Er að fara að fá mér 80cm búr,
líst enn sem komið er best á tvö kit sem fást hér á nánast sama verði, Juwel Rio 125 og Fluval Roma 125
Er einhver hér með reynslu af þessu dóti?
Þetta er fyrir stofuna og því mikilvægt að það sé fallegt snyrtilegt og gott í umgengni t.d. lokið gott og þægilegt, hávaði og allt slíkt spilar inn í.
Fluval búrið kemur með Fluval 3 Plus filter og Juwel búrið með Bioflow 3.0 (600)
Ég er ekki með svona lítið Juwel búr en er með 400L stærðina er með það inn í svefnherbergi og það heyrist ekkert í þessari "innbyggðu" dælu þannig að það getur ekki verið meiri hávaði í minni dælu en annars finnst mér þetta þægileg búr, þægilegt að vinna í þeim og þessháttar. Finnst þau líka lúkka svo vel, er með svona dökkbrúnt búr og skáp og mér finnst það bara flott fallegt stofustáss
takk kærlega fyrir svörin sem verða sterklega tekin til greina.
væri þakklátur að heyra í fleirum, einhverjum sem er með Fluval búr eða dælu eða jafnvel einhverja aðra tegund sem er í sama "flokki" og þessi.
ég hugsa að eina hljóðið sem þú heyrir í juwel búrunum er bara vatnsgull.. er með 2 juwel búr hérna . 54L og 180L og það heyrist ekkert í þeim. mæli með þeim
ég þekki ekki Fluval búrin en Juwel RIO eru mjög þæginleg, svo ertu með T5 í Juwel en T8 í Fluval. Myndi kíkja á lokið á Fluval búrinu, veit ekki hvernig þau eru en Juwel lokin eru mjög þægileg.
Ég er með 400L Juwel búr og hef aldrei verið ánægðari, þau eru eins uppbyggð svo að 125L búrið er alveg jafn gott. Ég hef aldrei átt Fluval búr og veit ekki mikið um þau.
Sama hér, er með 400l juwel og er mjög ánægður með það, frábært að vinna við það, lokið alveg snilld.
Enn ég reif hreinsidælukassan úr því um leið og ég fékk búrið.
Pippi wrote:Sama hér, er með 400l juwel og er mjög ánægður með það, frábært að vinna við það, lokið alveg snilld.
Enn ég reif hreinsidælukassan úr því um leið og ég fékk búrið.
Mér finnst dælukassinn einmitt ekki taka neitt svakalegt pláss. Líka því að Juwel búrin eru t.d 400L að innanmáli en ekki utanmáli eins og flest búr þannig að maður fær stærri flöt fyrir fiskana að synda í ef maður kaupir Juwel en t.d akvastabil sem eru mæld að utan og þá eru þau 180L en svo er innanmálið eitthvað minna.