Hvað passar með gullfiskum?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
hemmi
Posts: 15
Joined: 07 Jul 2008, 15:53

Hvað passar með gullfiskum?

Post by hemmi »

Er með Tvo gullfiska og plegga. Hvað get ég haft með í búri með þessum félögum?
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

ekkert annað þar sem Gullfiskar lifa í kaldara vatni en aðrir fiskar
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

gullfiskar eru kaldvatns fiskar og kjósa helst hitastig allt frá 12-18 gráðum en þeir þola alveg að vera í 20-23 stiga hita. en pleggi eða Hypostomus plecostomus er hitabeltisfiskur og kýs að vera í 25 -27 gráðum. auk þess þá verða þeir töluvert stórir eða 30 til 40 cm. þurfa ekki minni búr en 300L . það sem ég er að segja er að gullfiskar og pleggar passa ekki saman.
Last edited by Elma on 05 Oct 2008, 18:04, edited 1 time in total.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
hemmi
Posts: 15
Joined: 07 Jul 2008, 15:53

Post by hemmi »

Samt eru þeir saman í búri í Fiskó og það var ekki sett út á að ég hafi keypt þá saman ásamt búrinu og sagst vera alger nýgræðlingur á þessu sviði.
Ég er ekki að misskilja, pleggi er svona glersuga er það ekki?
Nú er ég alveg lost!!! :shock:
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það eru til margar, margar tegundir af pleggum, kallast ekki glersugur.
nema að þú sért með kínverska glersugu sem að er ekki pleggi, ertu með mynd af plegganum, sumir geta orðið metri...p
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þeir eiga það til að hanga einstöku sinnum á glerinu, en eru ekkert mikið að stunda það. nema ef það er þörungur á glerinu sem þeir geta smjattað á. þeir eru ekki glersugur.
en til að svara hvað passar með gullfiskum þá eru það aðrir gullfiskar og koi.
Last edited by Elma on 05 Oct 2008, 18:16, edited 1 time in total.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
gunnarfiskur
Posts: 298
Joined: 18 Jun 2008, 15:30

Post by gunnarfiskur »

ég er með ameriku bur i 28 gráðum og i þvi er gullfiskur sem er bara i finu fjöru og stækkar á fullu
hemmi
Posts: 15
Joined: 07 Jul 2008, 15:53

Post by hemmi »

Þetta er svona grey sem étur eimitt þörunga eins og Lindared segir, fann mynd af eins fisk með aðstoð google og þá er hann kallaður bristlenosed pleco
http://farm1.static.flickr.com/56/15280 ... d9.jpg?v=0

Er það kallað Pleggi?? Það er best að hafa rétt nafn á greyinu... :oops:

Ég fæ mér þá bara annan gullfisk, bara í öðrum lit til tilbreytingar :D
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

ýmsar tegundir til sem passa með gullfiskum
bara spurning með búrastærð
og hvort gullfiskurinn sé með náttúrulegt útlit eða afmynduð feitabolla

sogmunni,glersuga,botnfiskur getur allt verið sama tóbakið
flestir sogmunnar festa sig einhvern tíman á glerið og þá eru þeir að sjúga gler = glersuga he he
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hemmi wrote:Þetta er svona grey sem étur eimitt þörunga eins og Lindared segir, fann mynd af eins fisk með aðstoð google og þá er hann kallaður bristlenosed pleco
http://farm1.static.flickr.com/56/15280 ... d9.jpg?v=0

Er það kallað Pleggi?? Það er best að hafa rétt nafn á greyinu... :oops:

Ég fæ mér þá bara annan gullfisk, bara í öðrum lit til tilbreytingar :D
bristlenose eða brúsknefur á íslensku. þekktastur sem Ancistra eða ancistrus. er ekki kallaður pleggi í daglegu máli. eins og síklíðan sagði þá eru til margar tegundir af pleggum. en þetta er mjög duglegur fiskur við að éta óétinn mat og éta einhverjar tegundir af þörung sem festist á gler og aðra hluti í búrum. þarf samt að gefa þeim botn töflur öðru hvoru og ágæt að gefa þeim gúrkur, gott að sökkva þeim með hreinum gafli eða skeið.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
hemmi
Posts: 15
Joined: 07 Jul 2008, 15:53

Post by hemmi »

Hehe þetta eru svona afmyndaðar feitabollur (Oranda gullfiskar)
Búrið er 125 l og fiskarnir eru um 15 cm frá munni að aftasta enda sporðsins.....
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Kallaðu þetta bara Brúsknef/ancistru eins og flestir :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
hemmi
Posts: 15
Joined: 07 Jul 2008, 15:53

Post by hemmi »

Fyrst ég er að bomba yfir ykkur spurningum...
Hvað geta svona fiskar orðið gamlir? Báðar tegundir á ég við.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eldgamlir við góðar aðstæður.
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Post by bryndis »

Heyrðu, litla systir mín er einmitt með gullfiskabúr, og finnst alveg glatað að hún geti bara haft gullfiska. Svo við fórum í dýraríkið og athuguðumk hvort það væri e-ð sem þolir kaldara vatn, og okkur var bent á zebra danio, og annan alveg eins nema bara með doppur, leopard e-ð giska ég á :)

Svo fórum við í fiskó og þar sá ég að bardagafiskur var með gullfiskunum. Sá sem var að vinna þar sagði að bardagafiskar væru mun harðgerðari fiskar en gullfiskarnir, og gætu þessvegna lifað í pollum. (sem gæti passað, ég er búin að eiga bardagafisk í 1,5 ár og alveg þangað til núna fyrir stuttu var hann í lítilli kúlu (pínulítilli) á skrifborðinu mínu. Stundum þegar mamma kom inn í herbergi hafði ég gleymt glugganum opnum og ekki búin að vera heima í 1-2 daga, svo búrið var orðið ískallt, hún hitaði það alltaf upp, en fiskurinn þoldi þetta alltsaman).

Svo núna er litlasystir mín með 2 orange gullfiska, 2 aðeins "grennri", 2 zebra danio og einn doppóttan, 1 bardagafisk, og 1 ancistru. Orðið aðeins fjölbreyttara :)
Post Reply