Á fimmtudagskvöldið setti ég upp 54L búr með 2 plöntum í. Mér var ráðlagt að setja sérstaka gróðurmold í botninn og svo sandinn yfir það sem ég og gerði, en nokkrum klukkutímum eftir að ég setti vatnið í var það orðið gruggugt. Er þetta eðlilegt? Það virðist vera aðeins að jafna sig núna, en mjög lítið samt.
Önnur spurning, hvaða fiskar mælið þið með í svona litlu búri? Við viljum frekar litríka fiska þar sem við getum ekki haft marga, en líka harðgera.
það getur tekið nokkra daga að losna við gruggið.... hvað ertuð þið að pæla með fiska? langar ykkur í gotfiska eins og gúbbí, þeir fjölga sér fljótt nema þið séuð bara með kalla eða kellingar. kannski dvergsíkliður, apistogramma eða fiðrildasíkliður, gætuð verið með par af þeim. dóttir mín er með par af dverggúrömum sem eru mjög flottir. í svona litlu búri fyndist mér sniðugt að vera með par af litlum fiskum með mikinn karakter frekar en marga pínulitla fiska eins og tetrur. það er jafnvel óhætt að fá sér litlar þörungaætur eins og ankistrur með.
Er óhætt að setja fiska í búr sem er búið að ganga í tvo sólarhringa? Eða ætti ég að bíða lengur? (Setti að sjálfsögðu aqua safe)
Ég er fáránlega spennt fyrir fiðrildasíkliðum, rosa flottar! Þola þær að fara í nýtt búr?
Haha, afsakið þetta endalausa spurningaflóð Það koma myndir alveg um leið og ég fæ mínu fyrstu fiska, þið eigið ábyggilega eftir að fá ógeð á mér, haha!
fáðu safestart eða cycle.... aquasafe bindur bara málma og klór... (sem er ekki í íslensku vatni) þú þarft að koma bakteríuflórunni í gang. ekki láta sölumennina í búðunum taka þig í r*****tið!
ég keypti bara litla flösku í Fiskó (man ekki hvað þetta heitir , þú getur bara spurt um þetta ).......en eru allir á dýraríkisspjallinu að tala um aqua safe
Nei í leiðbeiningum á síðunni þeirra um uppsetningu á nýju búri. Segja líka að setja aqua safe þegar maður bætir við fiskum, til að minnka stressið fyrir þá.
þessi grein var held ég þýdd af úklensku en passa bara að fá sér ekki of marga fiska í búrið. lestu þetta ef þú ert ekki búinn að því viewtopic.php?t=7003[/code]
nutrafin cycle er það sama og aquasafe (leiðrétting.. Safestart)... þú getur sett fiska strax en þú verður að fylgjast vel með. ef það verður sterk lykt af vatninu, ef fiskarnir eru eitthvað slappir, þú verður að hafa vit á að spyrja ef eitthvað kemur uppá
Last edited by gudrungd on 18 Apr 2009, 00:49, edited 1 time in total.
Svo er alltaf hægt ef þú þekki einhvern sem er með búr í góðu jafnvægi og er með góða flóru að fá lánaðan skítugan svamp úr dælunni hjá honum og kreista hann útí búrið hjá þér.
Dáldið messí aðferð enn hún virkar
Það stendur reyndar á flöskunni af aqua safe að fyrir utan að hreinsa vatnið af málmum sem er sjálfsagt óþarfi þá verndar það slímhúðina á fiskum sem skemmast auðveldlega v stress eins og að fara í nýtt búr, og bætir í efnum útí vatnið til að bæta það, þannig þetta er nú kannski ekki svo vitlaust?
þó það þurfi augljóslega hitt líka, til að koma flórunni af stað...
Skolaðir þú mölina áður en þú settir hana í búrið?
Ef ekki þá áttu seint eftir að losna við þetta grugg!
Ég gerði þau mistök að nenna ekki að skola mölina vel og ég endaði á því að þurfa að skipta um allt vatn 2svar og ryksuga mölina með heimatilbúinni græju.
Fiðrildasíklíður eru oft viðkvæmar fyrir vatnsskilyrðum þannig að ég myndi ekki þora að setja þær strax út í, láta búrið aðeins vinna upp bakteríur fyrst og þessháttar.
SadboY wrote:
Ég gerði þau mistök að nenna ekki að skola mölina vel og ég endaði á því að þurfa að skipta um allt vatn 2svar og ryksuga mölina með heimatilbúinni græju.
ég gerði þetta líka, ég setti tvær slöngur í vatnnið, önnur slangan var til að fylla af vatni en hin til að tæma. ég var með svona hringrár í nokkra mínúturog þetta virkaði fínt
Jæja komin með 2 fiska Byrjuðum á 2 gúbbý kerlingum, ein með gulan sporð, en hin með bláan, frekar flottar.
Fengum góða þjónustu í dýraríkinu, og sagði hann þar að ég ætti ekki að setja safestart eða þannig útí búrið, væri betra að byrja rólega og leyfa þessu að gerast nátturulega. Ætla prófa það, vonandi fer þetta vel. Ég ætla bara að taka þolinmæðina á þetta, og fara mjög rólega af stað.
Því miður var mér sagt að fiðrildasíklíður væru ekki hentugar í svona lítið búr, æti að vera í 80L.