fiskimann wrote:enn hvað kostar ljósið fyrir hana ?? og hvar fæ ég það? og hvað er uvb :S
Tekið af gæludýraspjallinu.
Almennt Ljósabúnaður er mikilvægur þáttur æskilegrar skjaldböku umhirðu sem er oft sleppt eða misskilinn. Fyrst og fremst á ljósið ekki að skína lengur en 12 klst. á sólarhring.
Tvenns konar ljós eru notuð, UVA og UVB.
UVA gefur ekki aðeins hita á landið sem er mikilvægur, heldur einnig lokkar bökuna til þess að koma þangað. Hitinn heldur efnaskiptum gangandi og eykur ónæmiskerfið. Þurrkunin herðir skelina og dregur úr sýkingarhættu.
UVB ljósaperur og sólarljós gefa mikilvæga UVB geisla sem eru skjaldbökum nauðsynlegir til þess að framleiða D3 vítamín, sem stuðlar að efnaskiptum á kalki og sem saman vinna gegn beinkröm. Allar slider bökur þurfa að þurrka sig og fá nóg af kalki sem og UVB geisla.
Tryggja þarf að öll ljós eru með rétt Wött, rakavarin og loks að skjaldbakan nái ekki í ljósið. Hafa skal UVB ljósið 15-30cm fjarlægð frá bökunni og í námunda við þurrkstaðinn. Ekkert má vera á milli UVB geislanna s.s. gler, akríl eða plast, en það dregur úr nærri allri virkni UVB ljóssins.
UVA perur
Venjulegar heimilisperur eru ásættanlegar og gefa þær bæði ljós og hita, þá "svæðisbundnar" (spot lamp) beina birtunni t.d. niður eða "flæðisperur" (flood lamp) sem gefa mesta birtu og hita.
- sjá í Umhirða skjaldbaka um mikilvægi hitastigs á landinu og hvernig á að mæla.
UVB perur
Flúrpera sem gefur UVB geisla innanhús og koma í mismunandi stærðum og styrkleika. Þær gefa mjög lítinn hita frá sér Ekki skal hafa ljósið of langt í burtu og skal miðast við 15cm. Forðast skal ódýrar tegundir og gott að miða við perur sem eiga að gefa um 5-10% af UVB