SandraRut wrote:Jæja, ég fór niðrí búð og náði mér í 7 Neon Tetrur og 3 ryksugur.
Eftir helgi á ég frátekinn Bláhákarl, bara baby.. hann er voða lítill.
Mér hefur bæði verið sagt að þetta búr gæti gengið fyrir bara einn bláhákarl, ég ætti ekki að vera að setja fleiri fiska með honum (nema þá ryksugurnar)
En svo hef ég líka heyrt að hann gæti verið í þessu búr í x-langann tíma, en svo þarf helst að færa hann í stærra búr ef hann stækkar of mikið
Hvað segið þið um þetta? Hverju eru þið sammála?
Ég er ekki sammála neinu af þessu.
Hvað er búrið langt ? 80 cm ?
Ég tel að bláhákarl eigi ekkert erindi í styttra búr en 100 cm og ekki minna en 180 lítra.
Fáðu þér bara fiska sem passa vel í þetta búr og eiga ekki eftir að stækka upp úr því.
allt sem heitir pangasius og þar með talinn bláhákarl er í raun eitthvað sem ætti ekki að seljast í fiskabúðum
þeir þurfa stærri búr heldur en fást hér á landi þannig að best væri ef þeir væru ekki fluttir inn
það hafa verið fluttir inn mörg hundruð pangasius til landsins en aðeins örfáir eru lifandi í dag en samt er þetta fiskur sem verður gamall sem þýðir það eitt að þeir drepast allt of ungir vegna þess að þeir hafa ekki þá aðstöðu sem þeir þurfa í búrum hérna
Búrið er já 80cm á lengd, mig dauðlangar í Bláhákarl, en ef það virkar ekki í þessu búri, þá geri ég það ekki.
Mig langar bara svo í einhvern öðruvísi fisk en þessa sem flestir eiga.
Margir hérna eru með svo flotta og öðruvísi fiska, en það bara sökkar alveg þvílíkt hversu lítið úrval af flottum og öðruvísi fiskum hérna á Akureyri...
Er hægt að hafa samband við búðina, Fiskabúr.is eða einhverja aðra, og fá senda fiska til sín, ég veit það er langsótt, en betra að spurja en þeigja