Varðandi Black ghost...

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Varðandi Black ghost...

Post by Bob »

Jæja. sæl öll aftur...

Black ghostinn minn er einhvað skrítinn

Hann er ca 15 cm langur og hefur alltaf verið frekar sprækur og active.. en núna síðustu 2 daga hefur hann verið frekar skritinn. Hann lyggur stundum á botninum eins og hann sé sofandi. en svo þegar hann fattar að það se´kominn matur þá er hann útum allt á fleigiferð og syndir svo um og legst svo niður aftur

og svo núna.. þá lyggur hann á bakinu á botninum hreyfingarlaust. tekur svo einhvern hring um búrið og skoðar sig um og legst svo bara niður aftur á bakið inní hauskúpunni sinni..

er hann einhvað veikur eða er þetta bara normalt?

Búinn að eiga hann núna í 3-4 vikur og hef aldrei séð þetta áður.

Kanski vert að taka það framm að það er helv. hvítblettaveiki í búrinu sem er að skána en hún sést ekki á BG-inum. bara skölunum og þeir eru að verða góðir eftir lyfjagjöf.

Ég gef þeim að borða 2x á dag + pínu frosna rækju úr bónus 1 sinni á 2 daga fresti og hann ásamt gubbý og bardaga og skolunum borða rækjurnar af bestu list..

Please help. tými ekki að missa annan BG ef það er einhvað sem ég get gert
Ekkert - retired
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þetta er ekki normal hegðun og það er þegar búið að segja þér lausnina á þessu
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

amm of lítið búr. grunaði það fyrst. tók svo eftir því að hann er líka mikið að berja til hausnum. hvort að hvítblettaveikin sé í tálknunum á honum eða einhvað.

Er samt Kanski að fara að fá 200L búr sem verður vonandi komið í gagnið fljótlega.

Þannig að það er vandamálið bara.. of lítið búr?
Ekkert - retired
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

hvaða lausn er það?
kristinn.
-----------
215l
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Er hann bara að hrista til hausinn eða er hann líka að klóra sér á búknum uppvið steinana eða eitthvað ?

Búrið er rót vandans þar sem fiskurinn er frekar stór og er kjötæta og mengar þar af leiðandi mjög mikið búrið
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Squinchy wrote:Þetta er ekki normal hegðun og það er þegar búið að segja þér lausnina á þessu
þetta er bara víst normal hegðun fyrir black ghost og ekkert út á það að setja. Þeir eyða gjarnan löngum tíma dagsins liggjandi hreyfingalausir á hliðinni :)
Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af fiskinum.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

fann skemmtilega mynd af mínum blach ghost þegar hann hefur verið svona 8-9cm að taka því rólega... Þetta gerir hann á hverjum degi hjá mér, liggur þó oftast í felum undir rót eða gróðri.
Image
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Minn heldur sig alltaf inn í rótinni sinni en er fljótur af stað þegar ég fóðra og æðir þá um allt þar til fóðrið er búið.
Annars sést hann ekkert nema til að stugga við fiskum sem hætta sér of nálægt holunni.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

hehe já einmitt svipað með minn. en hefuru séð þá lyggja á bakinu ??? það er það sem mér fynst mest skrýtið og þegar hann byrjar að berja hausnum sona heiftarlega mikið til hliðanna....??
Ekkert - retired
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég hef séð minn í öllum stellingum.
Ef þinn er að kasta hausnum til og frá gæti eitthvað verið að angra hann, td. úrgangsefni í vatninu.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ok. ættla að fylgjast aðeins með þessu. er vonandi að fara að fá stærra búr.. 200L minnsta lagi. hef þá þetta 54L undir einhverja smáfiska eða bara seiði. kemur allt í ljós :)

Ættli hvítblettaveikin sem er að fara úr búrinu núna sýnist mér ekki bara vera að angra hann? þótt ég sjái nú ekki neina bletti á honum. skipti um 50% af vatninu fyrir 4 dögum og riksugaði botnin viku´fyrir það ásamt vatnaskiptum
Ekkert - retired
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

er hann að hrista hausinn harkalega eða er hann meira að vagga honum rólega til hliðanna?
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

venjulega er það bara ´rolega en núna áðan sá ég í fyrsta skipti að hann gerði það harkalega til vinstri nokkrum sinnum.... :?
Ekkert - retired
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þegar þeir eru að vagga höfðinu til eru þeir að nema/greina/skoða umhverfið með rafsegulsviði og er það alveg eðlilegt, en ef þetta er eitthvað óvenjuharkalegt gæti eitthvað verið að
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ok .. vonandi ekkert alvarlegt :?

er að reyna að fynna fyrir hann stærra búr. gengur einhvað erfiðlega þar sem að fjármagn er af skornum skamti :x
Ekkert - retired
Post Reply