Þarf að flytja 160l búr í 400l búr...........

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Eyberg

Þarf að flytja 160l búr í 400l búr...........

Post by Eyberg »

Þarf að flytja 160l búr í 400l búr, er einhver þarna úti sem getur gefið mér góð ráð í sambandi við þennan flutning?

Er með Sandí búrinu sem er orðin 2 ára, á ég að skola han og nota í nýja búrið og allt vatnið sem ég er með í 160 lítra bbúrinu eða er þetta gert á annanhátt, ehef ekki nema 10 daga til að klára dæmið?

Hvaða send er best að kaupa núna?

Og hvað þarf mikið LR í 400l búr, það er til formúla fyrir það?

Kveðja Eyberg
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þú setur eins mikið LR í 400L búr og þú tímir. :lol: Það er annars engin formúla, þú bara gerir það þannig að þér þyki það flott. Þú kemur ansi mörgum kílóum í áður en búrið er fullt :shock:

Fínt að setja samt LR í í 2 skömmtum, einn skammt þegar þú byrjar að cycla búrið og svo annan skammt 3-6 vikum seinna (fer eftir þolinmæði :)).
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Eyberg

Post by Eyberg »

keli wrote:Þú setur eins mikið LR í 400L búr og þú tímir. :lol: Það er annars engin formúla, þú bara gerir það þannig að þér þyki það flott. Þú kemur ansi mörgum kílóum í áður en búrið er fullt :shock:

Fínt að setja samt LR í í 2 skömmtum, einn skammt þegar þú byrjar að cycla búrið og svo annan skammt 3-6 vikum seinna (fer eftir þolinmæði :)).
En ég hef ekki þenan tíma verð að flytja alt á 10 dögum!
Er með 4 fiska og nokkra korala.

Kveðja Eyberg
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þú getur alltaf bætt við liverock - Það er heldur ekkert "minimum" sem þarf að vera af því, það er engin skylda að vera með lr og alls ekki nauðsynlegt fyrir lífríkið í búrinu (þó það hjálpi). Þú kaupir bara eitthvað af liverocki - og svo geturðu bætt við seinna ef þig langar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Eyberg

Post by Eyberg »

OK

Ég er með Sjávarbúr sem er búið að þroskast í 2 á og í því eru um 25 til 30 kg af LR og síðan er sandur líka.

Spurningin mín er hvernig er best að flytja þetta yfir í stæra búr?
Ég veit að ég get bætt LR við en það er ekki að sem spurði um!

Hvaða sand er best að kaupa núna?

Kveðja Eyberg
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

ok sorry, hef eitthvað misskilið þig :)


Ég myndi persónulega ekki þrífa gamla sandinn, og reyna að nota sem mest af gamla vatninu. Svo er ódýrast að fara t.d. í björgun og kaupa skeljasand þar og skola hann vel (tómt vesen reyndar). Ná svo búrinu í rétt hitastig og seltu og setja svo gamla sandinn ofaná. Búrið verður væntanlega aaafar gruggugt eftir þessar kúnstir, en ætti að verða tært aftur eftir 1-2 daga. Þá ætti að vera safe að setja fiska í og svona.
Svo er það spurningin hvar verða fiskarnir á meðan? :)

Þetta fer allt svolítið eftir hvort þú getir geymt fiskana einhversstaðar á meðan þessar æfingar fara fram...

Þetta er kannski ekki besta leiðin, en hljómar amk ágætlega í hausnum á mér akkúrat núna :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Eyberg

Post by Eyberg »

Takk fyrir þetta svar Keli.

Kveðja Eyberg
Post Reply