Síkliðan wrote:Gaman af þessu, ætlaru að selja poly-ana og breyta búrinu eða ætlaru að halda svona áfram?
Ef að þú breytir, hvað hefur þér verið að detta í hug?
Það er ekkert plan í gangi í augnablikinu þó það væri gaman að breyta eitthvað til. Ég tími alls ekki að selja polypterusana, og ekki aðra fiska í búrinu heldur... ég er farinn að gera 50% vatnsskipti tvisvar í viku til að halda vatninu góðu...
Þá er voðalega freistandi að breyta til og setja eitthvað "einfaldara" í búrið sem þarf ekki svona mikla vinnu við.
Mér dettur bara ekkert skemmtilegara í hug en það sem ég er með núna
Skuggalega flott mynd af CK þó að hún sé smá úr fókus, rosalegir litir hjá palmas, er hann alveg að halda litunum, hann lítur meira út eins og pinnis ?
Síkliðan wrote:Skuggalega flott mynd af CK þó að hún sé smá úr fókus, rosalegir litir hjá palmas, er hann alveg að halda litunum, hann lítur meira út eins og pinnis ?
Hvað meinaru halda litunum?
malawi wrote:geggjaðar myndir:D
á ekki að senda í næstu keppni?
takktakk, jú ég er ansi hræddur um að ég muni nota einhverja góða mynd í næstu keppni
Síkliðan wrote:Er hann að missa þessu sterku liti inná milli eða er hann að halda þeim svona sterkum.
ef ég skil þig rétt þá er svarið já og nei.
Polypterusar eru ekki mikið í því að missa eða auka liti til skiptis eins og t.d. síkliður. Breyting á lit kemur fram með umhverfinu og matargjöf..
En allar þessar macro myndir eru teknar með flassi og því eru þessir litir sem sjást ekki sýnilegir svona dagsdaglega með berum augum því flassið lýsir svo mikið upp og litirnir endurvarpast.
Mjög flott! Æðislegir litir í Ornatipinnis og rope fish. Clown knife er ekkert smá skuggalegur á þessari mynd.
Neðsta myndin af Black Ghost, gatið undir hausnum á honum, ef ég fer með rétt mál, er það ekki... his butt?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
er fólk nokkuð farið að fá leið á myndum mínum?
ég þori varla að segja hvað ég hef sett margar myndir inná spjallið, ætli ég eigi ekki metið...?
Clown knife fara öðru hverju upp að fá sér súrefni, þegar fiskurinn er tæplega 40cm vöðvabúnt koma yfirleitt mikil læti við þessa athöfn, maður hefur hrokkið upp í rúminu hinum megin í íbúðinni við lætin. Hann stingur fyrst höfðinu upp (sjá mynd) en snýr svo við og skellir hliðinni uppí lokið á leiðinni niður.
Jaguarinn wrote:vá hvað tigerinn er flottur , hvað er hann orðin stór?
þetta eru svaðalega seinvaxta kvikindi, búinn að eiga hann í 10 mánuði og ætli hann sé ekki um 22cm, var 17cm þegar ég fékk hann, semsagt 0,5cm á mánuði.
En ég er þolinmóður, stefni á að hann verði 40cm sumarið 2012
Tók mér smá frí frá prófalestri og renndi í gegnum allann þennan þráð og vá.
Flottar myndir og ekki láta þér detta í hug að maður fái nóg. Fólk ætti að taka þig til fyrirmyndar og skella fleiri myndum inn.
Flott búr, flottir fiskar og alltaf gaman að sjá hvað er í gangi hjá þér
Það er skondið að hafa mikinn áhuga á fiskum en vera með bráðaofnæmi fyrir öllum fisk