Ef þetta er svona hvít sleikja þá þarftu að bíða þangað til bakteríurnar eru búnar með öll næringarefninu í vatninu (Sem hefur ekki áhrif á fiskana) þá munu þær byrja að drepast
Bara fylgjast vel með búrinu og mæla regglulega
En ef þú tekur eftir því að búrið sé í Cycle og einhverjum toppum í nítrit myndi ég frekar bara vera með regluleg vatnskipti og bíða með að útrýma bakteríunni því hún er ekkert skaðleg bara ljótt að horfa á
Þetta væri ekkert leiðinlegt
Last edited by Squinchy on 13 Dec 2008, 00:53, edited 1 time in total.
takk fyrir það, ég bíð þá bara með vatnsskipti í svona 2vikur og sé hvort eitthvað breytist.
ég held maður myndi reka hausinn ansi oft upp í loftið þegar maður vaknar hehe
En það þýðir ekki mikið að gróðursetja, ég er reyndar búinn að koma smá niður en jaguar parið grefur svona 25% af botninum og ekkert helst þar. Þegar Jaguar parið fer í annað búr ætla ég að bæta við 40kg af möl til viðbótar og byrja að festa niður.
animal wrote:Getur mögulega verið að mölin hafi "dáið" af því að bíða og svo seturðu hana í og þá rotnar neðsta lagið þar sem að ferskt vatn kemst ekki að?
já það gæti vel verið, reyndar ryksugaði ég mölina þokkalega vel 1-2 dögum eftir að hún fór í en hún var frekar drullug þegar ég skellti henni í. var eitthvað latur og nennti ekki að þrífa hana alla
jæja ég fór og kíkti á dagatalið mitt, maður þarf að skrifa allt inn þegar maður er svona gleyminn
30.nóv - setti búrið aftur upp á nýjum stað
2.des - möl í búrið, 70% vatnsskipti og sturtaði drullunni úr tunnudælunum
5.des - 60% vatnsskipti
7.des - 50% vatnsskipti með malarsugu
11.des - 50% vatnsskipti
Og nokkrar af Palmas polli karlinum að reyna við þá feitu, ekki bestu myndirnar en það er skemmtilegt að fylgjast með þessu hjá þeim:
Kerlan hefur hrygnt amk tvisvar sinnum í búrinu en ég veit ekkert um það hvort karlinn hefi átt hlut í því, það væri gaman að setja þau í sérbúr við tækifæri og fylgjast vel með þeim.
Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að lesa nánar um hrygningarferli Polypterusa hér: Monsterhornið - Polypterus
Eins og hefur áður komið fram hérna hefur Jaguar parið verið að hrygna á 3.vikna fresti í búrinu, síðustu skipti með nákvæmlega 22 daga millibili
31.okt:
22 dögum seinna, 22.nóv:
og 22 dögum seinna, 14.des:
Verst að það verður ekkert úr þessu hjá þeim í búrinu, þau eru alltaf ófrjó, líklega vegna þess að karlinn er of upptekinn við að passa rótina að hann gleymir að frjóvga hrognin
Mér finnst svona stórt búr bera hvorutveggja mög vel, gróðurlaust og án gróðurs.
Þetta er mjög fínt svona og m.v. gróðurvöxtinn hjá þér verður ekki hægt að sjá inn í búrið eftir mánuð.
Það eru rosalegar tennurnar í þessum tiger, ég myndi ekki vilja láta hann bíta mig.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Ég er ein af þeim sem dugar ekki að segja hlutina, ég þarf alltaf að prófa og skoða allt með höndunum í búðum.
Þegar ég var svona 8 ára kom pabbi heim með lax úr einni veiðiferðinni og þar sem hann lá og beið aðgerðar fór ég að skoða og þar á meðal upp í hann. Það kom mér á óvart að hann væri með tennur því þá hélt ég að fiskar væru tannlausir.
Auðvitað vildi ég fá að vita hvort hann gæti bitið svo ég setti putta upp í hann og lamdi svo hressilega saman kjaftinum
Nei, nei, það þurfti nú kannski ekki sjúkrabíl en pointið með sögunni er að tennur í laxi eru mjög litlar m.v. tiger og það er ekki gott að fá laxatennur á kaf í lúkurnar.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Ég var að fara yfir tropica.com síðuna og ef mér skjátlast ekki er ég með eftirfarandi plöntur:
Anubias
Vallisneria nana
Vallisneria americana 'mini-twister'
Cladophora aegagrophila
Crinum natans
Cryptocoryne tegund (beckettii?)
Echinodorus bleheri
Limnophila aquatica
ég er svosem ekkert viss hvort þetta sé bakterían, eða hvort þetta sé bara grugg og mengun frá mölinni, þar sem ég skildi hana eftir í 2 daga áður en ég setti hana aftur í eftir flutninga drapst allt líf í henni...
Allir fiskar eru amk hressir en búrið er enn gruggugt og það bætir það ekki að ég bætti 40kg af möl við í gær, enn meira grugg hehe
Bætti einum Polypterus við í dag, sá einstaklega vel heppnað eintak af palmas polli í Trítlu.
Þetta er 20cm karl, töluvert minni en þeir polli sem ég átti fyrir en mynstrið á honum er mjög flott og áberandi fyrir þessa tegund en yfirleitt sést bara dauft í "hnakkmynstrið" á þeim og þá bara á aftari hlutanum. Á þessum er það mjög skýrt og er hann með rendur alveg upp að haus.
Ekki nógu góð mynd en mynstrið sést þó:
"venjulegir" palmas polli til samanburðar, svarta mynstrið er mjög dauft: