"fallax" HJÁLP

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

"fallax" HJÁLP

Post by RagnarI »

ég keypti mér procambarus sp. (oft kallaður fallax) fyrir tæpum tveimur mánuðum, var fyrst með hann í sér búri en nú er hann bara í 60 lítra búrinu með öllum fiskunum, málið er að hann hefur ekkert hrygnt á þessum tveimur mánuðum. hvað þarf maður að gera til þess að hnann hrygni?? hann er um 6 - 7 cm langur
Last edited by RagnarI on 17 Nov 2008, 16:08, edited 1 time in total.
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Bíða bara rólegur :-) þetta fer allt að koma
Minn fiskur étur þinn fisk!
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

já Arnar þú hafðir rétt fyrir þér hann hrygndi á fimmtudaginn. þar sem þú ert nú forspár, gætirðu þá sagt mér hvenær þetta klekst út? ekkert endilega Arnar samt, má hver sem er segja mér það
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

eftir nokkra daga bara, svo verða þetta pínu lítil humar seiði sem eru ennþá föst undir honum svo losar hann þetta eftir einhverjar vikur held ég, svo til að hjálpa honum er best að gefa fjölbreytt fóður :-)
Minn fiskur étur þinn fisk!
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

hann er að éta new life spectrum botntöflur, javamosa, TetraVEG grænfóðursflögur, TetraMin, fiskaflögur og krill inn á milli, er það ekki bara ágætlega fjölbreytt?
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hljómar vel. Sumir vilja reyndar að skelfiskur fari ekki vel í humra, ég veit ekki hvað er mikið til í því en sleppi því að gefa mínum skelfisk.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

hann á að vísu ekkert að éta þennan krill neitt sérstaklega , hann er fyrir fiskana en þeir eru bara svo lengi að borða hann, hann fær svona 1 krill í gjöf (sem er einu sinni í viku)

en krill er ekki skelfiskur, krill, krabbar, humrar og rækjur eru krabbadýr, skelfiskur er eins og kræklingur og svoleiðis dót
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Jámm rétt hjá þér - meinti rækjur og skyld dýr.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Nota bara þennan þráð í staðin fyrir að stofna nýjan.

Ég held að Humarinn okkar sé búinn að hryggna. Hafði ekki séð hann á ferli í einhverja daga, svo að ég lifti upp hellinum hans og sá ekki betur en að halinn á honum hafi verið að skýla eggjum, og í ofanálag trylltist hann alveg

Spurningin er, er óhætt að færa hann í annað búr strax, eða á ég að bíða þar til hryggning er afstaðinn? Vil helst ekki að Síkliðurnar hámi í sig seyðin þegar þau koma
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það ætti að vera í lagi að færa hann svosem..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

jæja þá held ég að þetta sé klakið, amk lítur ekki út eins og egg lengur , á morgun eru akkurat 3 vikur síðan hann hrygndi, og mér fannst ég sjá hreyfingu í þessu áðan, ætti ég að færa hann í annað búr?
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

færði hann í annað búr og nú er fullt af litlum humrum út um allt á ég að taka þann fullorðna uppúr ?
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

RagnarI wrote:færði hann í annað búr og nú er fullt af litlum humrum út um allt á ég að taka þann fullorðna uppúr ?
Best að vera ekki að stofna nýjan þráð, ég er með sömu spurningu um humarinn minn, Færði hann í 10L búr í gær, mátti ekki tæpara standa því hann sleppti seyðunum í nótt.......s.s á maður að taka stóra upp úr, eða bara hafa familíuna saman í búri?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Myndi taka stóra uppúr ef þú vilt halda öllum seiðunum. Annars er líklegt að slatti lifi þótt stóri sé með þeim, sérstaklega ef það er nóg af felustöðum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

svo myndi ég kíkja á hverjum degi í dæluna. ég var með svona humra og þeir voru ALLTAF að fara í dæluna og voru í svampinum fastir. var með 2 svona fallax og þeir hryngdu alltaf báðir á sama tíma og á tímabili taldi ég 120 kvikyndi í búrinu (20ltr)
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Ég færði stóra aftur yfir í stóra búrið, nú á ég fullt af humrum!! Diddi, ég tók dæluna úr litla búrinu, enda soguðust nokkrir inn í hana :)

En hvað svo, gaman að sjá alla þessa litlu Humra, en hvað á maður svo að gera við kvikindin? ég get ekki haft um 100 humra í stóra búrinu!! og 10 lítra búrið er frekar lítið fyrir svona marga. Hvað hafa menn/konur verið að gera við þetta, ætli gæludýrabúðir vilji þetta gefins?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég er til í svona gefins - skatan mín er vitlaus í humra :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

hlb wrote:Ég færði stóra aftur yfir í stóra búrið, nú á ég fullt af humrum!! Diddi, ég tók dæluna úr litla búrinu, enda soguðust nokkrir inn í hana :)

En hvað svo, gaman að sjá alla þessa litlu Humra, en hvað á maður svo að gera við kvikindin? ég get ekki haft um 100 humra í stóra búrinu!! og 10 lítra búrið er frekar lítið fyrir svona marga. Hvað hafa menn/konur verið að gera við þetta, ætli gæludýrabúðir vilji þetta gefins?
ég tók bara svampinn og og það úr dælunni og lét hana bara hafa hreyfingu á vatninu. Humrarnir drepast ekkert þegar þeir fara í gegnum dæluna. (Hef heyrt að það verður að vera hreyfing á vatninu hjá humrum)
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

hlb wrote:Ég færði stóra aftur yfir í stóra búrið, nú á ég fullt af humrum!! Diddi, ég tók dæluna úr litla búrinu, enda soguðust nokkrir inn í hana :)

En hvað svo, gaman að sjá alla þessa litlu Humra, en hvað á maður svo að gera við kvikindin? ég get ekki haft um 100 humra í stóra búrinu!! og 10 lítra búrið er frekar lítið fyrir svona marga. Hvað hafa menn/konur verið að gera við þetta, ætli gæludýrabúðir vilji þetta gefins?
:púki: týpískur fiskanörd..... gerir allt til að fá kvikindin til að fjölga sér og veit svo ekki hvað hann á að gera við ungana! (hehh ekki það að ég eigi allt í einu 30 endlergubbí seiði!)
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

gudrungd wrote:
hlb wrote:Ég færði stóra aftur yfir í stóra búrið, nú á ég fullt af humrum!! Diddi, ég tók dæluna úr litla búrinu, enda soguðust nokkrir inn í hana :)

En hvað svo, gaman að sjá alla þessa litlu Humra, en hvað á maður svo að gera við kvikindin? ég get ekki haft um 100 humra í stóra búrinu!! og 10 lítra búrið er frekar lítið fyrir svona marga. Hvað hafa menn/konur verið að gera við þetta, ætli gæludýrabúðir vilji þetta gefins?
:púki: týpískur fiskanörd..... gerir allt til að fá kvikindin til að fjölga sér og veit svo ekki hvað hann á að gera við ungana! (hehh ekki það að ég eigi allt í einu 30 endlergubbí seiði!)
:P já verð víst að viðurkenna nördar nafnbótina :roll: En næst þegar humarinn minn fjölgar sér, verða síkliðurnar bara saddar og sælar í nokkra daga, læt "náttúruna" hafa sinn gang :twisted:
Post Reply