Einhver áhugi á íslenskum sjávarfiskum?

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Einhver áhugi á íslenskum sjávarfiskum?

Post by Fanginn »

Þannig er nú það að ég er á dagróðrarbát og fæ allskonar tegundir í netin. Hvort einhver væri áhuginn hérna fyrir, t.d. litlum karfa, þorki, ýsu, skötusel, ígulgeri, krossfisk,eða einhverju svoleiðis. Jafnvel steinbít, þeir eru nú flottir og grimmir ;)

Hægt að skella þessu í fötu og koma með þetta lifandi í land...
jæajæa
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Skötuselurinn væri nú langt um betur settur á matardiskinum mínum heldur en í búri haha :D

En sniðug hugmynd :góður:
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

þar fór ferskvatns hugmyndin mín í sjóinn.verð í bandi við þig eftir áramót :P
User avatar
sono
Posts: 545
Joined: 06 Jan 2008, 16:40
Location: Reykjavik 112 , Grafarvogur

fiskar

Post by sono »

ég er til í krossfiska og ígulker.
250 litra sjávarbúr
audun
Posts: 228
Joined: 24 Apr 2008, 00:57

Post by audun »

ég held að það sé Nánast ómögulegt að ná karfanum upp lifandi, hann belgist alltaf út. það þarf að ná honum án þess að hann komist í tæri við andrúmsloftið
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Þegar karfinn fer í trollið þá er hann í svo mikilli kremju að hann drepst, en þegar hann kemur í netin þá er hann oft sprelllifandi.

Ég er sammála þér með skötuselinn, það yrði erfitt að hafa hann í fiskabúrinu sínu. Hann mundi allavega ekki tolla þar lengi heima hjá mér :)
jæajæa
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

karfin ælir maganum að sökum þrístings.því meira dypi sem hann er á því þjapaðara er loftið í sundmaganum og þegar hann fer hratt upp tuknar sundmagin út sem gerir það að verkum að hann ælir maganum.algeint með marga djúpsjáfar fiska.

samnt sem áður er hann stundum í yfirborðinu og er þá hægt að halda honum á lífi.
Eyjó
Posts: 298
Joined: 26 Mar 2007, 16:12
Location: Reykjavik

Post by Eyjó »

Það er ekki auðvelt að ná karfanum heilum á land því oftast skaddast hann í netinu eða eins og úlli sagði sundmaginn fokkast upp. Það er þó hægt að gera smá aðgerð á honum en hún heppnast mögulega ekki man heldur ekki hvernig hún var framkvæmd.

En ég hef mikinn áhuga að fá fiska fyrir húsdýragarðinn. Væri mjög gaman að fá sem fjölbreyttast úrval þar sem það er talsverður skortur á fiskum núna. Get því miður ekki borgað þér nema með frímiðum í garðinn :P

En hafðu endilega samband við mig því ég er til í að taka allt sem þú getur náð í.
baldurinn
Posts: 11
Joined: 05 Aug 2008, 18:38
Location: rvk

Post by baldurinn »

varðandi aðgerðina þá er sprautunál stungið skáhalt í bak fisksins svo nálarendinn stoppi í sundmaga svo er þrýst létt á síður fisksins og þannig lensast sundmaginn og fiskurinn hefur betri líkur á að lifa,
þrýstingurinn er yfirleitt mun meiri en fiskurinn getur losað af sjálfsdáðum,
þetta virkaði í ca 90% tilvika hjá mér í sumar þegar við vorum að veiða
ungþorsk í eldi :wink:
Post Reply