Hvar fær maður bestu fiskana?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

snorrinn
Posts: 32
Joined: 20 Jan 2009, 23:09

Hvar fær maður bestu fiskana?

Post by snorrinn »

Ég er nýr í þessu hobbýi og langar að heyra (frá aðila sem á ekki hagsmuna að gæta) hvar er best að versla fiska og fylgihluti? Er núna að hugsa um gotfiska aðalega?

Takk fyrir
Snorrinn
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

ég hef séð flotta gotfiska í öllum búðunum
og ef ég væri að leita færi ég í allar búðirnar og tæki bara það besta
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skurdur
Posts: 53
Joined: 20 Dec 2008, 20:51

Post by skurdur »

Ég myndi líka líta við hjá Vargi... Hann er með fullt af fiskum og fylgihlutum á betri kjörum en gengur og gerist í búðunum...

http://www.fiskaspjall.is/viewforum.php?f=29
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Dýragarðurinn síðumúla 10.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

það er líka fiskó og trítla.... úrvalið er kannski ekki það sama á hverjum stað og um að gera að skoða hvað er til og hvað það kostar
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Úrval getur verið misjafnt á hverjum tíma í verslunum, um að gera að taka bara hringinn, skoða og gera verðsamanburð.
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

það er svaðalega mikið af gotfiskum núna í fiskó.
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Kolli93
Posts: 82
Joined: 19 Jan 2008, 21:04

Post by Kolli93 »

án efa fiskó mæli eindregið með henni :wink:
1x270l búr
1x30l búr
2x yellow lab
2x acey mapanga
2x demosoni
1x moori
1x ahli
2x anokara ob
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Ég myndi allavega hugsa mig tvisvar um áður en ég keypti fiska í Dýraríkinu þeir eiga það til að vera margfalt dýrari þar en í öðrum búðum.
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

t.d. kostar bardagakerling 2744 kr. í dýraríkinu en 790 hjá tjörva :?
kermit
Posts: 4
Joined: 06 Feb 2007, 16:07

Post by kermit »

Haltu þig sem lengst frá Dýraríkinu. Hef ekki séð önnur eins verð
á fiskum eins og þar.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Þó skal hafa í huga að þótt sumir séu oftar dýrari en aðrir þá skiftir öllu máli að fá fisk í þeim gæðum sem maður leitar eftir
ef ég hefði haft laust búr um daginn hefði ég keypt tvo fiska í Dýraríkinu því þeir stóðust mínar kröfur og ég hafði ekki séð þá góða í öðrum búðum og þá skifti verðið ekki svo miklu ef þið skiljið hvað ég á við
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

það sem er eina góða við þetta blessaða dýraríki að það er lang flest til þar... og það er opið á sunnudögum (eini tíminn sem ég kemst að skoða) :?
User avatar
Kolli93
Posts: 82
Joined: 19 Jan 2008, 21:04

Post by Kolli93 »

EiríkurArnar wrote:það sem er eina góða við þetta blessaða dýraríki að það er lang flest til þar... og það er opið á sunnudögum (eini tíminn sem ég kemst að skoða) :?

líka opið i fiskó á sunnudögum :D :D
1x270l búr
1x30l búr
2x yellow lab
2x acey mapanga
2x demosoni
1x moori
1x ahli
2x anokara ob
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Kolli93 wrote:
EiríkurArnar wrote:það sem er eina góða við þetta blessaða dýraríki að það er lang flest til þar... og það er opið á sunnudögum (eini tíminn sem ég kemst að skoða) :?

líka opið i fiskó á sunnudögum :D :D
mér finnst reyndar ekki vera neitt til í dýraríkinu af fiskum.... sennilega af því að þeir eiga ekkert af því sem ég vil! ég neyðist til að versla varahluti sem þeir hafa einokun á en reyni frekar að panta á netinu :) fiskó er einmitt líka fín, mér finnst einstaklingsframtakið mun meira virði en verslunarkeðjur með illa upplýstu starfsfólki.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þó að dýrarikið sé (oft) dýrt þá eru þeir yfirleitt með fallega og vel aldna fiska. Sérskalega í búðinni í garðabæ. (Molduhraun)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
maggmagg
Posts: 26
Joined: 07 Feb 2009, 23:50

Post by maggmagg »

sjálf fer ég orðið beint í dýragarðinn, æðisleg þjónusta og þæginlegt að fara þangað og þeir vita hvað þeir eru að gera og með sanngjörn verð:)
þeir fá einnig sendingu að öllum líkindum á fimmtudagin eftir viku fiska og gróður.

