Fékk mér nýjan fisk i dag
Fór út i búð fyrir konuna og kom heim með fisk i fiskabúrið
Seiðabúrið er búið að vera tomt svo lengi að ég verslaði mér einn skrýtin.
Man ekkert hvað hann heitir en ég reyndi að taka mynd af honum með simanum minum með þessum hörmulegu myndgæðum en ef einhver þekkir hann þá má láta mig vita
Hann er svolitið búttaður og þenur sig út ef honum er ógnað,mér skilst að hann verði i kring um 20 cm og lifir i svona mitt á milli sjó og ferskvatni.
Hvernig er það Ólafur, eiga þá ekki eftir að fara fleiri seyði í seyðabúrið (nema þá sem fóður) ? Prófaðu svo að gefa puffernum eplasnigla, það er skondið að sjá þá bryðja skelina á sniglunum.
Já já hann er sprelli lifandi hann Puffi eins og við köllum hann hérna heima eins og allir hinir lika i aðalbúrinu.
Ég gerði enga ráðstafanir með vatnið hjá honum frekar en i hinu búrinu.
Samdi við strák i næsta húsi um að koma og gefa einusinni á dag og það gekk bara vel. Hafði reyndar slökkt á búrinu allan timan og gat ekki betur séð að gróðurin hafi bara haft gott af þvi vegna þess að allur smáþörungur drepts og gróðurin verður bara fallegri fyrir vikið eftir á
Ólafur wrote:Ekkert mál
Fer i páskafri til Siglufjarðar um páskana og fer og spjalla við eigandan þegar ég kem heim aftur
Siglufjarðar segirðu
Do I know you?
eða makann þinn kanski?
Já Vigdis ég veit hver þú ert allavega og ég þekki þitt fólk á Sigló
En ég var múrarameistari þarna til fjölda ára og er kallaður Lalli og er giftur Örnu Arnars
Sæl Eygló mikið er heimurin litill og gaman að þú skulir vera hér á spjallinu
Þetta er kanski i genunum svona fiskistúss
Já ég átti stórt búr á meðan ég bjó Sigló en það var 350 litra heimasmiðað sem ég svo seldi til Franks og Hildi sem svo fluttu með það til Færeya.
En núna er ég með 400 litra Juwel búr i stofuni með fullt af ameriskum Sikliðum, einni Arowönu ,tveimur Roapfiskum og einum Platystacus og það er jafnframt það stærsta búr sem ég hef landað.
Þetta fiskastúss er bara nýtt hjá mér en þetta er stórhættulegur fjandi. er með 100 lítra búr og mig dauðlangar í svona 400 lítra juwel búr og hafa síkliður í því, t.d. oscar eða einhverjar aðrar flottar.
Þarf bara að selja íbúðina mína svo ég geti keypt mér stærra hús fyrir stærra búr
Þarf bara að selja íbúðina mína svo ég geti keypt mér stærra hús fyrir stærra búr
400 l búrið tekur bara 1 fermetra af plássi.
það er bara einn staður í allri íbúðinni sem ég get haft fiskabúr án þess að sólin skíni á það (það er sko alltaf sól á Sigló) þannig að ég hef ekki pláss fyirr stærra búr eins og er.
Gúggalú wrote:það er bara einn staður í allri íbúðinni sem ég get haft fiskabúr án þess að sólin skíni á það (það er sko alltaf sól á Sigló) þannig að ég hef ekki pláss fyirr stærra búr eins og er.
Það er líka hægt að hafa t.d. bakgrunn á búrinu, þá skín ekki í það.. Svo er líka í góðu lagi þótt sólin skíni á það í einhverja smástund á dag, bara að það sé ekki allan daginn
Gúggalú wrote:það er bara einn staður í allri íbúðinni sem ég get haft fiskabúr án þess að sólin skíni á það (það er sko alltaf sól á Sigló) þannig að ég hef ekki pláss fyirr stærra búr eins og er.
Það er líka hægt að hafa t.d. bakgrunn á búrinu, þá skín ekki í það.. Svo er líka í góðu lagi þótt sólin skíni á það í einhverja smástund á dag, bara að það sé ekki allan daginn
ég er með bakgrunninn núna á 3 hliðum svo að morgunsólin muni ekki fara í það. Hef verið með þörungavandamál þannig að ég er að reyna að blokka alla sól út