.

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

.

Post by Gilmore »

zzz
Last edited by Gilmore on 23 Dec 2006, 11:33, edited 3 times in total.
ragz
Posts: 84
Joined: 16 Oct 2006, 15:18

Post by ragz »

Flott búr! Höfrungar og Frontosur eru fínasta blanda finnst mér... Ætlaru bara að hafa 2 höfrunga þarna eða ætlaru að bæta við fleirum?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Flott !!

Ertu ekkert hrifinn af innbyggðu Juwel dælunum ?
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Ég held að ég setji ekki fleiri Höfrunga í búrið. Bæði höfrungarnir og Frontosan verða það stórir að búrið ber það ekki, þarf meira að segja að fækka Frontunum eitthvað síðar.

Ég er stundum að spá í að losa mig við þessa fiska og nota búrið undir Ameríkusíkliður, því ég er með klikkaðan Greenterror sem ég tími alls ekki að losa mig við en hann getur hvergi verið svo er ég með lítinn Mídas og Trimac sem verða ennþá verri. En ég tími heldur ekki að losa mig við Fronturnar, þannig að þetta endar sennilega með einu búri í vibót. :?

Ég er ekki hrifinn af innbygðu Juwel dælunum, aðallega vegna þess að þær taka dýrmætt pláss inn í búrinu. Það þarf hvort sem er að bæta við tunnudælu ef maður er með síkliður því innbyggða dælan dugar alls ekki fyrir svo mikið bioload. En hún dugar vel fyrir minni fiska eða fáar Afríkusíkliður. Ég var með 3 Juwel búr einu sinni, öll með innbyggðri dælu og búrin voru aldrei almennilega hrein og full af þörungi. En núna eru búrin ALLTAF kristaltær og hef ekki séð þörunga síðan ég skipti yfir í tunnudælur. :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er ekki ýkja langt síðan mér þótti Frontosur ógeðslega ljótir fiskar en undanfarið hef ég verið að mildast í afstöðu minni og nú er ég bara algjörlega fallin fyrir þessum flottu fiskum!

Eru þetta friðsamir fiskar og hvað þarf búrið að vera að lágmarki stórt?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta er emitt svarið sem ég átti von á með innbyggðu Juwel dælurnar.

Þessar dælur eru engan vegin nóg fyrir þéttsetin búr af stórum fiskum en dælan býður hins vegar upp á góða biological hreinsun og ég mun halada þessum dælum í þeim búrum sem ég bæti við.
Ég var eimitt hundóanægður með þessar dælur fyrst eimitt af sömu ástæðu og Gilmore en eftir smá stúderingar og lestur um dælurnar tók ég þær í sátt.
Innbyggðu Juwel dælunum er ekki ætlað að fjarlægja fínustu agnir í vatninu, til þess er inntaksflötur dælunar of stór og powerhead heldur lítil.
Dælan veitir hinsvegar mjög góða bilogical hreinsun vegna þess hvað hún tekur mikið filterefni og hversu lengi vatnið er í snertingu við filterefnið og þar af leiðandi bakteríuflóruna.
Ég hef heyrt góðar sögur af þessum dælum í gróðurbúr en þar þykja þær henta einstaklega vel.
Ég reyndar hef ekki alveg þessa sögu að segja í 240 l búrinu mínu, þar heldur dælan vatninu alveg kristaltæru, sennilega vegna þess að powerheadið dælir 1000 l/h en það er sama dælan og í 400 l búrinu. Fyrir vikið þarf ég að hreina ullina og efri svampa nokkuð ört.
Juwel er nú farinn að bjóða upp á stærri powerhead í 300-400 l búrin fyrir þá sem vilja meiri hreinsun en nú ert hægt að fá powerhead sem dælir 1500 l/h.

Hér er smá fróðleikur um filterinn af heimasíðu Juwel
http://www.juwel-aquarium.de/en/filter_full.htm
Last edited by Vargur on 26 Oct 2006, 16:50, edited 1 time in total.
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

rosalegt flottur fiskar :D
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

UPDATE!!!

Nýjar myndir!
Post Reply