Byrjandi, vantar ráð með bardagafisk karl

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
svennidal
Posts: 5
Joined: 13 Feb 2009, 23:38
Location: 105 Rvk.

Byrjandi, vantar ráð með bardagafisk karl

Post by svennidal »

Hæ, Ég var að byrja í þessu og byrja svona eiginlega frekar smátt.
Ég er með kúlubúr sem er rétt undir 2l. og er með bardagakarl í því. Ég var að pæla nokkuð honum leiðist eða einhvað þarna. Var að fá hann í dag. Finnst hann líta einhvað dapur út... :/
Ég set mynd með og þið segjið mér kannski nokkuð þetta sé ekki fínt umhverfi fyrir hann.
Image
Svenni Dal
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þessi kúla býður ekki uppá að bæta neinu við, hafðu hann bara stakan.
mundu svo bara að vera duglegur að gera vatnsskipti, svona lítið vatnsmagn er fljótt að verða lélegt
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

til að byrja með þá eru 2 lítrar ekki mikið og svo mæla flestir ekki með að setja fiska í kúlubúr.

Ég myndi fjárfesta í aðeins stærra búri, kannski 10L ,fyrir bardagafiskinn og setja smá gróður hjá honum.

Annars, velkominn í hobbýið:) Það er gott að byrja smátt og færa sig svo yfir í stærra og meira seinna meir, þegar þú hefur meiri reynslu.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

bardagafiskar eru yfirleitt svona ''þunglindir''.

minn var einmitt líka svona.
kristinn.
-----------
215l
svennidal
Posts: 5
Joined: 13 Feb 2009, 23:38
Location: 105 Rvk.

Takk fyrir svörin :)

Post by svennidal »

Takk fyrir svörin og hjálpina :)
Svenni Dal
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

ég mindi láta meira vatn hjá honum
:)
User avatar
sirarni
Posts: 624
Joined: 18 Jan 2009, 17:46
Location: Kópavogur

Post by sirarni »

Ég mundi kaupa stærra búr. :?
User avatar
Junior
Posts: 128
Joined: 04 Feb 2009, 17:07

Post by Junior »

mæli endilega með stærra búri, verslunin ilva er að selja blómavasa sem heitir aquarium sem er töluvert stærri en þetta á eithvað smotterí eithvað um 2000 krónur. var að kaupa mér svona undir seyðin. flott búr.
-Andri
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Post by bryndis »

Ég byrjaði nákvæmlega svona :) Fékk kúlu með bardagafisk í stúdentsgjöf.. Minn var líka svona rosalega dapur greyið.. Svo færði ég hann í 60l búr, og að lokum 160l búr og hann er ennþá hálf þunglindur :) Enda kallaður "fýlupúkinn" á heimilinu... Kannski að hann þyrfti kerlingu, en það er alls ekki ráðlagt þegar þú ert með svona lítið búr.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég var einhverntíman að lesa mér til um bardagafiska, einhverstaðar sá ég að ein ástæðan fyrir því að þeir eru oft ekki mjög aktífir er að stofuhiti er heldur kalt fyrir þá. þeir þola það alveg en væru hressari í aðeins heitara vatni. lítið hægt að gera í því með kúlu nema að passa að hún sé á hlýjasta staðnum sem möguleiki er á.
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

ég er búinn að kynnast tveim tegundum af bardagakörlum, það eru rólegir og rólegir/árásagjarnir. ég er með 3 bardagakarla, einn í 120l og hann svamlar umm og gantast aðeins í bardaga kerlingunum en svo er ég með einn í 54l búri og hann gerir mest lítið nema synda eftir einum platy hjá mér og þar á milli er hann bara afslappaður og fínn. Síðan er einn sem ég varð að taka frá gúbbý fiskunum mínum, hann gerði ekki annað en að narta í sporðinn. Lét alla í friði nema einn lítinn gúbbý. Núna er hann bara einn hress í 5l kúlu með No Fishing skillti. :D
Þannig að þessi kúla er alveg meira en nóg..allavega hef ég heyrt að þeir þurfi mest lítið til að lifa af, gætu lifað í sultukrukku. Get ekki staðfest þetta með krukkuna en hann var nokkuð góður hjá mér í 1l plast dollu þangað til ég fékk kúluna :D
Post Reply