Takk!
Hann étur bæði lifandi og rækjur. Í gær stakk ég hendinni í búrið og veifaði fyrir framan hann rækjubita, hann byrjaði strax að læðast að mér, þegar hann átti eftir 5 cm þá guggnaði ég og sleppti rækjunni og hann stökk á hana. Hann er með svakalegar tennur
önnur mynd
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Garinn étur vel. Borðaði tvær rækjur í gær. Veit ekki hvort það er mikið eða lítið en hann vildi allavega ekki meira
Þeir sem hafa átt gar, hvað voru þið að gefa þeim og hve oft? Mig langar til að gefa mínum eitthvað lifandi en það eru nokkrar amerískar frekjudollur með honum í búri, þannig að það væru litlar líkur á að hann myndi ná einhverju
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
ég var rétt farinn að venja minn af lifandi þegar ég seldi hann, hann tók bara rækjur.
ég myndi ekkert fara að gefa honum lifandi fyrst hann er að éta annað, gæti komist uppá lagið með það og farið að hunsa annað fóður.
nú er mér hætt að litast á blikuna, garinn hefur ekki viljað éta í rúmlega viku. Held að hann sé stressaður innan um allar síklíðurnar, alltaf þegar ég reyni að gefa honum þá koma þessar "Dollur" og vilja líka bita og ég þarf virkilega að ýta þeim í burtu og garinn er svo mikil gunga að hann lætur sig bara hverfa á endanum.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Ekki skrýtið svosem, hef heyrt af görum sem hegða sér eins. Gætir þurft að gabba síkliðurnar eða gefa honum lifandi til að halda honum við. Í versta falli koma honum í sér búr.
hehe ég var bara að grínast
ég veit ekki hvað ég geri kannski ég fái mér nokkra unga covicta. hann annars kemur að betla öðru hvoru, er að því núna, en hann er bara of taugaveiklaður til að éta.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
jæja, færði taugaveiklaða garinn í 180L búr og eftir tvo daga byrjaði hann að borða, sem sagt í dag Henti til hans stórum zebra danio og tók eftir því áðan að hann var horfinn, prófaði þá að gefa honum rækjur og hann borðaði þrjár jafnvel elti eina sem ég lét detta fyrir framan hann og hann elti hana á fullu niður á botn og át hana þar. Hann er sem sagt í fullu fjöri og sáttur, einn í 180L búrinu sínu.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L