Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum
Moderators: Elma , Vargur , Andri Pogo , keli
helgihs
Posts: 93 Joined: 14 Oct 2007, 18:46
Post
by helgihs » 26 Apr 2009, 16:50
Ég er með tjörn í garðinum heima og ég var að spá hvort það væri ekki hægt að kaupa einhversstaðar fóður fyrir koi í stærri einingum.
Ekki svona 1-2kg á 5000 kall eins og er í dýrabúðunum. Er ekki hægt að kaupa gott fóður í 10-20kg pokum?
Koi boltarnir mínir eru ekki lengi að fara með 1kg
Kv. Helgi Sig
Arnarl
Posts: 1233 Joined: 15 Feb 2008, 22:26
Post
by Arnarl » 26 Apr 2009, 16:59
Talaðu við Kidda í Dýragarðinum hann getur pantað fyrir þig 7 kg Kassa, ég keypti svoleiðis hjá þeim það er Svo miklu hagstæðara heldur en litlu pokarnir. Þetta er Tetra pond koi sticks.
Minn fiskur étur þinn fisk!
Vargur
Posts: 8605 Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær
Post
by Vargur » 27 Apr 2009, 22:56
Cherioos er svo ágætur kostur til að drýga fóðrið og fínasta vetrarfóður fyrir Koi og gullfiska.
Squinchy
Posts: 3298 Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk
Post
by Squinchy » 28 Apr 2009, 08:55
Var að koma ný sending af Koi fóðri í dýralíf, fötur í mörgum stærðum, og gæti líka verið stutt í stóra sekki
Vargur: Það er mælt með því að gefa koi ekki að éta yfir vetrar tíman, nema tjörnin sé upp hituð