Project - Standur undir fiskabúr
Moderators: Vargur, keli, Squinchy
Project - Standur undir fiskabúr
Ég er að reyna að áætla hvað það myndi kosta að setja saman eitt stykki
stand og mig vantar smá upplýsingar frá ráðagóðum
Standurinn myndi líta svona út:
Ég er búinn að hringja upp í Húsó og þeir selja 16mm MDF plötur í stærð
1222x2740 og þegar ég tek saman allt tré efnið í standinn þá passar það
mjög rúmlega á plötuna. Þessi plata af MDF kostar 8.775 kr án afsláttar.
Búrið sem ég áætlaði að taka í þetta er frá Varg og er 800x400x400mm
og ég teiknaði standinn miðað við þá stærð. Þannig búr ætti að
smellpassa ofan í standinn.
Hérna eru málin á skápnum:
Mig langar að vita hvað ykkur finnst um þessa þykkt á plötunum, hvort
hún sé næg og hvernig lýsingu hefur fólk verið að setja í svona búr?
Einnig ef fleiri hafa tekið sér MDF til að smíða úr, vitiði um ódýrt en gott
verkstæði sem sprautar plöturnar?

Last edited by Ragnarvil on 11 Feb 2009, 22:05, edited 1 time in total.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Ég myndi gera grindina úr 2x4" til dæmis og svo bara mdf utaná. Annars lítur þetta vel út og verður gaman að fá að fylgjast með. Af hverju ekki að taka aðeins stærra búr fyrst þú ert nú að þessu á annað borð?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Jú MDF verður lélegt um leið og það kemst í tæri við raka, þetta er eiginlega bara hert sag. Það er samt ódýrt náttúrulega og auðunnið. Ég reyndi að hanna borðið þannig að burðurinn væri beint á plöturnar, er að vona að það sleppi ?ég myndi nú bara ekki þora að setja saman svona skáp aðeins úr mdf plötum, ertu viss um að það þolir 150kg ?
Svignar ekki mdf ef það blotnar?
Ég myndi persónulega gera grind úr alvöru spýtum og klæða svo.
Ég gæti bætt við stoðum innan í skápinn í hornin. Ég gæti haft þær 2x2 í hornunum. það eyðileggur samt dálítið útlitið þegar kemur að því að setja lamirnar, getur orðið vandamál.Ég myndi gera grindina úr 2x4" til dæmis og svo bara mdf utaná. Annars lítur þetta vel út og verður gaman að fá að fylgjast með. Af hverju ekki að taka aðeins stærra búr fyrst þú ert nú að þessu á annað borð? Smile
Veistu nokkuð hvað það kostaði ?smiðurinn sem smíðaði skápinn minn gerði hann úr mdf en lét sprautulakka hann... það var ekki ókeypis! hann sagði að hann myndi bólgna ef rakinn kæmist inn fyrir lakkið og ég endaði með að setja viftu í "hobbýherbergið"
það kostaði 30 þús. kall með einhverju prútti hjá smiðnum.... skápurinn er reyndar fyrir 2 búr og vesen
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php ... highlight=

MDF tekur þetta léttilega enda ótrúlega sterkt efni þegar rétt er farið með það, svo er þetta nú ekki það stórt búr
Og ef þú hefur ekki þegar planað það þá myndi ég mæla með því að skipt skápnum í tvennt með því að setja MDF plötu í miðjan skápinn, með því styrkir þú skápinn helling svo lookar það betur að mínu mati
Og eins og þú sagðir að láta topp plötuna liggja beint ofan á plöturnar, Líma allt saman líka og passa að bora fyrir skrúfum, annars springur MDF-ið

Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Vá 30 þúsund, úff það er alveg tvöfalt það sem ég er tilbúinn í. Ég hef heyrt um fólk sem gerir þetta með svörtu spreyi og tekur svo glæra umferð yfir, það verður náttúrulega ekki jafn flott og sprautað samt.það kostaði 30 þús. kall með einhverju prútti hjá smiðnum.... skápurinn er reyndar fyrir 2 búr og vesen
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php ... highlight=
Þetta er góð hugmynd ég held ég setji þetta þannig upp það myndi styrkja skápinn helling, ég setti burðarstoð fremst við hurðirnar 100x16x700mm en hún sést ekki fyrir hurðunum. Mér líst vel á að bæta þessari miðplötu við til viðbótar við það.Og ef þú hefur ekki þegar planað það þá myndi ég mæla með því að skipt skápnum í tvennt með því að setja MDF plötu í miðjan skápinn, með því styrkir þú skápinn helling svo lookar það betur að mínu mati Smile
Ég er að vona að ef ég get fengið lakk á þetta að þá hverfi sú hætta. Ég hef ekki skoðað aðra kosti en MDF ennþá.Ég er sammála því að styrkja þetta, myndi persónulega ekki treysta mdf til að bera þetta, hvað þá þegar! raki kemst í þetta. Hefurðu skoðað það að nota e-ð annað efni en mdf?
Skápurinn gæti litið svona út að innan.
Krossleggja fingurnar með það einmittgætir líka spónlagt plötuna með harðplasti. og ef þú ert með þetta eins og þú teiknaðir á neðstu myndinni þá heldur mdfið þessu alveg.
Ég var ætla að reyna að finna verð á T5 hráu stæði fyrir 56cm peruna, það gæti gengið í þetta, ég gæti örugglega verið með 2 - 3 T5 stæði í þessu búri býst ég við.
Er ekki hægt að fá fallegar búrperur í T5 stæði annars ?
held að mdf ætti alveg að taka þetta, miðað við teikninguna ertu með hliðar, miðju og bak. það er verulega sterkt! með vatnsheldnina þá getur þú alltaf lakkað sjálfur. það er ekkert betra að láta sprauta, er bara jafnara og flottara. þú þarft bara að hugsa út í það að það safnist ekki raki í viðinn eða myndist pollar, það er eitur!
T5 stæði og ballestir fást í flúrlömpum í hafnarfirði. Þeir eiga líka rakaþétt endastæði. Fullt af T5 perum sem henta í fiskabúr.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ef þið ætlið skrúfa saman MDF plötur, þá er einfaldasta leiðin til þess að ná hámarks styrk við samsetninguna eins og þær sem sjást á myndinni.
Það er ágætt að nota furulista og skrúfa hann í lím á aðra plötuna og skrúfa síðan hina í listann í samsetningu. Ég myndi nota þessa samsetningu á hliðar og toppplötu.
Botninn myndi ég svo skrúfa beint upp í hliðarnar og nota þá langar skrúfur td. 60 - 70mm og bora jafnbreitt og skrúfgangurinn ca. 30mm og svo með grennri bor fyrir restinni. Það sem vinnst með því að bora svona svert gat upp í plötuna er það að hún klofnar síður.

-
- Posts: 207
- Joined: 03 Jan 2008, 20:55
- Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára
Ég er með skáp úr 22mm mdf undir mínu búri pg það er 396l
allar hliða plötur standa á botninum s.s. bak, hægri, vinstri og skipting í miðunni svo kemur topp platan ofan á allt
svo er líka smá rammi utan um búrið neðst s.s. er ofan á topp plötunni sem mér sýndist þú vera búinn að teikna líka en ég er ekki alveg nógu sáttur við hann og ég myndi frekar líma fólíu eða eithvað þannig neðst á búrið
annars ef þú ætlar að spauta þetta þá myndi ég mæla með að grunna undir því mdf dregur aðeins í sig fyrst

Birgir Örn
396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)

