Hávaði

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Steini
Posts: 237
Joined: 21 Nov 2007, 16:40
Location: Sauðárkrókur

Hávaði

Post by Steini »

Ég setti upp Sacem Marathon 1000 tunnudælu í dag og úr henni koma skrölt, suð og önnur óhljóð.
hún gengur fínt og virkar eins og hún á að gera en ég kvíði fyrir að sofa við þessi hljóð :?

ekki er þetta eðlilegt?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Tunnudælur eru oft með aukahljóð fyrst þegar þær eru að koma öllu lofti úr sér. Ef þetta er ekki búið að minnka til muna eftir nokkrar klst þá þarf að athuga málið. T.d. taka hana í sundur og sjá hvort allt sé ekki rétt sett saman.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Steini
Posts: 237
Joined: 21 Nov 2007, 16:40
Location: Sauðárkrókur

Post by Steini »

setti hana í gang kl 3...

hvernig opna ég hana án þess að fá 10 lítra á gólfið?
semsagt næ vatninu úr slöngunum?
Mörðurinn
Posts: 133
Joined: 25 Feb 2009, 17:19

Post by Mörðurinn »

Setur bala undir hana!
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Lesa leiðbeiningarnar :) Ef þetta er notuð dæla, þá gæti rótorinn verið orðinn þreyttur. Annars eru venjulega kranar á slöngunum og dælan hönnuð þannig að það renni ekkert á gólfið þegar hún er opnuð. Ég þekki ekki akkúrat þessa týpu af dælum hinsvegar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Steini
Posts: 237
Joined: 21 Nov 2007, 16:40
Location: Sauðárkrókur

Post by Steini »

notuð og enginn krani eða slíkt :?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ef það er loft í dælunni þá heyrist svona skrölt í mótórspöðunum. ef þú opnar hana og hefur ekki lokað fyrir slöngurnar fyrst þá færðu meira en bara úr slöngunum, það rennur líka vatnið úr fiskabúrinu! :wink: ég þekki ekki þessa dælu en ég hef ekki fundið það tæki sem er ekki hægt að finna upprunarlegu leiðbeiningarnar á netinu. gúgglaðu bara nafnið á henni.
Steini
Posts: 237
Joined: 21 Nov 2007, 16:40
Location: Sauðárkrókur

Post by Steini »

finn ekkert á netinu um hvenig á að gera þetta...
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þetta er old school tunnudæla, ekki svona fansy dót sem er nútildags

Á eina svona og rótorinn var farinn að skrölta hjá mér þannig að ég tók hann í sundur og lagaði hann en það er örugglega ekki fyrir hvern sem er

Getur prufað að láta dæluna safna drullu í sig, þá þagnar oft aðeins í rótornum

Með slöngurnar getur þú fengið Disconnects Valve í Rándýraríkinu
Image

Eða bara smíðað það sjálfur úr PVC frá Vatn og Hita (Vatnsvirkjanum)
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply