Fiskabúrasmíði

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Puttinn virkar, en enn betra að nota eitthvað tól í það, þá verður það enn jafnara. Svo er þetta líka bara spurning um að vera passlega sparsamur með kíttið og þá þarf jafnvel ekki að slétta úr.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Eftir allar þessar umræður held ég að ég verði nú að prófa að smíða lítið búr einhverntíman, læt þó vanari menn sjá um stofustássið.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

þú jafnar kíttið út með blautum putta og notar síðan gúmmí í þeirri stærð sem henntar búrinu margar gerðir og stærðir til þannig að þú ræður nákvæmlega hvað mm stærð þú vilt
og svo þú farir ekki að hegða þér eins og bóndi sem færi að handmjólka í stóru fjósi ( svipað og að nota teip ) þá skal ég bara koma og setja þetta saman þegar glerið er klárt
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Holí mólí, gengið hefur greinilega áhrif á glerverð, var að fá svar frá íspan:

VERÐIÐ ER EFTIRFARANDI.

12MM VENJULEGT GLER ÓSLÍPAÐ(6STK) = 46.794.-
12MM VENJULEGT GLER SLÍPAÐ(6STK) = 81.563.-

ÞAÐ KOSTAR 683.- AÐ BORA 1 GAT.

12MM STARPHIRE GLER ÓSLÍPAÐ(1STK) = 34.650.-
12MM STARPHIRE GLER SLÍPAÐ(1STK) = 43.230.-

ÖLL VERÐ ERU MEÐ VSK
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Já þetta er aðeins meira en ég hefði haldið...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ætli það sé hægt að fá þetta einhversstaðar annars staðar frá, glerborgir e.t.v.?
Prófa að meila á þá.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Jæja, er búinn að vera að lesa mig til um glerþykkt og öryggi varðandi það.
Ég er eiginlega orðinn alveg harður á því að hafa ekki glerlista ofan á búrinu, sem er víst kallað eurobrace. Til þess að búrið sé alveg safe án nokkura auka glerlista eða annars, þá þarf glerið að vera 18-20mm þykkt.
Þá velti ég fyrir mér hvað þetta flykki mundi verða þungt? Ætli það væri þá ekki best að láta setja gripinn saman heima hjá mér. Væri væntanlega ógerningur að bera þetta samansett upp stiga á aðra hæð.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Myndi gera ráð fyrir svona 150 - 200kg
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Jæja, þá er komið verð á heildarpakkann miðað við 19mm gler í allt og framhliðin úr starphire.
153.000 ef allt er óslípað. Ég mundi svo hafa alla framhliðina slípaða og hliðarnar sem snúa upp, ca. 10000 í slípun....... Djöfull verð ég að fara að vera ljúfur við konuna :?
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Mér finnst þetta ekki vera svo slæmt verð, ég keypti 400L Rio búrið mitt á 80þús í fiskabúr.is fyrir rúmlega ári. :)
400L búr kostar 160þús sem að er að mér sýnist sama verð og þú borgar fyrir 600L búr. :-)
Gangi þér vel með þetta.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

þetta er náttúrulega bara glerið, enginn skápur, ekkert lok, engin dæla, ekki einu sinni kítti eða samsetning á búrinu, þannig að þetta er kanski ekki alveg samanburðarhæft. Á móti kemur að það er náttúrulega ekki starphire gler í juwel búrum. Starphire glerið (framhliðin) er stór partur af þessu, 67000... bara framhliðin :shock:
Þetta væri því nær 100 þúsundunum ef ég notaði bara venjulegt gler.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Hefur þú séð muninn á fiskunum með starphire gleri ?
er þetta að virka ?
hvað var m2 verðið á 19 mm
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Framhliðin er náttúrulega 200*55 þannig að hún er rétt rúmur fm. hver fermeter er því eitthvað um 60 þúsund kallinn Ég hef ekki séð muninn á glerinu með berum augum, en bara í gegnum tölvuskjá, miðað við það og frásagnir manna þá er munurinn mikill, sérstaklega þegar komið er í svona þykkt gler. Þar sem þetta búr á að verða stofustássið á heimilinu, þá er ég tilbúinn að spreða í þetta.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Já það verður gaman að sjá hvort þetta breyti miklu
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ertu búinn að panta þetta ? Ætlar flísameistarinn að líma djásnið saman ? :-)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég er ekki búinn að panta, ætla að byrja á því að dúlla mér eitthvað við að smíða skáp undir þetta, fer væntanlega í að panta þegar ég er kominn eitthvað á leið með það. Það er ekki hvar sem er sem ég get geymt 200kg af gleri í langan tíma.

Varðandi flísameistarann, þá er ég búinn að vera að daðra svolítið við hann varðandi þessi mál.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Gera skápinn skotheldan og síðan panta glerið
Síðan verður bara fjölmennt á staðinn til að sjá hvort kallinn standi undir væntingum í kíttun eða hvort hann sé bara goðsögn í eigin höfði
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þetta er bara orðið heljarinnar áskorun. Já, ætli það sé ekki best að fullklára skápinn áður en glerið kemur. Það þarf reyndar að sérpanta allt þetta gler og það getur tekið 4-6 vikur segja þeir.
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Sven wrote:Eftir allar þessar umræður held ég að ég verði nú að prófa að smíða lítið búr einhverntíman, læt þó vanari menn sjá um stofustássið.
Hvað með að kaupa gler í lítið búr og æfa sig að smíða það, skera það svo bara í sundur og kítta aftur og aftur og aftur þar til snilligáfan er fullþróuð?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

LOL sé alveg fyrir mér einhvern hérna setja saman fiskabúr og vera ekki búinn að fylla það af vatni og fiskum áður en það gæfist tækifæri til að skera það í sundur aftur....
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þori ekki að gambla neinu með 150 þúsund króna gler í höndunum. Geri ráð fyrir því að það sé tvennt ólíkt að líma saman 60 lítra búr á móti 600 lítra búri. Enda verður glerið í þessu búri rétt um 200kg.
Post Reply