Anemónan mín... AGAIN!
Moderators: keli, Squinchy, ulli
Anemónan mín... AGAIN!
Veit ekki hvort þetta er eðlilegt, en hún gjörsamlega neitar að koma sér fyrir! Ég er 3svar búin að koma að henni á HVOLFI í sandinum.... Hvað er málið?
Þetta er það sem fylgir því að eiga anemone, eru mjög sjaldan til friðs og vilja sjaldan vera þar sem þú vilt að hún sé
En hún er að leita sér af góðum stað með réttu flæði sem hentar henni
Sumir segja að þær leiti í svæði/hellir til að festa fótinn og tegja síðan hausinn rétt undir vatnsflæði
Kannski útskýrir þetta eitthvað smá:
Part1 http://www.youtube.com/watch?v=bY_q3nYK7eE
part2 http://www.youtube.com/watch?v=c8AJblXQeh8
part3 http://www.youtube.com/watch?v=Z--SWbQoCi0
Þarna sýnir hann svolítið hvað þær geta verið erfiðar í því að finna sér stað

Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
já, fróðlegt að horfa á þetta. Hún er búin að gera þetta nokkrum sinnum (með munninn niður í sandinn) og ég hef alltaf snúið henni við. Núna lét ég hana vera og hún lagaði sig til sjálf og færði sig, er núna búin að festa sig á glerið beint fyrir framan út-takið á powerheadinum.. spurning um að ég sé ekki með nógu mikið flæði fyrir hana. Er soldið paranoid núna, að hún sé svona nálægt honum. Ætla beint í búð á morgun og kaupa svamp til að setja utanum hann. Held það hafi bjargað henni um daginn að það er svampur inní powerheadinum. inntakið er s.s. sívalingur með fullt af götum, eins og rist, og svo svampur fyrir innan, en ég þyrfti að hafa svamp utaná svo hún sogist ekki inn í ristina.
Anemónur losa sig oft alveg og láta sig fljóta með straumnum ef þær eru ekki ánægðar með staðinn. Þessvegna ertu líklegt að finna hana svona lausa á sandinum. Mig grunar að þetta gæti líka verið spurning um að það vanti meiri/betri birtu fyrir hana.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Það er frekar lítið. Þetta eru væntanlega t8 perur? Spurning um að fara í föndurgallann, hringja í flúrlampa í hafnarfirði og reyna að koma 3-4 t5 perum fyrir í lokinu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Góð hugmynd, taka bara lokið með þér og spurja þá hvort þeir hafi eitthverja lausn á þessu fyrir þigkeli wrote:Það er frekar lítið. Þetta eru væntanlega t8 perur? Spurning um að fara í föndurgallann, hringja í flúrlampa í hafnarfirði og reyna að koma 3-4 t5 perum fyrir í lokinu.
Eða prófa aðra hugmynd sem ég hef, skal teikna hana upp seinna í dag og sýna þér
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
takk fyrir það.Squinchy wrote:Góð hugmynd, taka bara lokið með þér og spurja þá hvort þeir hafi eitthverja lausn á þessu fyrir þigkeli wrote:Það er frekar lítið. Þetta eru væntanlega t8 perur? Spurning um að fara í föndurgallann, hringja í flúrlampa í hafnarfirði og reyna að koma 3-4 t5 perum fyrir í lokinu.
Eða prófa aðra hugmynd sem ég hef, skal teikna hana upp seinna í dag og sýna þér
Hvað eru þeir annars að taka fyrir svona í flúrlömpum?
- EiríkurArnar
- Posts: 475
- Joined: 30 Nov 2008, 21:18
- Location: Garður
ég er orðinn húkkt á þessu klippum. gaman að fylgjast með þessu.
Last edited by EiríkurArnar on 18 Apr 2009, 00:43, edited 1 time in total.
Alltaf fyrstur með fréttirnar!Síkliðan wrote:Kórallar og anemónur búa í sambúð með þörungum, þörungarnir
þurfa ljós til að ljóstillífa (vinna fæðu úr ljósi) og anemónurnar og kórallarnir fá fæðu síðan þaðan, frá þörungunum.
Þú ert bara ekki með nógu sterkt og mikið ljós.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Fíla? Fýla takk, og engin fýla. Bara fyndið að þú sem hefur aldrei verið við saltfiskinn kenndur komi með þína kenningu um af hverju anemónan fíli sig illa (fíla og fýla eru sitthvor orðin) og útskýrir fyrir okkur hvað það er sem heldur lífinu í þeim.
Og það líka vel eftir að þessari kenningu hefur verið fleygt fram af 2 öðrum í þessum þræði.
Og það líka vel eftir að þessari kenningu hefur verið fleygt fram af 2 öðrum í þessum þræði.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net