Nýr Oscar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Nýr Oscar

Post by sindris »

Ég fór í Dýragarðinn áðan og vitjaði verðlauna í ljósmyndakeppninni, kom sér vel :) Keypti þennan glæsilega albino óskar, nýja ljósaperu og litla ancistru í guppy búrið.

Image

Ég var soldið stressaður að hann myndi bara verða hræddur við hina 16 cm oscarana en það kom í ljós að þeir voru eiginlega bara hræddir við hann.
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

æðislegur alveg hreint, tilhamingju með gripinn!

Hvað er hann stór?
Image
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Hann er svona 5 eða 6 cm. Lítur út fyrir að vera aðeins stærri á myndinni reyndar. Hann er búinn að taka smá gelgjukast núna í dag, eins og oscarar eiga til. Búinn að liggja í fýlu ofan í horni á búrinu, en ég vona að hann fari að hressast við.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Alveg eins og ég á, enda frá sömu búð og úr sama búri :), minn var nánast viku í einhverju feimnis skapi og vildi láta sem minnst sjást í sig en núna er hann orðinn hress og farinn að synda um og betla eftir mat :)

minn er orðinn 11cm
og hinn venjulegi svona 10
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Rosalega flottur þessi.

Hvað þurfa 1-2 óskarar að vera í stóru búri ? Væri sko til í svona
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þarft svona 200lítra fyrir fullvaxinn óskar, 300l fyrir tvo.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

keli wrote:Þarft svona 200lítra fyrir fullvaxinn óskar, 300l fyrir tvo.
Hverjir geta verið með oscurum ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Laglegasti fiskur. :)
Gúggalú wrote:Rosalega flottur þessi.

Hvað þurfa 1-2 óskarar að vera í stóru búri ? Væri sko til í svona
Yfirleitt er talað um að einn Óskar þurfi að lágmarki 200 l búr og tveir 300 l. Óskarar kunna yfirleitt fyrir sig í stórum búrum og þó þeir geti vel alist upp í litlu búri þá stækka þeir það hratt að maður kemst fljótt í vandræði.
Þessir fiskar eru þó að mínu mati hvað mest gefandi, hænast að manni eins og hundur og fara auðveldlega í fílu líkt og smákrakki ef þeim líkar ekki eitthvað.
Með þeim er helst að hafa aðrar Amerískar sikliður í stærri kantinum og botnfiska td. bótíur eða Synodontis.
Hér er fínasti Óskaraþráður http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=302
og ágæt grein hér http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/Gre ... einar3.htm
Last edited by Vargur on 10 Apr 2007, 20:18, edited 1 time in total.
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Já, það má eiginlega segja nákvæmlega það sama um þennan, hann er óttalega feiminn eitthvað. Felur sig bakvið hluti og hreyfir sig lítið. Hann varð ótrúlega hress samt í nokkrar mínútur þegar ég gaf þeim að borða áðan.

Ég er búinn að taka eftir því svona tvisvar sinnum að einn af stóru óskurunum er búinn að fara ógnandi að honum og narta jafnvel aðeins í hann og Jack Dempsey aðeins búinn að bíta í hann líka. Vonum bara að þeir fari að taka honum betur.
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Mér datt í hug að setja inn yfirlitsmynd af búrinu mínu, ég held að ég hafi aldrei gert það.

Image

Það vantar reyndar inn nýja Óskarinn.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Fínasta búr :), hvernig hreinsi búnað ertu að nota ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Svona sump (box) undir búrinu og affallsskóflu (sem sést á myndinni). Ég hef ekki hugmynd um hvaða dæla er í boxinu. Ég get tekið mynd bara ef þú skilur mig ekki.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Gúggalú wrote:
keli wrote:Þarft svona 200lítra fyrir fullvaxinn óskar, 300l fyrir tvo.
Hverjir geta verið með oscurum ?
Óskarar geta vel verið með flestum síkliðum sem passa ekki uppí þá og geta svarað fyrir sig.

Einnig er fínt að vera með pleco með þeim.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Image

Hérna er hreinsibúnaðurinn minn.
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Vá haha ég hefði kannski getað sent aðeins betri upplausn af þessari mynd, en þú sérð samt alveg hvernig þetta er.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

sindris wrote:Vá haha ég hefði kannski getað sent aðeins betri upplausn af þessari mynd, en þú sérð samt alveg hvernig þetta er.
Pínu galli í fishfiles hjá mér, hún stækkar ef myndin er minna en 640 pixla breið :oops:

Laga þetta snöggvast :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Oky flott :), er þetta Wet/dry sumpur ?, ætla sjálfur að setja yfirfall á 500L búrið mitt nema bara úr pvc rörum í staðinn fyrir ower flow box:P
Kv. Jökull
Dyralif.is
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Já wet/dry ég var að reyna að muna nafnið á þessu.

Mig langar reyndar bráðlega að stækka við mig, færa mig upp í 500L og hafa það þá stærra á lengdina heldur en hæðina. 370L búrið sem ég er með núna er svo hátt eitthvað.

Spurning hvort ég haldi þessu ekki eftir líka og setji upp Piranha búr, hefur langað það í soldinn tíma.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

piranha :góður:

Ég er sjálfur með 6stk í 200l búri... búrið er í minni kantinum en þær eru ennþá litlar (10cm eða svo) þannig að það gengur vel :)

Pósta myndum af búrinu við tækifæri, er frekar stoltur af því þessa dagana, fyrsta skipti sem einhver gróður er að plumma sig almennilega í búri hjá mér :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Já gróður er ekki alveg að gera sig hjá mér. Ég er bara með eina plöntu núna sem ég keypti í fiskabúr.is og hún er hægt og hægt búin að dökkna og verða einhvernveginn subbulegri. Ég held hún deyji fyrir rest.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Okei hvernig finnst þér þetta wet/dry dæmi vera að gera sig ?, hefur þú prufað að vera bara með normal sump ef svo er, fannstu fyrir einhverjum mun á þeim ?

þið ættuð að prufa að setja smá Co2 í búrið þá byrjar þetta að vaxa eins og arfi :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Svona ef einhver hefur áhuga þá á ég tvö svona utanáliggjandi yfirföll sem ég gæti viljað selja.
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Vargur wrote:Svona ef einhver hefur áhuga þá á ég tvö svona utanáliggjandi yfirföll sem ég gæti viljað selja.
já áttu mynd :ojee:
Gæti flýtt fyrir okkur hjónunum :mrgreen:
Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég á reyndar ekki mynd en þau "looka" svipað og þetta hér að ofan.
Er með þau í búðinni.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Svona varðandi háfaðan í sumpnum hjá þér, kemur ekki sæmilega mikið vatns hljóð frá yfirfallinu ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Jú, það má orða það þannig..
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Okei þú ættir að prufa að skipta þessu yfirfalli út fyrir það sem ég nota, kostar mjög lítin pening að útbúa það og það er mjög hljóðlátt

Image

Hérna er þráður um hvernig þetta fúnkerar :)
http://www.monsterfishkeepers.com/forum ... hp?t=15733

Þessi mynd sínir líka vel hvernig þetta virkar :)
Image
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply