Ætla að setja 60L búrið mitt upp sem gróðurbúr en gallinn er sá að það er aðeins eitt perustæði (Tetru búr) og var ég að spá því hvaða pera sé best til að hafa, til að fá góða birtu og gott ljós fyrir gróður.
Peran sem er núna er einhver Daylight pera (15W) sem er ekki sérstaklega gerð fyrir fiskabúr. Þessi pera olli miklum brúnum/grænum þörungi á glerinu. Er því að spá í að skipta um peru í því bara til að fá bestu birtuna fyrir gróður og fiskana Vil ekki hafa allt búrið í þörungi
Og því er spurningin, hvaða pera er best í svona búr, fyrir plöntur, þegar aðeins er hægt að hafa eina peru?
Aquastar 15w 45cm.
Frábær pera bæði ein og sér og með öðrum perum, gefur fallegan bláan tón og kallar vel fram litina í fiskunum.
Verð kr: 1.490.-
Vörunr: PE009
Sá þessa hérna á spjallinu hjá Vargi, myndi þessi ganga fyrir gróður og þessháttar?
Best væri að hafa gróðurperu en lýsingin af henni einni og sér er frekar leiðinleg.
Aquaatar eru frábærar perur og gefa fallega lýsingu í búrið. Ég hef notað þessa peru eina og sér fyrir gróður og það kom ágætlega út.
Sirius Black wrote:Aquastar 15w 45cm.
Frábær pera bæði ein og sér og með öðrum perum, gefur fallegan bláan tón og kallar vel fram litina í fiskunum.
Verð kr: 1.490.-
Vörunr: PE009
Sá þessa hérna á spjallinu hjá Vargi, myndi þessi ganga fyrir gróður og þessháttar?
er í sama vandamáli með tvö lítil búr hjá mér. er þetta stungupera? mér var tjáð það í ónefndri gæludýraserslun í bænum að það væri bara til daylight perur í stunguperu forminu