Flutningar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Flutningar

Post by bryndis »

Hvernig er best að fara að með að flytja fiskabúr? Kærastinn minn er að flytja, hann er reyndar ekki með marga fiska, en er með 60l búr. Hvað er best að gera? hann ætlar líka að skipta um sand í leiðinni.. hann er ekki að flytja langt, bara svona 4-5km. Ættum við að geyma e-ð af vatninu (þeas fyrir utan það sem við geymum fiskana í), eða bara bíða með að hreinsa dæluna og láta hana sjá um að gera nýja vatnið visthæft?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Bara tæma búrið, henda sandinum fyrst hann ætlar að skipta um hann.
Svo er mikilvægast að snerta dæluna ekki í amk viku fyrir flutninga og passa að hún verði ekki á þurru og sé helst í gangi, t.d. í fötu allan tíman nema akkúrat þegar það er verið að flytja hana milli húsa.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

keli wrote:Bara tæma búrið, henda sandinum fyrst hann ætlar að skipta um hann.
Svo er mikilvægast að snerta dæluna ekki í amk viku fyrir flutninga og passa að hún verði ekki á þurru og sé helst í gangi, t.d. í fötu allan tíman nema akkúrat þegar það er verið að flytja hana milli húsa.
Nákvæmlega.
Ace Ventura Islandicus
Post Reply