu ertu ekki að meina inní það eðlilegt er um 25 gráður frá húsum.En ef þú ert með 70 gráður þá getur þú leikið þér annsi mikkið með það þar til þú lagar ofnakerfið í húsinu hehehehe.ílla farið með heitavatnið í skagafirðinum ef þetta er rétt.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Það hlýtur að vera til vatnsþolinn einangrunardúkur, sérstaklega til að setja í jörð... bara common sense? Hringja í Byko!
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

náhvamlega samála þér hvít einangrunarplast............ :P
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Ég verð með þá í raun bæði gróðurhúsið og tjörnina á ofnakérfinu. við erum ekkert að tala um neitt afall hérna. það er notað annarstaðar í sjnóbræðslukérfi, heitavatnið byrjar bara að fara í gegnum gróðurhúsið og færi þá væntanlega síðast undir tjörnina ef af verður og síðan aftur inn á ofnakérfið og þaðan í snjóbræðslukérfið ásamt öllu hinu vatninu sem kémur frá íbuðarhúsinu þannig að fyrst er vatnið um 60-70°C þegar að það kémur í lagnirnar undir gróðurhúsinu og þar fellur hitinn væntanleg eitthvað og endar svo með að fara undir tjörnina og áfrmm aftur inn í íbúðarhúsið inná retúrinn á ofnakérfinu. ég er semsagt ekki að hugsa um að nota neitt afall heldur ofnavatnið sjálft. réttara sagt ég er að nota ofnavatnið sjálft til að hita upp gróðurhúsið þessa dagana. við erum að tala um tjarnar sýnishorn sem er kanski tonn af vatni :roll:
það á reyndar eftir að ganga frá hitastýringunni á húsinu þannig að ég sé ekki hitan á vatninu sem er að koma í gegnum það (sá búnaður liggur inní gróðurhúsi ótengdur en stendur til bóta) en lögnin er vel volg þegar að maður heldur utanum lagninar, það er enginn að tala um að halda tjörninni heitri yfir vetra en halda henni vel frostfrírri og það dugar gullfiskum. þeir eru jú í grunninn kalvatnsfiskar.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Post Reply