Vantar hjálp gegn þörungi.

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Vantar hjálp gegn þörungi.

Post by Agnes Helga »

Hæhæ.

Ég er í vandræðum hérna með þörung, sem er svona grænir harðir hringir á blöðunum og á glerinu, en þó mest á blöðunum á plöntunum, og þetta er við það að drepa plönturnar mínar. Fyrir utan hvað þetta er nú ljótt, einnig er rótin undirlögð í þessu. Hvað get ég gert? Reyni að hafa ljósatíman um 8-9 klst (kemur samt fyrir að ég gleymi mér :oops: en ekki oft) Hvað er til ráða? Hvorki SAE né ankistrur virðast vinna á þessu þrátt fyrir að ankistrurnar eru mjög duglegar allan daginn.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Of sterkt ljós gæti verið málið.

http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php ... highlight=
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

það er hægt að fá alveg ágæta digital tímarofa á fínu verði í byko, ca helmingi ódýrara en í "stærstu" gæludýraverslununum!
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þessi þörungur kemur oft þegar lítið Co2 er í vatninu, getur prófað að setja loftstein í búrið, það lagaði þetta hjá mér á sínum tíma
Kv. Jökull
Dyralif.is
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

ég fékk 2 tímarofa á 6-700kall í ikea um daginn sem virka bara mjög fínt :)
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

gallinn við þá er að það tikkar í þeim, dugði til að halda kallinum mínum vakandi!
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já Ikea rofanir eru að virka vel fyrir mín búr :), hvað eru þessir digital að kosta ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég er þroskaheft í að muna hluti en ég fékk sjokk við að sjá verðið á sambærilegum í Rándýraríkinu.... bara hringja!
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

ég sá líka einhverja Dimmer rofa í elko sem áttu að dimma á undan sér eða einhvað svoleiðis.
Minn fiskur étur þinn fisk!
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

gudrungd wrote:gallinn við þá er að það tikkar í þeim, dugði til að halda kallinum mínum vakandi!
tikkar ekkert í ikea rofunum
skurdur
Posts: 53
Joined: 20 Dec 2008, 20:51

Post by skurdur »

Mæli eindregið með tímarofum úr Íhlutum (skipholti)... tikkar ekkert í þeim og svínvirka... 1000 kall stykkið...
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þetta er GSA (green spot algae), kemur út af of miklu ljósi miðað við kolsýru. til að losna við þetta þá þarftu annað hvort að takmarka ljósið, eða fá þér kolsýrukerfi á kút og ná kolsýru upp í 30ppm+
að minnka ljósið er mun auðveldari og ódýrari leið.
nerite sniglar eru reyndar einir þekktir fyrir að borða þetta, en í staðin fyrir þetta verpa þeir hvítum eggjum út um allt búr hjá þér, sérstaklega á trjárætur, einstaklega ljótt.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Já, ég bý ekki í rvk og fer ekki svakalega oft vegna tímaleysis þangað þannig ég get ekki stokkið til og keypt svona tímadóterí. En hve mikið á ég þá að hafa kveikt á ljósunum? Er með e-h gróðurperu og eina venjulega.. Er líka með anubias plöntu, eina sem mig minnir að heiti java fern og svo eina sverðplöntu sem er að berjast við að lifa þarna og síðan hellings af valinsneru sem þörungurinn virðist ekki hafa nein áhrif á.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

myndi prófa að bæta við loftdælu ef þú átt hana, áður en farið er út í að fjárfesta í Co2 kerfi
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

diddi wrote:
gudrungd wrote:gallinn við þá er að það tikkar í þeim, dugði til að halda kallinum mínum vakandi!
tikkar ekkert í ikea rofunum
ég skal gefa þér símann hjá kallinum, þið getið rætt þetta. við getum líka hittst hvor með sinn ikeatímarofa og athugað hvort það er munur á þeim.

anubias vex það hægt að svona þörungur getur orðið ljótur. javafern er mjög sterk planta og ætti að þola smá volk. með sverðplöntuna þá passaðu að hafa næringu fyrir ræturnar og þú getur tekið burtu ljótustu blöðin, það koma ný.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

já, ég hef verið að setja næringu í töfluformi hjá sverðplöntunni og tók fullt af blöðum af henni. Því miður á ég ekki loftdælu, sú gamla er búið að gefa upp öndina :( þarf þá að verða mér útum aðra sem fyrst.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Squinchy wrote:myndi prófa að bæta við loftdælu ef þú átt hana, áður en farið er út í að fjárfesta í Co2 kerfi
nú spyr ég kannski eins og kjáni, af hverju og hvernig gerir loftdæla gott ef það vantar co2?
-Andri
695-4495

Image
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

fyrst að kjánaspurningarnar eru byrjaðar...... hvernig á loftdæla að hjálpa við að losna við þörung? drepa hann úr........ súrefni?
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Já.. væri gaman að vita það svar og fá svona vísindalegar skýringar á þessu ráði :) Er til í öll ráð, en hef ekki mikla peninga á milli handanna svo að svona ýmis "húsráð" og ódýrar leiðir eru veel þegnar.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

minka ljósið 8)
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Hreinan uppþvottabursta og byrja að vinna. Allavega það sem að ég geri ef að ég lendi í þörung.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég held að sverðplantan lifi af að vera klippt frekar gróft niður en anubias... ég hef tekið rosefolia plöntu og dýft henni í klórblöndu í ca mínútu.... losað hana við þörung, þori ekki að segja um anubias en þær eru frekar harðgerðar, ekki lögsækja mig ef það virkar ekki!
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég lenti í á fá þennan þörung á anubias plöntu og færði einfaldlega plöntuna á ljósminni stað í búrinu og þörungurinn hvarf á nokkrum dögum.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Já, en þetta er ekki bara á anubias plöntunni Vargur, heldur öllu í búrinu.. spurning hvort ég sé með of sterkt ljós? Er í lagi að myrkva búrið í e-h tíma og gæti það drepið þörunginn en plönturnar lifað?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

það ætti að vera í lagi að myrkva búrið í 3 daga og gefa þá ekki heldur neitt í 3 daga, loka búrinu allveg.
Minn fiskur étur þinn fisk!
Post Reply