úff ekki vildi ég bera ábyrgð á þessu! ef ég stæði í þessum sporum myndi ég frekar gera mikið til að fá einhvern vanann til að gefa heldur en fara að færa þau. fleiri áhættuþættir fyrir svona lítil kríli. Er ekki einhver sem þú treystir þarna austast í austurbænum?
Væri náttúrulega best að geta haft þau á sínum stað og fá einhvern til að gefa, en ef það er ekki í boði þá er betra að setja þau í pössun heldur en að taka áhættuna á því að þau lifi vikuna af án matar
Ég held af reynsluni að seiðin lifi af án artemiu i viku vegna þess að þau éta af foreldrunum sinum bara á meðan en það er miklu frekar matargjöfin til foreldrana og er þetta bara ekki spurning um sjálfvirkan matara
Ég myndi helst vilja að einhver gæfi artemíu, amk 1x á dag... Seiðin eru nefnilega orðin það stór að ég er ekki viss um að þau myndu þrífast á bara foreldrunum..
Ásta wrote:Það er mikil breyting á þeim á ekki nema 2 vikum.
Jamm, líka þegar maður hugsar til þess að ég var í útlöndum í viku þar sem þeir fengu frekar lítið að éta. Ættu að taka góðan vaxtarkipp núna, ég ætla að vera duglegur að dæla í þá artemíu.
Engar myndir... Næstum öll seiðin dauð Kom einhver pest upp í rekkanum sem mér tókst ekki að losna við. Parið er hinsvegar búið að hrygna 2x í "hvíldinni" og komu seiðunum upp þangað til að þau fóru að synda og enduðu í yfirfallinu
Tek þau frá fljótlega og vona að þetta gerist ekki aftur. Ég er kominn með UV ljós á stæðuna þannig að þetta ætti ekki að geta smitast á milli búra allavega.
Ég fékk hrygningu í búrið hjá mér...diskus....en er ekki að sjá hver er kallinn...kvk passar hrognin massan...en hinir bara væflast í kringum pakkann....einhver ráð þannig að ég sjái hver kallinn er...langar að taka þau til hliðar í gryfjuna
oddi302 wrote:Spurning hvort þú sjáir hrygningartoturnar á parinu, þá ættirðu að sjá hvaða karl á þetta
Þær eru ansi fljótar að hverfa eftir hrygningu... Maður þarf helst að standa þau að verki til að sjá toturnar almennilega, en þá getur maður líka alveg séð hvor er hvað