Fallegir hópfiskar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Fallegir hópfiskar

Post by bryndis »

Mig vantar hugmynd að fallegum, litríkum hópfiskum í 160l búrið mitt. Ég er með 5x scala (3 frekar stóra) og 2x bláhákarla (c.a. 10-15cm held ég), 4x bótíur (3x tígris og 1x trúða) svona 5-10cm ásamt nokkrum í viðbót (ryksugum, plegga, humri, bardagafisk og rummy nose tetru).

Ég prófaði að kaupa mér 10 neon tetrur í gær... En í dag voru bara 2 eftir sem ég bjargaði í annað búr :S kjánaleg hugmynd líklega, ég bara hélt þær væru fljótar að forða sér, og að fiskarnir hefðu ekki áhuga á þeim. Svo mig vantar s.s hugmynd að flottum torfufiskum sem ganga í mitt búr. Vil helst hafa þá litríka, svona til að lífga aðeins upp á búrið. Einhver með hugmynd?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

hmm.... er ekki Stóra Fiskamóðirin að reyna að segja þér að það sé alveg nóg af fiskum í þessu búri? :)
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Post by bryndis »

Hmm hugsanlega.. :) Mér finnst það bara e-ð svo tómlegt, en vil samt ekki bæta stórum fiskum. Þessvega datt mér í hug að bæta við svona litlum fiskum..
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Svartneon eru að mínu mati með fallegri hópfiskum.
Image
Mynd tekin af fiskabur.is
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Post by bryndis »

Já ég er sammála, en ætli það fari ekki fyrir þeim eins og neon fiskunum í nótt? sama stærð.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ef þeir eru í sömu stærð þá fer líklega eins fyrir þeim þannig málið er líklega að finna þá stærri.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Svartneon eru aðeins stærri en neon, svona um 0.5cm stærri og aðeins lengri í hæð.
Það er til slatti af Svartneon í dýragarðinum.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Sítrónutetra er mjög falleg og skemmtileg í hegðun.
Ace Ventura Islandicus
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote:Svartneon eru aðeins stærri en neon, svona um 0.5cm stærri og aðeins lengri í hæð.
Það er til slatti af Svartneon í dýragarðinum.
Svartneon er líka til hjá þessum gaur http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?p=64170#64170
...og reyndar sítrónutetrur líka.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

er hann ekki til allstaðar?? :shock:
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Vargur wrote:
Síkliðan wrote:Svartneon eru aðeins stærri en neon, svona um 0.5cm stærri og aðeins lengri í hæð.
Það er til slatti af Svartneon í dýragarðinum.
Svartneon er líka til hjá þessum gaur http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?p=64170#64170
...og reyndar sítrónutetrur líka.
Hehe sniðugur ;)

En annars lenti ég einmitt í þessu líka með neon tetrur :oops: setti 10 stykki en svona 4 lifðu þegar ég tók 3 af þeim upp úr, ein vildi ekki láta ná sér sama hvað ég reyndi :S þannig að hún fékk að vera og bjóst ég ekki við a hún myndi lifa lengi :P en núna hálfu ári síðar liggur við er hún en á lífi :D algjör hetja.

En ég er með bandabarba (fimmbandabarba) hjá mér en þeir eru svolítið stærri en svartneon og neon tetrur og eru í hópum. Rosalega fallegir og skemmtilegir. Ekkert ósvipaðar tígrisbörbum en bara rólegri og verða ekki eins stórir :) eins eru þeir með fleiri svartar rákir.
Allavega held ég að þeir myndu ganga hjá þér ;) eru harðgerir því ég hef ekki misst einn einasta og skalarnir hjá mér sýna þeim engan áhuga:) Allavega er ég mjög hrifin af þessum fallegu litlu torfufiskum mínum :P
200L Green terror búr
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Post by bryndis »

Sirius Black wrote:En annars lenti ég einmitt í þessu líka með neon tetrur Embarassed setti 10 stykki en svona 4 lifðu þegar ég tók 3 af þeim upp úr, ein vildi ekki láta ná sér sama hvað ég reyndi :S þannig að hún fékk að vera og bjóst ég ekki við a hún myndi lifa lengi Razz en núna hálfu ári síðar liggur við er hún en á lífi Very Happy algjör hetja.
Hinir fiskarnir hafa greinilega átt jafn erfitt með að ná henni og þú :)

En með fimmrákabarbana, þá var ég einmitt líka að pæla í þeim. Mér finnst tígrisbarbarnir svo ótrúlega flottir, en hef heyrt hvað þeir eru árásargjarnir, sem er ekki nógu sniðugt. Annars eru þeir frekar minni en allir hinir fiskarnir, ætli þeir séu líka að bögga fiska sem eru margfalt stærri? En fimmrákabarbarnir eru líka sniðugir í staðin.. ætla að skoða þetta.
Vargur wrote:
Síkliðan wrote:Svartneon eru aðeins stærri en neon, svona um 0.5cm stærri og aðeins lengri í hæð.
Það er til slatti af Svartneon í dýragarðinum.
Svartneon er líka til hjá þessum gaur http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?p=64170#64170
...og reyndar sítrónutetrur líka.
hehe já, ég ætti kannski að hafa samband við þennan gaur. Ætli hann sé líka með fimmráka barbana? ;)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

mæli með rauðhausum, false rummy nose. petitella georgiae, held ég að það sé. Annars eru til 3 týpur af rummy nose, man ekki alveg hver er rauðastur á hausnum. Flottasti hópfiskurinn að mínu mati, alver frábærir í 10+ hóp.
Post Reply