Hvað segið þið fiskifræðingarnir?
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Hvað segið þið fiskifræðingarnir?
Núna ætlum við hjúin að fá okkur fiska en við búum úti á landi. Förum á Akureyri um helgina og frá fös til sun. Höfðum hugsað okkur að kaupa bara allar græjurnar á laugardeginum þar sem dýrabúðin er lokuð á sunnudegi. En haldiði að fiskarnir muni lifa þetta ferðalag af? Semsagt vera keyptir á laugardegi og svo farið heim á sunnudegi? Eða gæti ég fyllt búrið þeirra af vatni og verið með það í bílnum þannig? Öll ráð vel þegin!
Það væri misþyrming á fiskunum!
Við búum jú á Íslandi. Það er hætta á því að búrið fari í sundur og hitinn fari bara í eitthvað bull. Ef að ég væri þú þá myndi ég bara láta senda mér fiskana eða bara sleppa þessu
Við búum jú á Íslandi. Það er hætta á því að búrið fari í sundur og hitinn fari bara í eitthvað bull. Ef að ég væri þú þá myndi ég bara láta senda mér fiskana eða bara sleppa þessu
Last edited by Mörðurinn on 03 Mar 2009, 18:12, edited 1 time in total.
Getur þetta með 10 lítra (matar plast) fötum, heldur vatninu í réttu hitastigi og skiptir út 1 líter af vatni út á 6 - 12 tíma fresti ef þetta eru margir fiskar
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Jamm, amk ekki reyna að fylla búrið í bílnum
Kaupa fötu - t.d. 10l málningarfötu með loki (verður að vera ný og hrein!) og fara eftir ráðum squinchy.
Kaupa fötu - t.d. 10l málningarfötu með loki (verður að vera ný og hrein!) og fara eftir ráðum squinchy.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Getið þið ekki látið senda ykkur fiskana eftir helgina ?
þá hafið þið góðan tíma til að setja allt upp og gera klárt
þá hafið þið góðan tíma til að setja allt upp og gera klárt
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
Alger óþarfi að stressa sig svona, byrja bara á búrinu og setja það upp í rólegheitum og láta allan búnað virka eðlilega.
Fá svo fiskana í næstu ferð eða láta senda þá og auka þannig líkurnar á að allt gangi vel og minka líkur á óþarfa dauðsföllum í kjölfar flutninganna.
Ef þið viljið endilega kaupa fiskana þá er málið að kaupa bara nokkra harðgerða fiska til að byrja með og bæta svo við síðar.
Fá svo fiskana í næstu ferð eða láta senda þá og auka þannig líkurnar á að allt gangi vel og minka líkur á óþarfa dauðsföllum í kjölfar flutninganna.
Ef þið viljið endilega kaupa fiskana þá er málið að kaupa bara nokkra harðgerða fiska til að byrja með og bæta svo við síðar.
bæði. Þeir eru bara settir í poka, bundið vel fyrir svo súrefnið haldist í pokanum, svo ef einhver sem þú þekkir er að fara með bíl eða flugvél þangað sem þú átt heima, þá getur viðkomandi tekið þá fyrir þig, en ég held að búðir senda með flugi ef fiskar eru keyptir fyrir ákeðinn mikinn pening.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
það er dáldið groddalegt að setja fiska í búrið um leið og það er sett upp ef ég veit rétt er bara um eina verslun að ræða á Akureyri en ef þið prófið að hringja í fleiri á höfuðborgarsvæðinu er kannski meira úrval í boði og þið jafnvel fáið einhvern svona pakkadíl þá fáið þið kannski jafnvel meira fyrir peninginn!
Afhverju er það groddalegt? Er ekki ætlast til þess að það séu fiskar í búrinu???gudrungd wrote:það er dáldið groddalegt að setja fiska í búrið um leið og það er sett upp ef ég veit rétt er bara um eina verslun að ræða á Akureyri en ef þið prófið að hringja í fleiri á höfuðborgarsvæðinu er kannski meira úrval í boði og þið jafnvel fáið einhvern svona pakkadíl þá fáið þið kannski jafnvel meira fyrir peninginn!
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Oftast talið betra að hafa t.d dælu og þannig í gangi í að minnsta kosti sólarhring. Einnig verður búrið oft svakalega gruggugt þegar verið er að stússast í þessu, t.d var ég að setja upp eitt 60L búr og ég sá ekki í bakgrunninn á búrinu lét það setjast yfir nóttina og bætti svo við dælu reyndar nokkrum dögum seinna er svo búin að vera með dælu í nokkra daga og hitara í gangi núna í tvo daga og var að setja tvo fiska í það rétt áðan:) Er reyndar með annað búr þannig að maður er ekki eins spennt og þegar ég var að setja mitt fyrsta búr upp sem sé að setja fiska í þetta vildi gera þetta svona hægt og rólega núna En ég hef samt sett strax fiska í nýtt búr þar sem ég var að skipta um búr og setja á sama stað og gamla búrið var og það gekk fínt og allir lifandi en hefði viljað bíða með að setja þá en taldi betra fyrir þá að vera í 180L búri en smá fötuspretta wrote:Afhverju er það groddalegt? Er ekki ætlast til þess að það séu fiskar í búrinu???gudrungd wrote:það er dáldið groddalegt að setja fiska í búrið um leið og það er sett upp ef ég veit rétt er bara um eina verslun að ræða á Akureyri en ef þið prófið að hringja í fleiri á höfuðborgarsvæðinu er kannski meira úrval í boði og þið jafnvel fáið einhvern svona pakkadíl þá fáið þið kannski jafnvel meira fyrir peninginn!
200L Green terror búr
þú þarft líka að læra um "cycling". ammoníak, nitrit, nitrat hringinn.. þú getur sett bakteríur í búrið, safestart frá tetra og fleiri tegundir en það þarf að koma á ákveðinni hringrás af niðurbroti á úrgangsefnum. ef það gerist ekki þá drepast fiskarnir eftir ákveðinn tíma úr ammoníakeitrun.
Last edited by gudrungd on 03 Mar 2009, 23:06, edited 1 time in total.
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Flóra byggist upp með því að hafa fiska, eða ég hef talið það annars ertu bara með hreint vatn sem dælan er að hringsóla með. Allavega er ég t.d núna að byggja upp flóru í nýja búrinu mínu með því að hafa tvo fiska í því Maður þarf bara að vera duglegri að skipta um vatn svona fyrst um sinn.Síkliðan wrote:Það þarf að byggjast upp flóra í búrinu og oft gott að láta það ganga í viku áður en að fiskar eru settir í.
200L Green terror búr
-
- Posts: 1
- Joined: 02 Mar 2009, 02:13
Ó ég las bara á netinu að það væri lokað á sunnudögum.Freyr Gauti wrote:Ef þú ert að fara versla í Dýraríkinu(blómaval) Akureyri þá er opið þar til 5 á sunnudögum.
Annars gæti ég líka alveg keypt búrið um helgina og látið senda mér fiskana viku eftir að búrið er komið upp. Þau í búðinni geta örugglega sagt mér allt um þetta.