Ég tók mig til og smíðaði 3 hella fyrir ankistrur að koma sér fyrir í... Þær tóku ansi vel í það því um 30klst eftir að ég setti fyrsta hellinn í búr hjá mér hrygndu þær í hann.
Það sem þarf í hellagerðina:
Nýútklakin seiði, rétt komin með sporð og augu.. Ekki alveg besta myndin, en það er ekki alveg sjálfsagt að taka mynd af kvikindum sem eru í myrkri með smá baklýsingu..
Nún er ég bara að velta því fyrir mér hvort ég eigi að taka hellinn og setja sér svo seiðin komist á legg eða hvað. Hellirinn er í búri með discusapari..
Last edited by keli on 20 Nov 2008, 23:43, edited 1 time in total.
Ef þú villt vera öruggur þá taktu hellin og settu sér,annars held ég að það sé í lagi að láta þetta vera með diskunum,held að þeir láti þær vera,hef sjálfur verið að henda pínu litlum ancistru seiðum í diskabúrið og þeir láta seiðin alveg vera og sýna engan áhuga á að éta greyin
glæsilegt.....ég ætti kannski að prófa þetta...er ekki búinn að fá ancistruparið mitt í hrygningu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Setti reyndar auka "helli" í búrið áðan ... sjáum hvað setur þar.
pípó wrote:Ef þú villt vera öruggur þá taktu hellin og settu sér,annars held ég að það sé í lagi að láta þetta vera með diskunum,held að þeir láti þær vera,hef sjálfur verið að henda pínu litlum ancistru seiðum í diskabúrið og þeir láta seiðin alveg vera og sýna engan áhuga á að éta greyin
Jamm, þetta er reyndar í svo litlu búri, væri líklega auðveldara fyrir diskana að pikka upp seiðin og éta... Prófa kannski að henda þessu með sverðdrögurunum bara, þeir eru amk ekki búnir að éta seiðin sem ég fékk hjá þér um daginn. Voru þau ekki frekar ung?
Vika liðin frá hrygningu og seiðin eru alveg að verða búin með kviðpokann þannig að ég færði hellinn í sér búr (og seiðin og karlinn með) Deila núna húsnæði með fleiri ankistruseiðum og 5 sverðdrögum.
Einhver spurði mig hvort hellarnir væru úr við - en nei, ég gerði hellana úr flísum. Tómt fjandans vesen að brjóta svona margar flísar
Í öðrum fréttum þá varð ég mér úti um fleiri, en aðeins fágætari ankistrur, eða Hypancistrus Contradens, L201. Pósta myndum af þeim hérna við tækirfæri.
Ég er búinn að vera lengi að reyna að koma mínum af stað og það gekk loksins um daginn þegar ég hvolfdi blómapotti í búrið.
Parið hryngdi örskömmu síðar og nú eru seiðin farin að álpast um búrið.
það er fátt einfaldara en að skera flísar
af hverju var ekki hringt í aðal flísara landsins ?
hefði skorið þetta niður á 12 sek. allt saman og hefði verið hálfnaður að setja á vegginn áður en þú hefðir fattað hvað var í gangi hehe
Gudmundur wrote:það er fátt einfaldara en að skera flísar
af hverju var ekki hringt í aðal flísara landsins ?
hefði skorið þetta niður á 12 sek. allt saman og hefði verið hálfnaður að setja á vegginn áður en þú hefðir fattað hvað var í gangi hehe
Heyrðu fínt mál, ég er að fara í þetta, hvenær kemur þú ?
Það á ekkert að vera neitt mega mál að rækta þá - en það koma fá hrogn og það er langt á milli hrygninga. Þeir eru náskyldir hypancistrus zebra og haga sér að flestu leiti svipað.