Búr á byrjunarstigi
Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan
Búr á byrjunarstigi
Jæja þá er ég búinn að láta búrið standa síðan á föstudaginn, er búinn að setja smá áburð í sandinn, vatnið og svo bakteriuflóru í dæluna og smá í vatnið. Ég er með heimatilbúinn Co2 reactor svo ég vona að plönturnar fari að taka kipp hjá mér.
Það sem ég hef mestar áhyggjur af eru plönturnar. Ég óttast að þær séu að visna hægt og bítandi. Þær líta svona út:
Saururus cernuus.
Samolus floribundus 1.
Samolus floribundus 2.
Echinodorus "Rose" eða sverðplanta.
Ég tók eftir því að blöðin eru aðeins tætt á sumum plöntunum kannist þið við þetta vandamál ? Hvað getur eiginlega verið að valda þessu ? Svo er líka ljótur brúnn litur á sumum blöðunum...
Svona lítur búrið út í heild sinni.

Ef allt er í lagi með sýrustig og hörku þá næ ég í fiskapöntunina mína á miðvikudaginn til Tjörva. Þetta verða allt smáfiskar ég er náttúrulega með svo lítið búr og pláss eins og er.
Í búrið fara:
~10 Cardinal Tetrur
~5 Dverggrannar
~6 Zebra Dannar
~2 Síams fljúgandi refir
~3 Kongó dvergfroskar
Þetta eru allt mjög smávaxnir fiskar minni en 3 cm fullvaxta, nema fljúgandi refirnir þeir verða alveg 10 - 15 cm. Vona að þeir verði ekki fyrir hvor öðrum

Já ég er með Sera florena fertilizer með járni setti um 10ml, svo er ég með Tetra Crypto rótarnæringu í töfluformi, ég braut 2 töflur í 3 parta hvora og dreyfði í sandinn í búrinu.Lindared wrote:perur og gróðurnæring skipta líka máli, ertu með eitthvað spes svoleiðis fyrir plönturnar?
Peran sem ég er með er Aquastar 15W og ég læt hana glóa í 12 tíma á dag.
ekki hafa kveikt á co2 á nóttinni þar sem plöntur nota co2 á daginn og gera súrefni en nota súrefni til að gera co2 á nóttinni þannig fiskarnir eiga eftir drepast úr súrefnisleysi svo þýðir lítið að hafa súrefnis dælu og co2 í gangi á sama tíma, þá ertu bara að eyða Kolsýruni.
Minn fiskur étur þinn fisk!
Takið þið það úr sambandi á nóttunni ? Ég las nefninlega að það skapi ójafnvægi í PH á vatninu ? Mér fannst það eitthvað skrýtið að setja Co2 í vatnið þegar plönturnar eru ekki að nota það og fiskarnir framleiða það hvort eð er í ágætu magni.
Ég þarf að ná mér í próf til að skoða gæði vatnsins ég sá að það er selt í versluninni hér á spjallinu ætli maður taki ekki bara einn pakka.
Ég þarf að ná mér í próf til að skoða gæði vatnsins ég sá að það er selt í versluninni hér á spjallinu ætli maður taki ekki bara einn pakka.
Það er allt í lagi að hafa CO2 í gangi á nóttunni, sérstaklega þegar það er bara úr einföldu gerjunarkerfi eins og sést á myndum hér.Arnarl wrote:ekki hafa kveikt á co2 á nóttinni þar sem plöntur nota co2 á daginn og gera súrefni en nota súrefni til að gera co2 á nóttinni þannig fiskarnir eiga eftir drepast úr súrefnisleysi svo þýðir lítið að hafa súrefnis dælu og co2 í gangi á sama tíma, þá ertu bara að eyða Kolsýruni.
Ég er með slíkt í gangi og miklu meira en það allan sólarhringinn og það er bara allt í góðu lagi hjá mér.
Hvað varðar plöntur visni getur það bara verið mjög eðlilegt ef um er að ræða nýjar plöntur úr búð eða plöntur úr allt öðru umhverfi. Blöðin eru vön allt öðrum aðstæðum og plantan þarf að laga sig að nýjum aðstæðum. Flestar plöntur sem seldar eru í búðum eru ekki ræktaðar í vatni t.d.
Brúnu skellurnar á plöntunum er þörungur - flestar þörungaætur éta brúnan þörung með bestu lyst.
Annars hittir Hrafnkell naglann í höfuðið - það er algengt að nýjar plöntur visni áður en þær taka við sér í nýjum aðstæðum.
Edit: Skrifaði Sven, átti að vera Hrafnkell
Annars hittir Hrafnkell naglann í höfuðið - það er algengt að nýjar plöntur visni áður en þær taka við sér í nýjum aðstæðum.
Edit: Skrifaði Sven, átti að vera Hrafnkell
Last edited by keli on 05 Jan 2009, 10:37, edited 1 time in total.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Með loftdæluna, þá skalt þú mikið frekar hafa hana í gangi á nóttunni en ekki á daginn.
Á daginn þarft þú að reyna að halda eins miklu af kolsýrunni í vatninu og þú getur, það þýðir að halda vatnsyfirborðinu lygnu. þetta snýst hinsvegar við á nóttunni, þá þarftu að koma súrefni í vatnið og því gott að hafa loftdælu í gangi. En þar sem að þú ert ekki með neina fiska, þá þarftu í raun ekkert að vera með loftdæluna yfir höfuð þangað til þeir koma.
Eins og Hrafnkell og Keli benda á þá eru plöntur oft mjög vesælar til að byrja með, enda margar þeirra ekki ræktaðar í vatni og fá því sjokk þegar þær fara í vatn og eru nokkuð ljótar í einhvern tíma.
Ertu búinn að vera með þessar lengi? Þær líta út fyrir að hafa ekki verið í mikilli lýsingu, brúnþörungurinn bendir til þess.
Varðandi rótartöflurnar, þá mundi ég bara setja þær niður hjá echinodorusnum, og þá svona 5-6 cm frá honum. Þar sem þú ert að gefa næringu í vatnið, þá menga hinar rótartöflurnar bara.

Snilld ég prófa þetta. Bara einn galli, hafiði fundið leið til að lækka hávaðann í loftdælunni ? Mér finnst svo pirrandi surg í henni samt mun betri en sú sem ég var með á undan, þessi sem ég er með núna er glæný og er silent en hljóðið finnst mér samt frekar hátt hehe.
Ætli það sé ekki framleitt einhver svampur utan um hana eða box til að drepa hljóðið aðeins niður ?
Ætli það sé ekki framleitt einhver svampur utan um hana eða box til að drepa hljóðið aðeins niður ?
Það er gott að smella þeim ofaná eitthvað mjúkt, t.d. svamp.. Það minnkar hljóðið. Svo virkar ágætlega líka að hengja hana upp inní dæluskápnum.
Annars heyrist svolítið í öllum svona loftdælum fyrir venjuleg búr.. Mér hefur þó þótt tetra dælurnar vera hvað lágværastar.
Annars heyrist svolítið í öllum svona loftdælum fyrir venjuleg búr.. Mér hefur þó þótt tetra dælurnar vera hvað lágværastar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net