Co2 kútar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Co2 kútar

Post by Squinchy »

Fékk í hendurnar 9.kg Co2 kút sem er tómur og þarf líklega að yfirfara hann

Þannig að ég spyr þá sem hafa reynslu af Co2 kútum, hvert eru þið að fara með ykkar í áfyllingu og skoðun ?

Og hvað kostaði að fylla ykkar kút og hversu stór er kúturinn þá ?

Einhver sem hefur farið með kút í skoðun ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

ertu að fara búa til Calsium reactor? :idea:
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Nope bjórdælu (Kegerator)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Getur farið með hann í slökkvitækjaþjónustuna eða öryggismiðstöðina til dæmis.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Mæli með slökkvitækjaþjónustunni, þar kostar tvöþúsund og einhvern slatta að fyllta 2kg kút, held að það sé eitthvað um 1600 kr. grunngjald og svo 7-800kr. per kíló.
Ólafur Gíslason & Co held ég að séu líka fínir, eru í Sundaborg 7.
Ég er einmitt með 1 2kg kút sem er ekki skoðaður og orðinn 10 ára, þú mátt endilega láta vita hvað kostaði að skoða.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Fór með köfunar kútinn minn í slökvitækja þjónustunna í Kef, let skoða laga gumi hringinn og fylla fyrir undyr 2þ kr.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

ulli wrote:Fór með köfunar kútinn minn í slökvitækja þjónustunna í Kef, let skoða laga gumi hringinn og fylla fyrir undyr 2þ kr.
Vonandi ertu ekki að kafa með Co2 í kútnum :P En gæti súrefnið ekki verið kannski ódýrara? svona miðað við verðið á Co2 sem var gefið upp að ofan.
200L Green terror búr
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

nei nei ég notaði Co2......
virkaði fínt...
:ropa: :sjúkrabíll:
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

er ekki ódýrara að setja súrefni á kút? Skilst að það þurfi að kæla tankana talsvert mikið þegar það er verið að fylla á þá og eitthvað slíkt vesen, kanski bara rugl í mér.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Okei takk fyrir þetta, ætla prufa að hringja á þessa staði á morgun og kanna verð :)

Það er ekki sett súrefni á köfunar kúta, þar sem súrefni er eitrað í miklum mæli

Það er bara sett venjulegt andrúmsloft á köfunar kúta þannig að enginn kostnaður er á loftinu en þú borgar þó fyrir það vegna viðhalds á síunar búnað sem hreinsar loftið áður en það fer í kútana
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Skoðun er víst frekar dýr og þarf að framkvæma á 5 ára fresti. Veit ekki akkúrat verðið.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

okei þá þarf ég að láta skoða minn, hann var yfirfarinn 2004 :(
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Skoðun er að kosta 6000.kr og 500.kr Per kg af kolsýru hjá www.kolsyra.is (slökkvitækjaþjónustan)

Öryggismiðstöðin fór að tala um verð í kringum 18.000.kr fyrir skoðun og 700 - 800.kg kg af kolsýru

Smá verðmunur :lol:
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hlýtur að vera hægt að finna þetta ódýrara þá, því slökkvitækjaþjónustan er alls ekki ódýr..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
BIG RED2
Posts: 88
Joined: 04 Mar 2009, 18:51

Post by BIG RED2 »

Ölgerðin Egill Skallagrímsson eða Vífilfell ? ég hef líka verið að spá með þetta co2 dót ef maður á sodastrím tæki setja soda vatn útí búri við vatna skipti er það galið ?
skrifaði áður sem big red
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já það er vonandi, ég fann allavegana enga aðra staði til að kanna
Kv. Jökull
Dyralif.is
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

er ekki ísaga líka með svona ?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Jú alveg rétt, prufa að hringja þangað á morgun, einhver með reynslu af þeim ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

var að tala við félaga minn sem vinnur í ísaga og hann sagði að það færi bara eftir kút hvað það kostar mikið. stærð kúts og hvernig kútur það er og svo. svo sagði hann að á 10 ára fresti þarf að skipta um ventla og eitthvað dót í kútnum
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Big Red, jú það er hægt að hella bara sóda strím í búrið, en það getur verið svolítið hættulegt. Bæði verður að passa að setja ekki of mikið í einu og síðan heldur þetta kolsýrumagninu alls ekki stöðugu, sem er frekar mikilvægt, kolsýra er nefnilega frekar fljót að fara úr vatni.
Þetta er því ekki mjög góð lausn.
Post Reply