Var að pæla. Er með 1 stk. 100l búr og var að pæla í að dettí síkliður.. ég átta mig á því að 100l er kannski í minni kantinum fyrir síkliður en pælingin var að hafa bara eitt par þá. Eru ekki einhverjar síkliður í minni kantinum málið eða hvernig er þetta?
Kribbar eru kannski frekar basic en eru ekki einhverjar jafn auðveldar og skemmtilegar síkliður til sem ég gæti haft í þessu búri?
Með hverju mælið þið?
Var líka að pæla ef maður er með kk og kvk saman bara sér í búrinu er þá að alveg góðar líkur að einhver seiði fullorðnast? eða þarf maður alltaf að taka frá til að fá þannig?
Þetta er skemmtileg og vel raunhæf hugmynd. Flest sikliðupör í minni kantinum og miðstærð (5-15cm) geta vel verið ein í 100 lítra búri. Það er þó nánast öruggt að foreldrarnir fara að berja á afkvæmunum þegar næsta hrygning fer í gang og/eða seiðin fara að verða kynþroska.
Þá er alltaf til sá möguleika að fara með seiðin í næstu fiskaverslun eða auglýsa hér á spjallinu.
Ef botnflötur búrsins er sæmilega stór þá eykur það möguleika á að þetta gangi og jafnvel að 2 pör geti lifað í "sátt" saman.