Það kom að því að kvikindishúmorinn beit mig í bakhlutann, hamstradjókið hefur farið eitthvað fyrir brjóstið á gæjanum sem sér um karmað. Ég hef talið mig vera með frekar háann hryllingsstuðul en þegar þetta skreið upp á hendina á mér þegar ég tók co2 mixerinn upp úr fiskabúrinu þá lá við að ég kæmi með eitt týpískt smápíuöskur.
fallegar flugur og flott fljúgandi gæludýr í stofunni
þú verður bara að finna aðrar minni flugur fyrir hana til að veiða he he
Hvernig í ósköpunum fékk ég þetta kvikindi í búrið? (sýnist á öllu að þetta berist ekki með köttum! )
Damsel flugur eins og margar tegundir hrygna í vatn
damselinn hrygnir á gróður og þar klekst kvikindið út
síðan líður oftast um eitt ár þar til hún skríður upp og þá fer hún úr hamnum og breytist í fluguna sem er frekar glær til að byrja með og fær síðan liti á nokkrum dögum
þú hefur fengið egg eða litla lirfu með gróðri
haldið þið að kvikindið sé ekki sprellllifandi, búin að skipta um ham og er að þurrka vængina! Nú hef ég mestar áhyggjur af því hvernig ég held henni lifandi!
töff!! ekki á hverjum degi sem svona kvikindi eru á landinu.
fann þetta um damsel eating habitat
After moulting several times, the winged adult emerges and eats flies, mosquitoes, and other small insects. Some of the larger tropical species are known to feed on spiders, hovering near the web and simply plucking the spider from its nest.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Sóla wrote:Það eru svona litlar flugur sem sækjast í plöntuna í seldhúsglugganum?
Ætli þær séu ætilegar fyrir kvikindið?
Held að það sé bara akkúrat það sem mig vantar!
fann reyndar dordingul í kryddjurtinni í eldhúsglugganum og blöðin voru öll útí pöddum, skellti því bara í krukkuna! held samt að flugur séu vinsælastar... Þegar ég kom heim úr vinnunni var flugan bara græn og vængirnir alveg eins á litin en núna er hún komin með dökkar rendur og vængirnir glærir og flottir
skásta myndin sem ég náði með því að halda á krukkunni með annarri og myndavélinni með hinni! þori ekki að taka hana úr ef hún skildi reyna að flýja!
spáið í að fara í vinnuna alveg rosa spenntur...... ég er með flugu í krukku heima!
ok.... ég formlega óska eftir búri fyrir flugu.... verður innréttað sem blómapottur! mjööööög ódýrt, gefins eða lánað. eina skilyrðið er að það sé lok og það sjáist inn í það.....
ég er búin að setja kvikindið í svona plastbox frá dýra***ríkinu.... átti það fyrir (þ.e. keypti það ekki sérstaklega ) það er búið að skíra hana karínu... mold, lúsétin iðandi kryddplanta og smá vatn í boxi.... er búin að sjá hana flögra um (einn af yndislegum, þaulsetnum gestum barnanna minna bankaði bara rösklega í búrið!) ef þið viljið bjóða í hana hefði ég gaman af því að vita hvað gangverðið er á flugum!