Þrif með innbyggðri Juwel dælu

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Þrif með innbyggðri Juwel dælu

Post by Sirius Black »

Jæja setti upp búr í gær sem er með Juwel dælu (fastri) , búrið varð náttúrulega svolítið svona skýjað út af mölinni og núna er það búið að vera í gangi í sólarhring með dælu og hitara en samt er það alveg nákvæmlega eins og í gærkvöldi :S eins og dælan sé ekkert að vinna á þessu, eða á hún annars ekki að gera það að einhverju leyti? Var að spá hvort að þessar dælur væru bara engan vegin nóg í þessi búr (400L) og hvort maður neyddist til að fjárfesta í tunnudælu til að fá vatnið eitthvað smá tært svo maður sjái fiskana :P

Og langaði að spyrja ,í búrunum núna og kannski alltaf :oops: er dælan þá ekki bara föst með sogskálum? sýnist að það sé bara einhverjar svoleiðis festingar á henni, svona svo að það sé ekkert mál að taka hana úr þegar maður skiptir yfir í alvöru dótið (tunnudælu).
200L Green terror búr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

orginal dælan á að vera föst með sílikonpunktum, þetta eru ekki sogskálar, það á samt ekkert að vera stórmál að taka þetta frá með dúkahnífsblaði ef þú vilt það.

Annars ættu þessar dælur alveg að ráða vel við búrið með "venjulega" fiska, kannski ekki ef það eru mikið af stórum fiskum sem éta og menga mikið.
Ég myndi bíða einn dag til viðbótar með gruggið, ég hef þurft að bíða í 2-3 daga þartil það varð tært. Ertu ekki örugglega með hvíta filtið svo?
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Já ok :P hlaut að vera eitthvað svona silíkon :P fannst þetta bara líkjast svo sogskálum :P en þá veit maður það svo maður fari ekki að toga og toga :P

En já ég bíð í 1-2 daga í viðbót :) hlýtur að verða tært :P enda örugglega bara enn að setjast gruggið og svoleiðis :)

En júbb setti alla filtera sem fylgdu með og þar á meðal þennan hvíta :) en á hann annars ekki að koma alveg ofan á alla hina? sem sé ekki í þessu plaststykki sem þeir eru í?. Fannst það allavega þannig í leiðbeiningunum.
200L Green terror búr
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

getur verið sniðugt að gá hvort mótorinn er ekki vel skorðaður í rörið fyrir neðan með plast+gúmmístykkinu, það verður að vera til að hann dragi vatnið í gegnum svampana. er samt sammála andra það var grugg í vatninu hjá mér í nokkra daga þó að ég hefði talið mig skola sandinn alveg eins og brjálæðingur.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

jú sá hvíti á að vera efstur
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þessar dælur eru alveg feykinóg í svona búr með "hefðbundna" fiska og alveg sambærilegar við flestar tunnudælur hvað varðar kraft og magn af filterefni. Ef ætlunin er að vera með stóra fiska þá er tunnudæla málið til viðbótar við orginal dæluna.
Post Reply