Ný síkliða, Ocellaris Peacock Bass mynda þráður.

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Ný síkliða, Ocellaris Peacock Bass mynda þráður.

Post by Jakob »

Góðan Dag kæru spjallverjar.
Jólagjöfin frá mér til mér er komin í hús, 1stk. Ocellaris Peacock Bass eða Cichla Ocellaris. Fékk hann á góðum prís og hann er hress fyrir utan smá stress. Ætla að hafa hann á lifandi þangað til að hann verður 10cm s.s. tvöfaldað stærð sína.
Myndir tomorrow, en hér er mynd af einum slíkum fullvöxnum 60cm.
[img]http://www.fishfiles.net/up/0811/wbkj4l ... ile[1].jpg[/img]
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

ég er alveg hættur að skilja þessa fiskamenningu
hvað var aftur búrið þitt margir metrar á lengd ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Búrstærðin skiptir sennilega litlu máli, verður hann ekki hvort sem er seldur eftir mánuð eins og annað. :wink:
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Nei, hann verður það ekki. Anyways, ekki ræða það í þessum þræði takk. :)
Búrið er 1.5 metrar á lengd gummi. :wink:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Lætur nú Stoppar þennan upp þegar hann nær 50 - 60cm :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Veit það nú ekki, annars kemur það vel til greina. :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Vargur wrote:Búrstærðin skiptir sennilega litlu máli, verður hann ekki hvort sem er seldur eftir mánuð eins og annað. :wink:
spurning um að setja upp smá veðmál hjá spjallverjum hvað þessi endist lengi :)
-Andri
695-4495

Image
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

kippa af bjór að hann verði farin innan við 3 mánuði. 8)

það legg ég undir.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Veðjið eins og þið viljið, ulli þú tapar veðmálinu :P
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Ari
Posts: 292
Joined: 11 Jan 2008, 20:46
Location: 110 rvk

Post by Ari »

kvað þarf svona fiskur stórt búr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

furðulegt að gera myndaþráð án mynda..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það koma nú myndir á eftir :roll:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Til hamingju með fiskinn Jakob, gangi þér vel
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Takk Guðjón, gangi þér líka vel með EB Jack Dempsey :wink:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Lítur út fyrir að ég sitji einn á þessari kippu :alki:
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

[quote="Síkliðan"]Takk Guðjón, gangi þér líka vel með EB Jack Dempsey :wink:[/quote

Guðjón kominn með Electrik blue ? stærð ? verð ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Gudmundur wrote:Guðjón kominn með Electrik blue ? stærð ? verð ?
Hann er ekki nema 3-4 cm, kostaði ca. 5000 kr.

Fékk mér líka C. bocourti og Vieja argentea í svipaðri stærð.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Gudjon wrote:
Gudmundur wrote:Guðjón kominn með Electrik blue ? stærð ? verð ?
Hann er ekki nema 3-4 cm, kostaði ca. 5000 kr.

Fékk mér líka C. bocourti og Vieja argentea í svipaðri stærð.
frábært
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hvað fékkstu þér marga? Komu margir?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Dude
Posts: 21
Joined: 06 Oct 2008, 18:16

Post by Dude »

Gudjon: pantaðiru EB í gegnum einhverja verslun?
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Dude wrote:Gudjon: pantaðiru EB í gegnum einhverja verslun?
Ég pantaði einn í gegnum tjorvar.is, gallinn við það er að þá er maður að kaupa blint og veit ekkert hvernig eintak mað fær.
Minn virðist vera ágætur.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fékk líka Bassann frá Tjorvari, fín verslun hjá honum þótt að það sé dáldið þrögnt í bílskúrnum hjá honum :-)
http://verslun.tjorvar.is/index.php?cPath=165_314
Hér er linkurinn :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þessi myndaþráður þinn er að gera álíka góða hluti og gyllinæð
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Myndir
Image
Image

Jújú, í dýraríkinu svo umtalaða var þessi seldur sem Jack Dempsey, kom með mér heim í poka :P
Image
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Hann lítur út eins og hornsíli svona lítill :D, verður gaman að sjá hann þegar hann stækkar :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Já það verður helvíti gamall.
Er búinn að staðfesta að þetta sé annað hvort Cichla Ocellaris eða Cichla Monoculus. :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

jæja hvernig væri update á þennan? Það er komnar rúmar tvær vikur og mér leikur forvitni á að vita hvort þú eigir hann enn :D
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Einmitt - ég vil update.

Og ekki bara útaf stríðni, ég vil að þú reynir að halda þessum í svolítinn tíma, þetta er spennandi fiskur, gaman að fylgjast með svona monsteri.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Urriði
Posts: 78
Joined: 10 Oct 2008, 15:30
Location: Rvk

Post by Urriði »

Dauður ?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hann vill allavega ekki kommenta á þetta sjálfur, ég giska að þolinmæðin á langþráðri jólagjöfinni hafi þrotið á nokkrum dögum og hann farið í aðrar pælingar :-)
-Andri
695-4495

Image
Post Reply