Ég er loksins farin að sjá að þörungasprengjan sé að hjaðna hjá mér þá get ég ekki betur séð að ég sé komin með hvítblettaveiki í discusana.... einn var í felum þegar ég kom heim í dag og mér finnst ég sjá punkta á fleirum

nú á ég bara Tetra GeneralTonic (ekki talað um ich) og Tetra GoldMed sem er fyrir ich meðal annars en kaldavatnsfiska.
Þegar ég skoða innihaldslýsinguna þá er GoldMed með Formaldehyde 1,54 g/100ml og Malachite green 14,43mg/100ml. en ConraIck, Formaldehyde 3,20g/100ml og Malachite green 7,88mg/100mg. Hlutföllin eru semsagt öfug. Á ég að skella GoldMed í búrið eða bíða til að fá hitt á morgun?