Ég er búinn að vera að reyna að fá verð í sprautun á svona stand, menn virðast ekki vera fúsir til að taka það að sér.Ég er með skáp úr 22mm mdf undir mínu búri pg það er 396l
allar hliða plötur standa á botninum s.s. bak, hægri, vinstri og skipting í miðunni svo kemur topp platan ofan á allt
svo er líka smá rammi utan um búrið neðst s.s. er ofan á topp plötunni sem mér sýndist þú vera búinn að teikna líka en ég er ekki alveg nógu sáttur við hann og ég myndi frekar líma fólíu eða eithvað þannig neðst á búrið
annars ef þú ætlar að spauta þetta þá myndi ég mæla með að grunna undir því mdf dregur aðeins í sig fyrst
Þetta er svarið sem ég fékk t.d. frá Heggur.is:
Aðrir hafa ekki einusinni svaraðBlessaður, höfum því miður ekki tíma.
Lítur út fyrir að ég þurfi að fara að skoða plan B. Sprauta þetta sjálfur og krossleggja fingurnar að það heppnist.
Jæja þá er ég búinn að fá verð í lökkunina:
Ég er að leggja lokahönd á hönnunina á lokinu 432x832x90mm, stæði fyrir T5 ætti að passa rúmlega í þessa stærð:
T5 Stæði- 611mm(length)X24mm(width)X43mm(height)
Ég hafði hugsað mér að vera með 2 - 3 stæði, ég er ekki nógu sleipur í útreikingum á wöttum á líter en er ekki oftast miðað við 0,5W/L.
Miðað við að T5 peran sé 28W þá ættu 2 - 3 að vera hæfilegar í 120L búr.
Annað sem ég er í vandræðum með er hönnunin á lömunum fyrir hurðarnar. Ég myndi helst vilja að það heppnaðist að láta þær lokast þannig að þær falli vel að og lamirnar sjáist ekki. Allar hugmyndir hvað þetta varðar eru vel þegnar
Ég held ég fari bara ferkar út í það að sprauta þetta sjálfur með úðabrúsum, svörtum og glærum yfir. Úðabrúsi kostar 900kr í byko og húsó þannig mér sýnist það koma mun hagstæðar útSamkv þessum málum kostar þessi lökkun 49.000 + vsk
Það miðast 40% hálfmatt
Ég er að leggja lokahönd á hönnunina á lokinu 432x832x90mm, stæði fyrir T5 ætti að passa rúmlega í þessa stærð:
T5 Stæði- 611mm(length)X24mm(width)X43mm(height)
Ég hafði hugsað mér að vera með 2 - 3 stæði, ég er ekki nógu sleipur í útreikingum á wöttum á líter en er ekki oftast miðað við 0,5W/L.
Miðað við að T5 peran sé 28W þá ættu 2 - 3 að vera hæfilegar í 120L búr.
Annað sem ég er í vandræðum með er hönnunin á lömunum fyrir hurðarnar. Ég myndi helst vilja að það heppnaðist að láta þær lokast þannig að þær falli vel að og lamirnar sjáist ekki. Allar hugmyndir hvað þetta varðar eru vel þegnar
Yfirleitt notað Wött per gallon. Ef það er yfirfært á lítra væri það (Wött/L)*3,76 til að fá svipuð gildi.
Þú getur mest verið með 24W T5HO í þessu búri uppá lengd að gera
# W WPG WPL
1 24 0,752 0,2
2 48 1,504 0,4
3 72 2,256 0,6
4 96 3,008 0,8
0,6 WPL er um það bil medium ljós þar sem þú ættir að geta verið með margar tegundir af plöntum í og í 0,8 WPL ertu kominn í high ljós þar sem allar plöntur ættu að ganga. Hinsvegar ef þú passar þig ekki gæti búrið orðið fullt af þörungi í staðinn
Ef þetta væri ég myndi ég fara í 4 perustæði. Lang skemmtilegast að geta verið með hvaða plöntur sem er og munar litlu í verði þar sem það getur verið kannski nokkrir hundraðkallar á milli ballesta og fatningarnar eru frekar ódýrar. Ef þú lætur svo flúrlampa smíða þetta fyrir þig þá smíða þeir þetta í pörum yfirleitt (allavega síðast þegar ég fór þangað að kaupa dót sýndi hann mér einmitt eitthvað sem hann var að smíða fyrir fiskabúr og það var í pörum).
Ég setti 3x18W T8 í 60L búrið mitt um daginn og það kostaði um það bil 2500kr fyrir electróníska ballest, 1200kr fyrir kjarnaballest, 350kr fatning, 4M af vír ~ 250kr, skrúfur ~ 50kr, startarar ~ 400kr
Samanlagt var þetta í kringum 5000kr. Þetta hefði verið ódýrara ef ég hefði valið að fara í kjarnaballest til að byrja með en ég hélt að það væri svaka mál að vera með startara þannig að ég valdi electróníska. Það tók hinsvegar 10 mín að læra að tengja kjarnaballest þannig að ef þú vilt spara mæli ég með henni.
Með lamirnar mæli ég með að þú kíkir á heimasíðuna hjá ikea, þeir eru með fullt af þeim fyrir allskonar skápa hjá sér. Mátt endilega koma með myndir þegar þú byrjar að smíða