annars hef ég bara yfirleitt rúllað hringinn í búðirnar og keypt sitt lítið af hverju á hverjum stað :lol:
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

fisko er eina búðin held ég sem ég hef aldrei farið í :? þarf að farað kíkja í hana :D
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það var mjög gott úrval í Fiskó seinast þegar ég fór þangað.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
snorrinn
Posts: 32
Joined: 20 Jan 2009, 23:09

Post by snorrinn »

Takk fyrir aðstoðina.
Snorrinn
Mörðurinn
Posts: 133
Joined: 25 Feb 2009, 17:19

Post by Mörðurinn »

Tjörva :D
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Mörðurinn wrote:Tjörva :D
Ég get ekki verið sammála því, hef heyrt ansi marga lenda í sjúkdómavandræðum með fiska frá honum. Svosem ekki honum að kenna, en birginn hans er greinilega ekki með allt á hreinu.

Hinsvegar eru verðin hjá honum frekar hagstæð, ef maður vill taka sénsinn.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Mörðurinn
Posts: 133
Joined: 25 Feb 2009, 17:19

Post by Mörðurinn »

Ja, ég hef verið að versla mjög mikið hjá honum og allt er í lagi hjá mér:D
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Ekkert slæmnt út á Tjörvar sjálfan að gera.Byrgirinn er bara ekki góður þú getur feingið stærri eða minni en þú pantaðir. svo er doltið um það að það séu að koma vitlaus afbrigði,en það getur einginn kept við verðinn hjá kallinum.

Nema kanski þeir sem eru að rækta hér heima.en það er náturlega eithvað takmarkað við tegundir eins og er.



Mín reynsla er bara góð eins og er.
Mörðurinn
Posts: 133
Joined: 25 Feb 2009, 17:19

Post by Mörðurinn »

Tjörvi er nátúrulega bestur! og Vargurinn líka:D hann er með fínt framboð af fiskum að ég held :)
Last edited by Mörðurinn on 25 Feb 2009, 20:43, edited 1 time in total.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er hægt að fá góða fiska allsstaðar og jafnvel slæma fiska líka en að segja að Tjörvi sé með bestu fiskana er hreinlega fáranlegt og sá sem það segir hefur sennilega ekki keypt fiska annarsstaðar.
Ég hef ekkert á móti Tjörva nema síður sé enda kaupi ég stundum fiska af honum en reynsla fólks af þessum pöntunum er hjá ansi mörgum frekar slæm.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

það getur engin verslun verið betri en varan sem hún selur. ef að Tjörvi kaupir af vondum byrgja þá er það eins og maður panti á netinu beint frá þessum aðila. hann tekur nánast enga áhættu nema að maður sæki ekki fiskinn. þetta er bara ákveðinn tegund af þjónustu, hann er milliliður og tekur litla áhættu og örugglega ekkert rosalega þóknun fyrir. ef maður verslar við verslanir með lager þá veit maður að maður er líka að borga fyrir húsnæðið, launin og rýrnunina. sumir hafa reynslu og ráðleggingar og sumir tala út úr r****atinu á sér. ef maður verslar af einstaklingum borgar maður ekki skatt og fær enga ábyrgð heldur þarf að treysta honum persónulega.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Tjorvi er yfirleitt ekki með háklassa fiska þó að úrvalið sé gott. Að mínu mati eru fallegustu og heilbrigðustu fiskarnir í Dýragarðinum, Síðumúla 10.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Maður tekur meiri áhættu við að versla við Tjörva, því að fiskarnir sem maður pantar sér koma beint frá byrgjanum og maður verður að taka við þeim strax og þeir koma og það verður að taka við þeim, sama í hvaða ástandi þeir eru.

En fiskarnir eru oft fallegir sem maður fær

Annars versla ég oftast við dýragarðinn, Trítlu, Fiskó og hérna viewtopic.php?t=6188


:-)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég ætlaði nú ekki að tjá mig mikið um hvar mér þykja fiskarnir bestir en þar sem komnar eru ansi margar skoðanir þá get ég svo sem upplýst um hvar mér finnast fiskarnir bestir.

Að mínu mati hafa Dýragarðurinn og Dýraríkið út í hrauni vinninginn.
Strákarnir í Dýragarðinum búa yfir mestu þekkingunni og eru með góða fiska á sanngjörnu verði.
Dýraríkið í hrauninu hefur verið í sérklassa með gæði fiska að undanförnu en ókosturinn er fáranlega hátt verð og ef Róbert er ekki á staðnum er stundun nánast óhæft starfsfólk í afgreiðslu og ráðleggingum sem getur ferið slæmt fyrir nýliða.
Post Reply