Vantar hjálp, litlir sniglar í búrinu mínu!

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Rúsína
Posts: 56
Joined: 20 Feb 2008, 11:31
Location: Reyðarfjörður

Vantar hjálp, litlir sniglar í búrinu mínu!

Post by Rúsína »

Ég fékk nýlega java mosa frá kunningja mínum, en með honum komu nokkrir agnarsmáir sniglar sem núna eru búnir að fjölga sér það mikið að það er hrein og bein sjónmengun að horfa á búrið núna!...

Getur einhver gefið mér ráð hvernig ég geti losað mig við þá? ég hef engan áhuga á að setja nein efni í búrið, þar sem þetta er seiðabúr og ég hætti ekki á að skaða seiðin.

Hjálp!
85 L
50 L
30 L
25 L
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Hef heyrt að gúrka laði þá að og þeir safnast sem sé á gúrkuna og svo er hægt að taka hana upp úr búrinu og svo þarf að gera þetta alveg þónokkuð oft ef þetta er mikið :). Var með svona hjá mér og fékk mér bótíur sem björguðu þessu en þær náttúrulega henta ekki í seiðabúr :P
200L Green terror búr
User avatar
Rúsína
Posts: 56
Joined: 20 Feb 2008, 11:31
Location: Reyðarfjörður

Post by Rúsína »

Snilld, ég prófa þetta með gúrkuna :D
85 L
50 L
30 L
25 L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

svo er náttúrulega snilld að drepa þá sem maður sér, fá sér litlar bótíur, já eða gúrku.

Það var sniglaplága í búrinu mínu. Algerlega óþolandi. Svo fékk ég mér eina bótíu og núna sjást ekki sniglar.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég gef reglulega gúrku í gróðurbúrið mitt en ég get ekki séð að sniglarnir sæki eitthvað frekar í hana en annan gróður. eina sem ég get ráðlagt þér þar sem þú getur varla sett bótíu í seiðabúrið að bara fara með hendina ofaní búrið og kremja kvikindin. ég drap um 20 stykki í kvöld og geri það daglega! :roll: ef þú ert með sand/möl í búrinu þá þyrftir þú að tæma búrið, sótthreinsa það og sjóða sandinn, sniglarnir lifa í honum og í öllum gróðri.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það getur verið afar erfitt að losna alveg við snigla þegar þeir koma upp í búri hjá manni án þess að rífa búrið niður og sjóða allt. Hinsvegar er hægt að halda fjöldanum í þolanlegri tölu með því að vera duglegur að kremja snigla á glerinu (fiskarnir éta kremjuna svo) og passa sig að gefa ekki of mikið. Meiri matur = meiri sniglar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply