nii, eitthvað lítið. Hrognin voru horfin að morgni 2 dags.
Það er annað par með hrogn núna, hrygndu í gærkvöldi. Í morgun voru þau svo búin að bæta við hrognum þannig að mig grunar að þetta séu 2 kerlingar Get þó ekki verið alveg viss þar sem ég hef ekki séð þau að.
2 hrygningar í dag.. Eiginlega 3 útaf því að kerlingarnar 2 hrygndu aftur. Einn staur og 2 gerðir af hrognum, eitt settið er rauðleitt á meðan hitt er hvítt/glært.
Það var extra mikil traffík í kringum búrið þeirra í gær, verktakar að draga línur inn í töflu og vesen þannig að discusarnir stressuðust upp og átu. Það er ansi fúlt, því ég var farinn að sjá greina fyrir svörtum deplum í hrognunum, sem ég hef ekki séð áður hjá discusunum mínum.
Seiðin enn á sínum stað, verða líklega farin að fylgja foreldrunum eftir á morgun...
Það er frekar mikið af þörungi í búrinu vegna þess að ljósið er búið að vera kveikt stanslaust í hálfa viku á því, þannig að maður varla sér fiskana, og ljósmyndamöguleikar litlir
Sum seiðanna voru komin á foreldrana í morgun. Hellingur var hinsvegar búinn að synda upp í eitt hornið á búrinu og voru saman í hóp þar - ég vona að þau séu bara áttavillt svona fyrst, og finni foreldrana fljótlega.
Þekkir einhver þessa hegðun hjá discusaseiðum - eru þau áttavillt fyrst þegar þau fara að synda og finna svo foreldrana?
Fór heim í hádeginu og þá var megnið af seiðunum búin að finna foreldra sína. Ótrúlega mögnuð sjón að sjá hrrrúgu af seiðum syndandi í kringum foreldrana sína.
Bruni wrote:Gratúlera Keli. Er sammála varðandi fæðingarorlofið og mér finnst nú lágmark að fá mynd af hrúgunni.
keli wrote:Það er frekar mikið af þörungi í búrinu vegna þess að ljósið er búið að vera kveikt stanslaust í hálfa viku á því, þannig að maður varla sér fiskana, og ljósmyndamöguleikar litlir
Ég prófa að taka myndir þegar ég kem heim.. lofa samt engu þar sem búrið býður ekki upp á mikið með glerið svona
Ennþá 20-30 seiði eftir. uþb helmingur ljós og helmingur dökkur. Ég smelli etv inn myndum þegar ég kem heim á eftir. Þau eru orðin ótrúlega stór og éta artemíu.
Svo er bara spurning hvað ég geri eftir helgi.. ég er nefnilega að fara til usa á mánudaginn og verð í viku.. Veit ekki alveg hvernig ég á að haga fóðrun þá..