nú ríkir mikil sorg ..
- Mozart,Felix og Rocky
- Posts: 409
- Joined: 03 Jan 2008, 17:33
- Location: 116 Kjalarnes
- Contact:
nú ríkir mikil sorg ..
Þann 3.desember(Föstudaginn) tók litli rugludallurinn minn hann Felix að hoppa niður af borðinu úti sem er c.a. 60 cm á hæð og brákaðist illa á hryggnum og lamaðist á aftari hlutanum. Við rukum með hann til dýralæknis og fór hann í röngten og þar kom í ljós brákunin, síðan fékk hann verkjalyf og stera(sem áttu að auka matarlyst og allt svoleiðis) en hann borðaði ekki neitt allan daginn :/ ,, við hringdum uppá vakt og það var sagt að við ættum að gefa honum sykurvatn sem átti að gefa honum orkuskot þar til daginn eftir. Síðan daginn eftir(Fimmtudaginn) fórum við aftur með hann og fékk hann þá aftur stera og byrjaði hann að borða á fullu ,, svo um kvöldið þegar að ég fór að sofa bjó ég um Felix á gólfinu í bælinu sínu og svo hálftíma seinna vaknaði ég við þvílíkt mikið væl ,, þá hafði hann komist undir kommóðuna og gat ekki komist undan(hann var náttúrulega lamaður) en ég náði honum strax undan. Daginn eftir(Föstudaginn) fórum við aftur til dýra í skoðun og það var allt í lagi með hann en hann fann samt alveg hrikalega mikið til. Hann fékk samt stera og morfínplástur vegna sársaukans og var alveg fínn allt kvöldið og fékk legg í æð til að geta gefið honum næringu. Síðan á Laugardaginn fórum við aftur til dýra og fékk stera. Aðeins seinna um daginn lamaðist hann á framfótunum líka ,, Um kvöldið þegar að ég var að passa fékk ég símtal um að koma strax vegna þess að Felix var að versna Ég fékk vin minn til að fylgjast með strákunum(sem ég var að passa) og rauk heim. Þegar að ég kom heim var Felix hættur að anda og var að reyna að fá loft Það var svo erfitt að horfa á hann svona Við hringdum uppá dýraspítala og þá var leiðbeint okkur hvernig var hægt að reyna að hjálpa honum að anda en ekkert gekk Klukkan hálf ellefu dó hann Felix og það var alveg hrikalega erfitt ég sat með hann í marga klukkutíma grátandi Við hringdum aftur uppá dýraspítala og þá var sagt okkur að koma með hann daginn eftir af því að þau gátu ekki geymt hann. Svo fórum við með hann uppá dýraspítalann og þá kom ein stelpan sem var að hjálpa á meðan að hann var veikur til mín og spurði hvernig honum liði og ég rétt náði að segja að hann væri dáinn Þá var ekki búið að segja henni að hann dó. Síðan vorum við send uppí Víðidal og ég ákvað að láta brenna hann Síðan fáum við öskuna hans núna í vikunni
Ég vil þakka Dýraspítalanum í Grafarvogi fyrir alla hjálpina og stuðning í gegnum veikindi hans
Hér koma nokkrar myndir af litlu snúllunni minni Megi hann hvíla í friði Og þín verður sárt saknað
Ég vil ekki neina leiðindapósta ! ,, haldiði bara leiðindaskoðunum útaf fyrir ykkur !
Ég vil þakka Dýraspítalanum í Grafarvogi fyrir alla hjálpina og stuðning í gegnum veikindi hans
Hér koma nokkrar myndir af litlu snúllunni minni Megi hann hvíla í friði Og þín verður sárt saknað
Ég vil ekki neina leiðindapósta ! ,, haldiði bara leiðindaskoðunum útaf fyrir ykkur !
Kv.Dízaa og Co.
- Mozart,Felix og Rocky
- Posts: 409
- Joined: 03 Jan 2008, 17:33
- Location: 116 Kjalarnes
- Contact:
- Mozart,Felix og Rocky
- Posts: 409
- Joined: 03 Jan 2008, 17:33
- Location: 116 Kjalarnes
- Contact:
-
- Posts: 1482
- Joined: 20 May 2007, 01:16
- Location: rvk
- Mozart,Felix og Rocky
- Posts: 409
- Joined: 03 Jan 2008, 17:33
- Location: 116 Kjalarnes
- Contact: