Skellti mér í Dýrargarðinn um daginn og sá amano rækju með hrogn í sýningarbúrinu. Ég smellti af nokkrum myndum og hér er afraksturinn.
Hvað finnst mannskapnum um þetta?
Linsu í macro? Ef að þú ert að tala um svona ásetta linsu þá nei ég er með þessa ræfilslegu vél en ég er kominn með 45þús upp í Canon EOS 40D.
Vélin:
Sony Cybershot DSC T70 8.1 Megapixlar.
[img]http://www.fishfiles.net/up/0903/p3jdyu ... t70[1].jpg[/img]
Gudmundur wrote:nú þarftu bara að læra á photoshop
myndirnar eru með slikju yfir sér sem myndi hverfa með lítill vinnslu
ertu kominn með photoshop ?
Þú áttar þig á því að þetta er um 120 þús kr forrit (pantað af neti) sem þú ert að spyrja 14-15 ára krakka hvort hann eigi? Væri nær að benda á forritið gimp sem er open source forrit sem er frítt og er alveg nægilegt fyrir þessar breytingar sem þarf að nota á ljósmyndir
Varðandi eggin hjá amano rækjunni, þá er bölvað vandamál að koma þessu á legg. Þarf að færa þetta yfir í brackish eða salt vatn og svo aftur til baka. Ef þú ætlar að reyna að koma þessu upp þá mæli ég allavega með að þú farir að lesa þig um amano rækju ræktun áður en þetta skilar sér af kellunni.
Sven wrote:Varðandi eggin hjá amano rækjunni, þá er bölvað vandamál að koma þessu á legg. Þarf að færa þetta yfir í brackish eða salt vatn og svo aftur til baka. Ef þú ætlar að reyna að koma þessu upp þá mæli ég allavega með að þú farir að lesa þig um amano rækju ræktun áður en þetta skilar sér af kellunni.
Efast um að hann þurfi að hafa áhyggjur af sýningarrækju hjá Dýragarðinum
Gudmundur wrote:nú þarftu bara að læra á photoshop
myndirnar eru með slikju yfir sér sem myndi hverfa með lítill vinnslu
ertu kominn með photoshop ?
Þú áttar þig á því að þetta er um 120 þús kr forrit (pantað af neti) sem þú ert að spyrja 14-15 ára krakka hvort hann eigi? Væri nær að benda á forritið gimp sem er open source forrit sem er frítt og er alveg nægilegt fyrir þessar breytingar sem þarf að nota á ljósmyndir
já endilega bara að fá sér gimp
þekki það reyndar ekki en nafnið er snild