Losna við snigla
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Losna við snigla
Góðan dag.
Ég er með nokkur fiskabúr, þar af eitt 100L með 20-30 Gúbbí fiskum.
En þeir eru alls ekki einu lífverurnar í búrinu, heldur eru hundruð snigla af þremur tegundum.
Ein sniglategundin er lík þessari hérna:
Þeir fara hátt og lágt um búrið: Borða þörunga af glerinu eða hanga á plöntum og flotgróðri. Ég hef líka séð þá fljóta beint upp stundum.
Þessi tegund hefur líklegast komið með gróðri sem ég hef fengið.
Hin tegundin lítur einhvernvegin svona út:
Þeir hanga mest á botninum. Grafa sig ofan í sandmölina og koma svo uppúr ef það er æti að finna eða silast um steina og annað dót.
Ég fékk þessa í dýraríkinu þegar mér fannst of lítið líf vera í búrinu mínu.
Svo er líka þriðja tegundin, sem kom örugglega líka með einhverjum gróðrinum, en er nánast útdauð.
Hún lítur einhvernvegin svona:
En það er of mikið af þeim í búrinu mínu... Þeir sækja á plönturnar, kannski helst fyrsta tegundin. Og ég met plönturnar næstum jafn mikið og fiskana, svo það gengur ekki. Ég vil helst komast hjá því að taka alla sandmölina uppúr og sjóða hana, eða setja eitthvert eitur út í.
Ég hef heyrt af nokkrum aðferðum og vildi vita hvað virkar best...
Þ. e. setja gúrku í búrið og taka hana svo úr þegar sniglarnir safnast á hana.
Eða þá kaupa sér önnur dýr sem éta snigla. Þá jafnvel kaupa eplasnigla... Það væri gaman að eiga þá og það er auðvelt eiga við þá ef með þarf.
Hvaða aðferð mælið þið með til að losa við snigla?

Það er ekki nóg að sjóða sandin þú verður að taka gróðurin, aukahlutina og dælubúnaðin allan og þrifa það.
Bótiur eru að sjálfum sér engin lausn en til bóta.
Ég held að það þurfi að hella klór i vatnið til að drepa þennan ófögnuð en sú aðgerð er örugglega mjög vandmeðfarin og ekki nema á færi færustu sérfræðinga

- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Það einmitt gerðist hjá systur minni það var allt morandi í sniglum þannig að hún fékk sér eina bótíu, fyrst held ég að hún hafi varla fattað að borða sniglana sem voru, þar sem hún horaðist bara niður og var orðin eins og lifandi beinagrind :S vorum bara að bíða eftir að hún dæi, svo held ég að hún hafi farið að borða snigla og braggaðist alveg helling á bara um tveimur vikum og orðin feit og mikið stærri En hún náði reyndar ekki að borða alla og eyða þeim, held að það hafi bara verið of mikið og hún ekki haft undanLindared wrote:ég fékk mér bótíu í 100L búrið mitt, það var allt morandi í sniglum. Á 2-3 vikum voru þeir horfnir og bótían búin að fitna helling.
200L Green terror búr
Við Pípó keyptum okkur sitthvora lúkuna úr sama búrinu af Java mosa fyrir um ári síðan. Búrið hans fylltist af sniglum en ég varð ekki var við eitt einasta kvikindi.
Ég hallast helst að því að hann var með Gubby en ég með Afríku-Sikliður sem ég gruna um að hafa étið helvítis kvikindin.

Hlynur Jón Michelsen
Sendibill.com
Sendibill.com
haha það er egilega bara mjög líklegt, sérstaklega ef sniglarnir voru litlirSendibill wrote:Við Pípó keyptum okkur sitthvora lúkuna úr sama búrinu af Java mosa fyrir um ári síðan. Búrið hans fylltist af sniglum en ég varð ekki var við eitt einasta kvikindi.
Ég hallast helst að því að hann var með Gubby en ég með Afríku-Sikliður sem ég gruna um að hafa étið helvítis kvikindin.
-Andri
Þakkið ykkur fyrir góðar ráð.
Ein bótía væri mjög spennandi, en ég býst ekki við því að hún nái að klára alla sniglana, sérstaklega þar sem það eru þrjár tegundir af þeim.
Ég held ég fari bara í klikkaða pakkann... Taka alla fiskana úr, setja plönturnar í einangrun, þrífa dæluna og sjóða sandinn.
Ekkert smá, en ég vona að ég hafi tíma í páskafríinu. Eðlan mín verður þá bara að hanga í potti á meðan hreingerningarnar eru eða eitthvað svoleiðis.
Svo hlakka ég líka til að fá mér anchistrur sem geta tekið við af sniglunum við að hreinsa búrið

- kiddicool98
- Posts: 907
- Joined: 04 Sep 2008, 16:13
- Location: 104 rvk
- Contact: