Hvaða búr?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Alexaah
Posts: 17
Joined: 17 Dec 2008, 23:23
Location: Reykjavík

Hvaða búr?

Post by Alexaah »

Góðann daginn.
Ég er að pæla í þessum Juwel búrum, eru þessi Rio 180 l. og 240 l. búr einhvað þess virði að fjárfesta í? Og ef svo er hvar fær maður þá svoleiðis á sem lægsta verði? Mér finnst þau nefnilega lúkka soldið vel :)

Takk fyrir, Alexandra
Kv. Alexandra Häsler

-180L Juwel
-60L Tetra
-54L Juwel
-30L Seiðabúr
-20L - Bardagafiskur

- 4 mánaða kvk Lionhead
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þrælflott búr og mér finnst þægilegt að vesenast í þeim.

það er verslun hér innan spjallsins sem selur þau:
http://www.fiskaspjall.is/viewforum.php?f=29
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Juwel búrin eru þau sem mér líka best enda legg ég þess vegna áherslu á að selja þau.
Þau koma í þrem litum,eru stílhrein og passa við hvað sem er.
Ljós og lok eru virkilega góð á 125-240 l. búrunum og dælubúnaðurinn sem fylgir er fullnægandi fyrir þær stærðir en æskilegt er að bæta við dælubúnaðinn í stærri búrum.
Hér getur þú lesið þér til um búrin http://www.juwel-aquarium.de/en/rio.htm

Verð osf er svo hér http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=4301
Sendu mér ep og við gerum einhvern díl.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég á 180l. juwel, ég reyndar tók dæluna úr en það var bara vegna þess að hún var akkúrat í sjónlínu inn í búrið, er með annað 70 lítra með orginal dælunni. þetta eru bara mjög flott búr á góðu verði ekki síður ef þú tekur með að þú færð fína dælu með.

það er líka mikill kostur að það er hægt að fá alla varahluti og þeir eru líka á eðlilegu verði!
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Hvernig er það Hlynur, ef maður skyldi nú kaupa svona búr hjá þér, en ekki vilja innbyggðu dæluna, er hægt að díla við þig um að taka hana úr?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Karen wrote:Hvernig er það Hlynur, ef maður skyldi nú kaupa svona búr hjá þér, en ekki vilja innbyggðu dæluna, er hægt að díla við þig um að taka hana úr?
Já já, ef fólk vill ekki dæluna þá tek ég hana úr og tek hana á fullu verði í upp í aðra dælu, td. tunnudælu.
User avatar
Alexaah
Posts: 17
Joined: 17 Dec 2008, 23:23
Location: Reykjavík

Post by Alexaah »

Takk æðislega fyrir skjót svör :D ég mun hafa þetta í huga, er að hugsa um að fjárfesta í Juwel búri fljótlega ef veskið leyfir hehe :oops:

Enn og aftur takk fyrir.

Kv. Alexandra
Kv. Alexandra Häsler

-180L Juwel
-60L Tetra
-54L Juwel
-30L Seiðabúr
-20L - Bardagafiskur

- 4 mánaða kvk Lionhead
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Vargur wrote:
Karen wrote:Hvernig er það Hlynur, ef maður skyldi nú kaupa svona búr hjá þér, en ekki vilja innbyggðu dæluna, er hægt að díla við þig um að taka hana úr?
Já já, ef fólk vill ekki dæluna þá tek ég hana úr og tek hana á fullu verði í upp í aðra dælu, td. tunnudælu.
Frábært, þá veit maður það. :-)
Post Reply